Tim Kring afhjúpaði Heroes tölvuleikinn aðeins of snemma þegar
hann var tekinn í viðtal af The Hollywood Reporter nú á dögunum.
Leikurinn verður hasarleikur og mun koma út á PC, PS3 og Xbox
360… hugsanlega á næsta ári ef allt gengur vel.
“Við erum svakalega spenntir fyrir því að gera Heroes
tölvuleikinn með Ubisoft,” sagði Tim í viðtalinu. “Enn og aftur
hefur Ubisoft sannað að þeir geta tekið kvikmynda- og
sjónvarpsþáttaleyfi og gert úr þeim frábæra leiki.” Bíddu, hafa
þeir einhvern tímann gert það?
Leikurinn mun innihalda allar þær persónur sem við höfum kynnst
í gegnum þættina og mun verða þróaður af innanhússtúdíói Ubisoft
undir vökulu auga skapara sjónvarpsseríunnar. Hann mun þó ekki brúa
neitt bil eða byggja á áður sögðum sögum heldur mun hann gefa nýja
innsýn í Heroes heiminn.
“Frá fyrsta degi höfum við verið að hugsa um leikinn,” sagði
Jesse Alexander, meðframleiðandi seríunnar, í viðtali við áðurnefnt
blað. “Allan þennan tíma vorum við að skrifa sumar sögurnar á þann
veg að við gætum á endanum tengt þær við tölvuleikinn.” Yowie.
Búist er við að Ubisoft muni afhjúpa leikinn formlega á
myndasöguráðstefnunni Comic Con sem fer fram í San Diego seinna í
vikunni.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



0 Responses to “Heroes leikur væntanlegur frá Ubisoft, segir höfundur seríunnar”