Ekki misskilja þessa fyrirsögn. GTA IV verður alveg eins á PS3
og Xbox 360 þegar hann kemur út 19. október næstkomandi. Hosi
Simon, talsmaður Rockstar, viðurkenndi þó að þegar á heildina er
litið þá er Grand Theft Auto IV betri á Xbox 360 vegna aukaefnisins
sem mun koma á vélina.
“Leikirnir eru alveg eins. Við erum ekki tölvuframleiðendur og
við erum ekki peð á milli fyrirtækjanna, við reynum ekki að vera
eins mikið og mögulegt er. Við gerum frábæra leiki sem fólk getur
skemmt sér í á hvaða vél sem þeir vilja,” sagði Simon. “En samt, ef
þú vilt alla upplifunina með aukaefninu þá ættirðu að kaupa 360
útgáfuna.”
Það er ekki langt síðan fréttir af 50 milljón dollara samningi
Microsoft og Rockstar brutust út á internetið, en það er sú fjárhæð
sem Microsoft á að hafa borgað fyrir aukaefnið á Xbox 360,
aukaefnið sem Simon talar um. Sony ákváðu hins vegar að halda sínu
veski lokuðu og því er það ástæðan fyrir því af hverju GTA IV
verður á endanum “betri” á Xbox 360 en PS3.
Grand Theft Auto kemur á PS3 og Xbox 360 19. október
næstkomandi. Búast má við fyrsta aukaefninu á Xbox 360 fyrir lok
mars 2008.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



50 milljónir dollara!
það eru 3031500000 ísl:0
Hell yeah!
Nú er gott að mar splæsti frekar í Xbox360 en PS3
Hvað með Killzone 2? Hann kemur ekki á X-Box 360
Skil ekki af hverju Killzone 2 fær svona mikla athygli. Fyrir utan grafíkina þá heillar hann mig ekkert rosalega. Fyrri leikurinn var einnig frekar slappur þó svo að grafíkin hafi nú langt frá því verið slæm á sínum tíma.
Sammála, ég er ekkert spenntur fyrir Killzone 2, miklu frekar spenntur fyrir Halo 2 eða Crysis.
Ein pæling. Microsoft eyðir 50 milljónum dollara bara til að tryggja sér einkaleyfið á GTA IV aukaefni. Á meðan eyðir Sony 30 milljónum dollara í að gera Killzone 2 sem verður klárlega Exclusive leikur á PS3. Misjanft hvernig fyrirtækin eyða peningunum..
Önnur pæling: Microsoft hefur efni á að standa í stórtapi til lengri tíma, Sony ekki…
Reyndar eru hluthafar sem byrja að setja spurningamerki við deildir sem skila tapi..ég held að Microsoft þurfi að fara að delivera hagnaði á þessari deild, annars fara hluthafar að gera athugasemdir. Það vilja allir hámarksgróða. Það er enginn fjárfestir til í að eyða peningum í vitleysu..
Ég held að fyrirtæki sem þurfa að horfa í peninginn og virkilega pæla í því sem þeir þurfa að gera til að skila hagnaði nái alltaf að vera með meiri nýsköpun og skili hraðari árangri. Líkt og þekkist með Sony og Nintendo í tölvuleikjastríðinu. Microsoft hefur alltaf verið \”copy cat\” fyrirtæki, fyrst gangvart Apple, svo með hina ýmsu leiki. Þeir verða seint sakaðir um of mikla uppfinningasemi..
Hvernig sem á þetta er litið er bara gott að hafa svona samkeppni, allavega fyrir okkur gamers
Ég tel að Nintendo eru gáfaðastir. Á meðan hin fyrirtækin tapa vegna véla þeirra þá græðir Nintendo bara og eru í góðum málum. Þeir þyrftu bara að eyða meiri pening til að fjárfesta miklu fleiri af góðum leikjum. Það er bara sirka 4 góðir leikir að koma út á þessu ári fram að jólum persónulega finnst mér er það ekki nógu gott.
Og hefðu Nintendo farið yfir í HD graffík og þannig system, þá hefði Nintendo aldrei sett fót á markaðinn. Allavega þá gekk GameCube ekkert svaka vel. En nú fer Wii með “Sigurför” um heiminn og það líður ekki langt þangað til að þeir fara að ná X-Box 360.
Svo annað með Killzone 2. Þá var hann bara aðal leikurinn á E3 hjá Sony mönnum. Þeir sýndu eitt flottasta myndband úr því í endan og kom það líka mjög á óvart hvað það var flott. Hann hefur verið mest eftirvæntanlegur hjá spilendum. Allvega þegar PS3 fór að hefja för sína, þá sýndu þeir myndband úr Killzone 2 og það átti að sýna hvað PS3 hafði upp á að bjóða fyrir graffíkina og þess háttar. Hann var einnig valinn eitt af bestu skotleikjum á E3 sýningunni. Call of Duty 4 var í fyrsta og Killzone 2 í 4. sæti eftir Crysis.
Þannig að ég er nokkuð spenntur eftir Killzone2 og fl. leikjum sem koma á PS3.
P.S. Nintendo eru ekkert endilega gáfaðastir. Þetta var bara í orðavalinu mínu
Anyway, allir alvöru gamers gefa skít í þetta Xbox360 vs PS3 crap. Fá sér bara báðar, ég er að safna
og svo ef mig langar þá fæ ég mér kannski Wii líka, en so far finnst mér hún vera bara svona novelty item, dæmi sem verður þreytt mjög fljótt….
Það er reyndar satt hjá þér með Wii. En ég ætla bara halda mér við PS3 og Wii. Mér langar ekkert í Xbox360 ef ég á PS3. Mér finnst það svo tilgangslaust. Mér finnst nóg að vera með eina öfluga tölvu og eina sem er skemmtileg í leiki, t.d. Zelda og Mario, bestu karektarinir.
Svo með PS3 og Xbox360. Það koma seinna nóg af góðum leikjum á allar vélar að það er alveg nóg að eiga 2 eða svo. Allaveg er þetta minn kostur við þær. Ég hef bara verið PS gaur frá PS2 og Nintendo gaur frá Nintendo 64.
Jamm, skil þig vel.
Vona bara að leikir eins og Mass Effect og BioShock komi á PS3, ég er svo spenntur fyrir þeim 
Mér finnst samt eins og er vera meira af leikjum sem ég fíla á 360 en PS3, en það er auðvitað bara smekksatriði
Ég meina svo að PS3 gaurar geti spilað þá líka
Það er satt. En Gomez. Ertu á einhverri síðu eins og PSX eða Xbox360? Maður hefur aldrei heyrt frá þér áður. Allavega ekki á Gametíví.
Ég er hérna alltaf, hef bara ekkert verið að spjalla neitt
Þá er PSX.is hópurinn þinn. Mikil ræðumenska er færni þar
.
hvernin aukaefni þá???? 7
og hafa ekki allir séð gta4 trailer 2??!!!
flotta hell**** vá!!!!!
RUGL ps3 er 1000000000000000,9999999999999 betri en xbox 360 microsoft asnarnir eru ríkari. Eins og með Chelsea (fótbolti) er ríkasta liðið eeeeeennnn ekki allir halda með því. Það eru Arsenal Man UTD Liverpool og það er frekar haldið með því