Final Fantasy serían er kannski stór hér á vesturlöndum, en
líklega er engin sería jafn stór og Dragon Quest í Japan. Dragon
Quest kom upphaflega út árið 1986 í Japan og var skapaður af Yuji
nokkrum Horii en það var enginn annar en hinn virti mangateiknari
Akira Toriyama (Dragonball) sem hannaði persónur og skrímsli
leiksins. Leikurinn varð strax alveg geysivinsæll og um það leiti
sem þriðji leikurinn kom út neyddist útgefandi leiksins, Enix, til
þess að gefa alla Dragon Quest leiki út á frídögum þar sem útgáfur
leikja úr seríunni höfðu orðið þess valdandi að fólk skrópaði í
skóla og vinnu til að kaupa þá.
Núna hefur Square-Enix ákveðið að endurgera Dragon Quest IV, V
og VI fyrir Nintendo DS á svipaðan hátt og þeir endurgerðu Final
Fantasy III (og eru að endurgera Final Fantasy IV); það er að segja
með því að stórbæta grafíkina í þeirri von um að geta selt gömlum,
og nýjum, aðdáendum leikina og grætt milljónir.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær fyrsta endurgerðin mun koma út
en búist er við að það muni gerast áður en næsti Dragon Quest
leikur, Dragon Quest IX á Nintendo DS, kemur út. Þá hefur
Square-Enix ekki viljað segja neitt um það hvort leikirnir muni
nokkurn tímann koma út fyrir utan Japan, þar sem þeir hafa
yfirleitt fallið í skuggann á Final Fantasy hér á vesturlöndum,
eins og áður hefur verið nefnt.
Þess má geta að fyrsti Dragon Quest leikurinn sem gefinn var út
í Evrópu var Dragon Quest VIII: The Journey of the Cursed King.
Hann kom út á fyrrhluta ársins 2005 á PlayStation 2. (Kaupið
hann!)
Heimild: GameSpot
Kveðja,
GameTíví
Dragon Quest IV kemur væntanlega út á undan Dragon Quest
V…








Nýleg comment