Við getum ekki neitað þessu: LEGO Star Wars var afar áhugaverður
og vel heppnaður titill. Framleiðendur leiksins, fyrirtækið
Traveller’s Tales, eru reyndar svo sáttir við LEGO Star Wars að
þeir ætla ekki að stoppa ævintýrið með Star Wars því þeir afhjúpuðu
LEGO Indiana Jones the video game (já, þetta er nafnið á leiknum) á
Comic Con sem fram fór núna um helgina.
Leikurinn mun gera stólpagrín að Raiders of the Lost Ark, Temple
of Doom og The Last Crusade með húmor svipuðum þeim sem við fengum
að kynnast í LEGO Star Wars, bújah! LEGO Indiana Jones er
væntanlegur á næstu-kynslóðar leikjatölvur næsta sumar – og líklega
lófaleikjatölvur og PC líka.
Þess má geta að Traveller’s Tales er einnig að vinna að LEGO
Batman, sem ætlað er að stæla gömlu Batman þættina og myndasögurnar
frá því fyrir löngu. Dununununununununu BATMAN! *POW*
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



Klassi, gaman að sjá að þið geimtíví bræður eruð enn á lífi
hlakka til að sjá þættina þegar þið byrjið aftur, hvenær er það annars?