- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for August, 2007

Milljón Wii vélar seldar í Bretlandi

Wii er orðin hraðast selda leikjatölva frá upphafi í Bretlandi eftir að sölutölur fóru yfir milljón véla múrinn á einungis 38 vikum. Til samanburðar má nefna að PlayStation 2 seldist í milljón eintökum á 49 vikum og Xbox 360 seldist í sama upplagi á 60 vikum.

Ef marka má Chart Track, sem heldur utan um sölutölur í Bretlandi, á Wii um 68% leikjatölvumarkaðarins þar í landi. Á sama tíma á Nintendo DS 86% af lófaleikjatölvumarkaðnum. Báðar vélarnar seljast enn afar vel og líklega vonar Nintendo að eftirspurnin haldist, eða jafnvel aukist, fram yfir hátíðarnar enda mikill peningur í húfi fyrir fyrirtækið.

Það harðnar svo sannarlega í slagnum á milli leikjatölvuframleiðenda og næstu jól verða afar mikilvæg fyrir Sony, Microsoft og Nintendo, enda fyrstu jólin sem allar leikjatölvur eru á boðstólnum á öllum stærstu markaðssvæðum heimsins í mannsæmandi upplagi. Hver mun standa uppi sem sigurvegari? Við komumst að því … eftir áramót.

Heimild: GamesIndustry.biz

Kveðja,
GameTíví

 

Manhunt 2 yrði leyfður í Hollandi ef Rockstar myndu gefa hann út í Evrópu

Eftir að Manhunt 2 var bannaður á Stóra-Bretlandi, Írlandi og Þýskalandi ákvað Rockstar að gefa leikinn ekki út í Evrópu. Þetta vitum við öll. En núna hefur dómsmálaráðherra Hollands, Ernst Hirsch Ballin, staðfest að Manhunt 2 yrði ekki bannaður ef hann yrði gefinn út í landinu.

Engin lög eru til í ríkinu um ofbeldisfulla tölvuleiki og segir Ballin að fullorðið fólk eigi að ráða hvaða tölvuleiki það spilar svo fremur sem þeir innihalda ekkert sem er ólöglegt í landinu. Samkvæmt skilgreiningum Hollands á hvað er ólöglegt í fjölmiðlum þá eiga þær ekki við Manhunt 2.

Eins og við sögðum frá hér í gær verður leikurinn gefinn út í Bandaríkjunum á hrekkjavöku en enn á þó eftir að taka ákvörðun um útgáfu hér í Evrópu. Rockstar stendur þó enn við ákvörðun sína um að gefa leikinn ekki út í öðrum hlutum Evrópu fyrr en BBFC gefur honum grænt ljós, og það þýðir að Hollendingar sem og við Skandinavíubúar þurfum enn að bíða þangað til við fáum að spila leikinn.

Heimild: Forbes

Kveðja,
GameTíví

 

Manhunt 2 verður gefinn út … í Bandaríkjunum

Entertainment Software Ratings Board, eða ESRB eins og það kallast yfirleitt, hefur gefið hinum ofurofbeldisfulla Manhunt 2 stimpilinn M, sem þýðir mature og merkir að hann sé leyfður öllum sautján ára og eldri og mun því fá útgáfu á leikjatölvur Sony og Nintendo. Eins og öllum er kunnugt var leikurinn bannaður bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum fyrir að vera hreinlega of ofbeldisfullur, en Rockstar hafa gert nokkrar ónefndar breytingar á honum og hefur hann því fengið grænt ljós frá ESRB.

BBFC, kvikmyndaskoðun Bretlands, á þó enn eftir að skila mati á leiknum sjálfum og því er enn óvíst hvort leikurinn muni nokkurn tímann koma út í Evrópu. Ef BBFC neitar að meta leikinn, líkt og þeir gerðu síðast, þá mun þetta vera áfall fyrir Rockstar og Take 2, útgefanda leiksins, þar sem leikurinn mun í framhaldi af því ekki vera gefinn út í öðrum löndum Evrópu. Við skulum því vona að BBFC skili af sér sömu niðurstöðu og ESRB því annars munu margir missa vonina um að fá að spila þennan leik. Nokkurn tímann.

Manhunt 2 verður gefinn út í Bandaríkjunum þann 31. október næstkomandi, en glöggir lesendur fatta að þann dag er einmitt hrekkjavaka – tilvalinn dagur til þess að gefa út hryllingsleik. Líklegt er að leikurinn muni seljast í heilu bílförmunum vegna þeirrar umfjöllunar sem hefur komið fram í kjölfar bannsins á leiknum. Vonandi munum við sjá leikin útgefinn hér á landi seinna á þessu ári… vonandi…

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 
Bú!

