- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Tveggja manna her fær útgáfudag

Það er enginn vafi að einn þeirra leikja sem beðið er með einna
mestri eftirvæntingu er leikurinn Army of Two frá Electronic Arts.
Leikurinn er co-op leikur í húð og hár – eða væri það í það minnsta
ef hann væri lifandi manneskja. Öll verkefni eru hönnuð með tvo í
huga, allar taktíkir, allar strategíur, ALLT er hugsað með tvo menn
í huga. Eða eins og Electronic Arts kjósa að segja það, “co-op er
ekki lengur bara tegund af leikspilun, co-op er leikurinn
sjálfur.”

Army of Two er víst með svakalega pólitískan söguþráð sem
tengist einkaherjum – en nánari upplýsingar hefur verið erfitt að
rífa úr höndum Electronic Arts. Ekki einu sinni dáleiðing
virkaði… fúff. Þá skartar hann víst “öflugri” tónlist til að rífa
leikinn til lífsins.

Leikmenn geta spilað leikinn annaðhvort með tölvunni sem
notfærir sér víst alveg mjög fína gervigreind, eða þá með félaga af
holdi og blóði.

Army of Two er væntanlegur á PlayStation 3 og Xbox 360 þann 15.
nóvember næstkomandi. Fylgist með þessum – þið munuð ekki sjá eftir
því!

Kveðja,
GameTíví

 

2 Responses to “Tveggja manna her fær útgáfudag”


Comments are currently closed.