Nintendo í Bretlandi afhjúpuðu í dag útgáfudaga fyrir titla
þriðja ársfjórðungs ársins 2007. Meðal leikja sem eru á listanum
eru Elite Beat Agents, Super Paper Mario og Pokémon Pearl/Diamond.
Því miður mun Metroid Prime 3: Corruption ekki koma út á þessum
ársfjórðungi en við getum haldið áfram að vona og séð hvort hann
komi ekki út fyrir jólin…
Eftirfarandi er listi yfir helstu útgáfur 3. ársfjórðungs fyrir
DS og Wii. Takið eftir því að Manhunt 2 vantar á þennan lista, en
það er vegna þess að leikurinn hefur verið bannaður í Bretlandi (og
Írlandi, að því er virðist). Óákveðið er hvort leikurinn komi út í
öðrum hlutum, en líkur á því eru talsvert góðar.
DS
- More Brain Training from Dr Kawashima: How Old Is Your Brain?
(Nintendo) 29. júní - Nacho Libre (Majesco / Eidos) 29. júní
- Harry Potter & The Order Of The Phoenix (EA) 29. júní
- Elite Beat Agents (Nintendo) 13. júl
- ANNO 1701 (Disney) 13. júlí
- Pokémon Diamond and Pokémon Pearl (Nintendo) 27. júl
- Freshly Picked – Tingle’s Rosy Rupeeland (Nintendo) 14.
september - Heroes of Mana (Square Enix) 14. september
- Sonic Rush Adventure (SEGA) 28. september
Wii
- Resident Evil: 4 Wii edition (Capcom) 29. júní
- Harry Potter & The Order Of The Phoenix (EA) 29. júní
- Scarface (Vivendi Games) 30. júní
- Mario Party 8 (Nintendo) 13. júlí
- Big Brain Academy for Wii (Nintendo) 20. júlí
- Super Paper Mario (Nintendo) 14. september
Af þessum titlum er Super Paper Mario sá allra stærsti. Hann
hefur fengið alveg hreint magnaðar einkunnir vestanhafs, en það
sama má segja um leiki á borð við og það er því mikils að
vænta á næstu mánuðum.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Old Grandma Hardcore kláraði Super Paper Mario og líkaði
hann vel…



Maður þarf bara fara að safna fyrir góðum leikjum
.
er ógeðslega spenntur fyrir super paper mario og mario party 8
Já,há. En mesti galli er að Hann fær svo lélega dóma
.
ég er mest spenntur fyrir scarface hann er góður á ps2 vona að hann verði eins á wii
ég er mest spenntur fyrir Old Grandma Hardcore… Grrrrr