Halo 3 farinn á gull, væntanlegur í september

Það eru nokkrir mánuðir síðan Microsoft tilkynnti að Halo 3 yrði
gefinn út 25. september næstkomandi með látum, en hingað til hefur
hins vegar alltaf verið hætta á að eitthvað fari úrskeiðis á
lokametrunum og að leiknum yrði frestað. Það er þó lítið að óttast
héðan af því í dag tilkynntu Microsoft að leikurinn væri farinn á
gull, þ.e.a.s væri tilbúinn til fjöldaframleiðslu, og að nú sé það
eina sem eftir er að framleiða allar þessar milljónir eintaka af
leiknum sem að hann á eftir að seljast í.

Já, mikið rétt, Microsoft búast svo sannarlega við að Halo 3 æði
muni gríða heimsbyggðina þegar leikurinn loksins lendir í verslunum
og það er sko alls ekki á rökum reist, enda eru um milljón manns
búnir að forpanta eintak í Bandaríkjunum einum saman. Reyndar
verður útgáfan svo umfangsmikil að Seven-Eleven mun selja leikinn
yfir borðið, vafalaust með pylsu og kaffikrapi í leiðinni.

Í Halo 3 snúa leikmenn aftur í skó Master Chief sem ætlar sér að
ljúka bardaganum og bjarga jörðinni frá Covenant í eitt skipti
fyrir öll. Leikurinn mun bjóða upp á níu borða einspilun, auk þess
sem allt að fjórir vinir og félagar geta spilað leikinn í gegn
saman yfir split-screen (2 í mesta lagi þar, að vísu) eða net
(hvort sem það er innra net eða yfir alnetið). Þá mun hann bjóða
upp á alls konar tegundir af leikspilunum í multiplaye, deathmatch,
capture the flag og hvaðeina.

Halo 3 er væntanlegur á Xbox 360 þann 25. september næstkomandi.
EKKI missa af þessum!

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

Kojima vill sjá Metal Gear Solid 4 í Evrópu á sama tíma og í USA, Japan

Hideo Kojima sýndi spilanlega útgáfu af Metal Gear Solid 4 í fyrsta sinn utan Japans í dag á Leipzig Games Conference. Hann kvaðst glaður að geta mætt á sýninguna sem hann heldur í miklum metum ásamt E3 og Tokyo Game Show sem haldin er í Tokyo í september á hverju ári.

Kojima sagðist ekki þola að sjá Evrópu sitja alltaf úti í kuldanum og hefur einsett sér að sjá til þess að Metal Gear Solid 4 muni verða gefinn út í Evrópu á sama tíma og hann verður gefinn út í Japan og Bandaríkjunum einhvern tímann á fyrri hluta næsta árs. Það mun þó verða strembið verk enda ekki auðvelt að þýða leik yfir á nokkur mismunandi tungumál án þess að raska útgáfuplani leikja eitthvað.

Það er því einhver von enn fyrir Evrópubúa sem þyrstir í þennan fjórða og síðasta Metal Gear Solid leik sem Hideo Kojima mun leikstýra. En jafnvel þótt leikurinn komi ekki til með að líta dagsins ljós á sama tíma í Evrópu og öðrum svæðum heimsins getum við alltaf huggað okkur við að PlayStation 3 er svæðislaus leikjatölva. Metal Gear Solid 4 er væntanlegur á PlayStation 3 einhvern tímann á næsta ári.

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví


Þótt Snake hafi elst nokkuð í fjórða leiknum er hann þó enn harður í horn að taka.

Metroid, Zelda: Phantom Hourglass fá Evrópska útgáfudaga

Wii eigendur gleðjist, svo virðist sem sumarþurrkarnir séu loksina að taka enda. Eftir afar slakt sumar með einungis Resident Evil 4 og Trauma Center: Second Opinion til þess að slökkva þorsta Wii eigenda þá virðist Nintendo ætla að gefa okkur glaðning í október og nóvember.

Samus Aran mun snúa aftur enn eina ferðina í glænýju ævintýri, Metroid Prime 3: Corruption. Leikurinn gerist 6 mánuðum á eftir Metroid Prime 2: Echoes og í þetta sinn kemst Samus í þann krappann þegar hún er að rannsaka tölvuárás á tölvu sem nefnist einfaldlega Aurora Unit. Á sama tíma ráðast geimræningjar á eina af geimstöðvum Galactic Federation til þess að bæta við allt gamanið. Metroid Prime 3: Corruption verður gefinn út 26. október næstkomandi á Níntendó Víj.

Þeir sem höfðu gaman að The Legend of Zelda: The Wind Waker á GameCube geta einnig glaðst því fyrsta ævintýri Link á Nintendo DS er loksins mætt og er leikurinn, The Legend of Zelda: Phantom Hourglass, framhald af áðurnefndum GameCube leik. Leikurinn er sagður einhver allra flottasti DS leikur sem hingað til hefur sést og hefur fengið lofsamlega dóma. Phantom Hourglass er væntanlegur á Nintendo DS þann 19. október næstkomandi, en fyrir þá sem geta ekki beðið þá er mögulegt að panta leikinn frá Bandaríkjunum þegar hann kemur þar út 1. október.

