Samkvæmt Michael Shorrock sem sér um tengsl við
“3rd party” framleiðendur hjá Sony hefur staðfest að Rockstar sé
að vinna að nýrri leikjaseríu sem “aðeins verður hægt að gera á
PlayStation 3″
Á blogginu sínu segir Michael að þetta sé ekki “La Noir” sem
þarna um ræðir, en hann hefur áður verið tilkynntur, og held ég
reyndar að hann komi á allar leilkjatölvurnar.
Heldur verður þetta nýr leikur sem ekki hefur verið tilkynntur
enn.
“Allir vita að ef þú ætlar að ná árangri í þessum bransa þarf að
líta fram á veginn, koma auga á hæfileikafólk og þá titla sem eiga
eftir að færa notendum nýja upplifun sem setja nýja staðla í
leikjaheiminum.” segir Michael. “Rockstar fyrirtækið hefur
skapað hefð í að gera nákvæmlega þetta og hefur fyrirtækið slegið í
gegn með GTA, en það er okkur heiður að halda þeirri seríu áfram á
okkar vélum, en við erum jafnvel ennþá spenntari fyrir núverandi og
framtíðar samstarfi milli Sony og Rockstar.”
“Rockstar vildi fá að gera leik sem er aðeins hægt að gera á
PlayStation 3, með því að nota aflið í Cell örgjörvanum og plássið
á Blu-ray disknum.”
Sony Computer hefur enn ekki gefið út frekari upplýsingar um
leikinn, en lofaði að gera það um leið og hægt væri.
Kveðja,
Gametíví

Síðast var það borðtennis…næst verður það kannski listdans á
skautum…



Maður veit ekkert hvaða tölvu maður á að kaupa sér, X360 eða PS3. Samt heillar X360 mig meira vegna þess að þar er Xbox live. Geta þeir ekki bara gefið út þessa leiki á allar tölvur maður er ekki milljarðamæringur sem á efni á báðum tölvum.