Svo virðist sem Mario þurfi að hjálpa fleiri en einni prinsessu
í Super Mario Galaxy, ef marka má nýjar myndir úr japanska
tímaritinu Famitsu.
Í Super Mario Galaxy hefur Peach prinsessu verið rænt enn eina
ferðina og til þess að hjálpa henni þarf Mario að leggja undir sig
ferðalag um himingeiminn. Nýju myndirnar úr Famitsu sýna, hins
vegar, að það gæti verið að Mario þurfi ekki einungis að hjálpa
einni prinsessu í geimævintýri sínu, heldur tveimur. Myndirnar sýna
ljóshærða prinsessu í hvítum kjól sem við höfum ekki séð í öðrum
Mario leikjum hingað til, og undir myndinni er nafnið “Rosetta”,
sem við getum gert ráð fyrir að sé nafn hennar.
Nintendo hafa verið duglegir við að gefa ekki of nákvæmar
upplýsingar um söguþráð eða framvindu leiksins þar sem þau demó sem
hafa verið sýnd á sýningum hafa verið frekar stutt og svipuð í
sniðum.
Við getum væntanlega öll komist að því hver í ósköpunum þessi
nýja prinsessa er þegar leikurinn kemur í verslanir … einhvern
tímann. Ameríka fær hann í nóvember og við skulum vona að Evrópa
muni ekki sitja í skugganum lengi eftir á.
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví
Rosetta eins og hún birtist í Famitsu







Nýleg comment