Fyrir utan þessa tvo staðfestu útgáfudaga þá hefur einnig lekið á netið útgáfulisti yfir komandi Wii titla. Þar kemur meðal annars fram að Super Mario Galaxy mun koma út þann 16. nóvember, en þess má geta að það er einnig afmælisdagur Shigeru Miyamoto, skapara Super Mario seríunnar. Köfunarleikurinn Endless Ocean á víst að koma út 9. nóvember og Resident Evil: Umbrella Chronicles kemur 30. nóvember ef listinn er réttur. Við skulum rétt vona að svo sé því Super Mario Galaxy er leikur sem VERÐUR að koma út eins fljótt og auðið er… annars munu ýmsir aðilar innan leikjaframleiðslustéttarinnar fara að … hverfa.

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

 

Bioshock demó fyrir PC í kvöld

Ef það er einhver leikur sem enginn Xbox 360 eða PC eigandi ætti að láta fram hjá sér fara þá er það Bioshock. Það er að segja, ef viðkomandi aðili er eldri en 18 ára, auðvitað. Xbox 360 eigendur fengu í síðustu viku forsmekkinn að leiknum, sem væntanlegur er á næsta föstudag, en PC eigendur geta loksins fengið að njóta þess líka einhvern tímann í nótt.

Bioshock er gerður af 2K Boston og 2K Australia, sem áður hétu Irrational Games, og er andlegur arftaki System Shock leikjanna sem eldri leikjaunnendur þekkja vafalaust til. Í leiknum fara leikmenn í spor skipbrotsmanns sem endar í fyrrum paradísinni Rapture sem gáfaðasta fólk í heimi reisti eitt sinn. Hún er þó ekki sama paradís og hún var því borgarastyrjöld braust út og hafa flestir íbúar þar breyst í óvinveitt skrímsli sem eiga fátt sameiginlegt manninum.

Leikurinn býður upp á að breyta erfðaefni spilandans og gefa honum þannig krafta eins og vald yfir eldi, getuna til að frysta óvinina eða getuna til að bera hluti með huganum einum. Leikurinn býður upp á um 15-20 klukkustunda leikspilun en hægt er að klára leikinn á ótal vegu svo líklegt er að þeir sem á annað borð klára leikina muni spila þá aftur.

Bioshock er væntanlegur á Xbox 360 og PC á næstkomandi föstudag. Leggið vasapeninginn til hliðar og notið hann í þennan leik, þið munið ekki sjá eftir því…

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví


Ó, hæ, ég uppfærði innra minnið þitt.
 

Too Human demó, útgáfudagur á næsta leyti

Too Human er búinn að vera lengi í bígerð. Leikurinn var fyrst tilkynntur sem 5-diska ævintýri fyrir PlayStation leikjavélina, en þegar Silicon Knights, framleiðandi leiksins, gerði samning við Nintendo var framleiðsla leiksins færð yfir á GameCube. Þar birtist hann einu sinni á sýningu en þegar samstarfi fyrirtækjanna lauk eftir Eternal Darkness: Sanity's Requiem hvarf leikurinn enn og aftur. Að lokum gerðu Silicon Knights samning við Microsoft um framleiðslu á Too Human þríleik fyrir Xbox 360 leikjavélina.

Á síðasta ári birtist leikurinn á E3 en vegna vandræða með Unreal Engine 3 tæknina var leikurinn nær óspilanlegur og minnti helst á powerpoint sýningu frekar en tölvuleik. Hann virðist þó vera kominn á réttan kjöl og stefnir allt í að leikurinn verði tilbúinn á næsta ári.

Forstjóri Silicon Knights, Denis Dyack, hefur staðfest að demó af leiknum er í bígerð og mun örugglega koma út áður en leikurinn sjálfur verður gefinn út. Á komandi mánuðum mun fyrirtækið leysa frá skjóðunni og meðal annars afhjúpa endanlegan útgáfudag fyrir leikinn. Stuttu eftir það verður demóið svo gefið út yfir Xbox Live.

Too Human er hasarleikur með hlutverkaleikjaívafi sem byggður er á norrænni goðafræði. Í leiknum eru guðirnir þó ekki lengur guðir heldur eru þeir hálfir menn og hálf vélmenni. Leikmenn fara í hlutverk Baldurs, son Þórs sem eins og öllum er kunnugt var drepinn með mistilteini, sem var eini hluturinn í öllum heiminum sem lofaði ekki að gera Baldri mein þar sem hann var hvort eð er meinlaus. Í hlutverki Baldurs eiga spilendur svo að berjast við illvíg vélmenni sem hafa verið send til þess að tortíma mannkyninu, safna nýjum betri hlutum, hækka um level og þess háttar.

