Svo virðist sem Spore hafi verið frestað til næsta árs ef marka
má nýjustu fregnir. Samkvæmt Game Informer mun Spore hafa verið
frestað “um óákveðinn tíma” en Electronic Arts hafa staðfest að
leikurinn muni ekki koma út á fjárhagsárinu 2008, sem nær frá apríl
2007 til mars 2008. Þetta þýðir að leikurinn mun ekki koma út fyrr
en í fyrsta lagi í apríl 2008.
Leikurinn átti upphaflega að koma guð-má-vita-hvenær en ekki
hefur verið mikið rætt um hvað sé að valda öllum þessum óskapans
töfum. Hvað sem það er, þá er staðreyndin alltaf sú sama: VIÐ
VILJUM SPORE. STRAX Í DAG.
Heimild: Kotaku
Kveðja,
GameTíví
Í Spore þróast maður úr einfrumungi í
geimferðalanga…



Þetta verður FLOTTUR leikur!
Humm… þeir virðast vera frekar lítið fyrir að gefa upp á hvaða vélum leikurinn kemur út(nema að ég hafi bara ekki tekið eftir því). Einhver sem veit hvaða vélar leikurinn styður?
Búið að confirma hann fyrir PC og Nintendo DS