Eftir að Manhunt 2 var bannaður á Stóra-Bretlandi, Írlandi og Þýskalandi ákvað Rockstar að gefa leikinn ekki út í Evrópu. Þetta vitum við öll. En núna hefur dómsmálaráðherra Hollands, Ernst Hirsch Ballin, staðfest að Manhunt 2 yrði ekki bannaður ef hann yrði gefinn út í landinu.
Engin lög eru til í ríkinu um ofbeldisfulla tölvuleiki og segir Ballin að fullorðið fólk eigi að ráða hvaða tölvuleiki það spilar svo fremur sem þeir innihalda ekkert sem er ólöglegt í landinu. Samkvæmt skilgreiningum Hollands á hvað er ólöglegt í fjölmiðlum þá eiga þær ekki við Manhunt 2.
Eins og við sögðum frá hér í gær verður leikurinn gefinn út í Bandaríkjunum á hrekkjavöku en enn á þó eftir að taka ákvörðun um útgáfu hér í Evrópu. Rockstar stendur þó enn við ákvörðun sína um að gefa leikinn ekki út í öðrum hlutum Evrópu fyrr en BBFC gefur honum grænt ljós, og það þýðir að Hollendingar sem og við Skandinavíubúar þurfum enn að bíða þangað til við fáum að spila leikinn.
Heimild: Forbes
Kveðja,
GameTíví



vá ég get ekki beðið eftir að sjá meira af þessum leik miðað við það sem maður hefur heyrt um hann
Noh, ég vissi ekki að þið gametíví bræður ættuð heima í Skandinavíu!