Leikurinn er væntanlegur á næsta ári og hann mun eingöngu koma út á Xbox 360…

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Blizzard útilokar WoW á PS3, Xbox 360 enn og aftur

Allt frá því árið 2005, þegar World of WarCraft var að skríða sín fyrstu skref í heiminn og "einungis" tvær til þrjár milljónir voru að spila hann voru uppi orðrómar um að Blizzard ætlaði sér að færa World of WarCraft yfir á leikjatölvur í því skyni að ná enn stærri aðdáendahóp. Þessu svaraði Blizzard með hlátrasköllum og fingrabendingum.

Áfram héldu þessir orðrómar að berast á yfirborðið í gegnum árin, þá oft með hjálp starfsauglýsinga þar sem Blizzard leitaði eftir fólki til þess að vinna með leikjatölvur, en alltaf var orðrómunum hafnað. Þegar leikjatölvuleikurinn StarCraft: Ghost var lagður af sagði ónefndur starfsmaður Blizzard að allir starfsmenn sem höfðu verið að vinna í kringum leikjatölvur hefðu verið færðir í "önnur verkefni" en síðar var þeirri staðhæfingu breytt í að "þeir væru að kynna sér nýja tækni" en væru síður en svo tilbúnir að tala um hvers eðlis það væri.

Í apríl á þessu ári birti Blizzard svo starfsauglýsingu fyrir vinnu að "next-generation MMO" leik og að þá væri verið að tala í tengslum við leikjatölvur Sony og Microsoft sem hafa farið (misjafnar) sigurfarir um heiminn. Blizzard sökktu þessum orðrómi hraðar en ísjaki sökkti Titanic og þar með sukku vonir aðdáenda til botns endanlega.

Nú á dögunum kom að lokum upp umræða um þennan möguleika á World of WarCraft spjallborðunum. Starfsmaður Blizzard sem kallar sig "Drysc" staðfesti að "þeir séu ástfangnir af PC og Mac og hafi enga löngun til þess að koma leiknum á aðrar vélar að svo stöddu." Og hana nú.

Þetta þýðir væntanlega að ef einkatölvan er orðin eitthvað slöpp fyrir World of WarCraft, sérstaklega nú þegar Wrath of the Lich King er á næsta leiti, þá er fátt annað að gera í stöðunni en að kaupa sér nýja tölvu – þið eigið í það minnsta ekki eftir að setja leikinn upp á PlayStation 3 eða Xbox 360 í bráð.

Heimild: GameSpot

Kveðja,
GameTíví

Wrath of the Lich King kemur eingöngu á PC og Mac… eins og World of WarCraft og The Burning Crusade.

The Chronicles of Riddick: Dark Athena frestað fram á næsta ár

Slæmar fréttir fyrir alla Vin Diesel og Chronicles of Riddick
aðdáendur hér á ferð. Svo virðist sem The Chronicles of Riddick:
Assault on Dark Athena, next-gen endurgerðinni af Escape from
Butcher Bay, sem kom út á Xbox og PC, hafi verið frestað fram á
næsta ár.

Ástæðan fyrir seinkuninni er viðbrögð netsamfélagsins við
endurgerðinni. “Þegar við afhjúpuðum leikinn fengum við svakalega
mikið af jákvæðum viðbrögðum frá leikjaspilendasamfélaginu,” sagði
talsmaður Sierra í viðtali við evrópsku fréttasíðuna Eurogamer.
“Við erum að skoða alla valkosti og erum afar óðfúsir yfir því að
afhjúpa spennandi upplýsingar á komandi mánuðum.”

Dark Athena var afhjúpaður fyrr á árinu, en hann átti upphaflega
að vera endurgerð af The Escape from Butcher Bay, eins og áður
sagði, með uppfærðri grafík. Þá átti að bæta einum kafla við
leikinn, Assault on Dark Athena, en Starbreeze Studios,
framleiðandi leiksins, þurftu að sæta gagnrýni að nýr kafli sé ekki
nærri því nóg fyrir endurgerð af þessu tagi. Því hafi ákvörðunin um
seinkunina verið tekin.

The Chronicles of Riddick: Escape from Butcher bay kom fyrst út
árið 2004 og naut mikilla vinsælda meðal gagnrýnenda jafnt sem
spilenda, líklega einn besti kvikmyndatengdi tölvuleikur sem hefur
verið gerður. Nokkurn tímann.

The Chronicles of Riddick: Assault on Dark Athena verður gefinn
út á Xbox 360 og PlayStation 3  á næsta ári.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Vin Diesel snýr aftur í Assault on Dark Athena.