Samkvæmt yfirlýsingu sem Capcom gaf út í dag munu nokkrir af
titlum fyrirtækisins verða gefnir út í gegnum Steam á næstunni.
Capcom verður því fyrsta japanska fyrirtækið til þess að nota sér
dreifingarþjónustu Valve.
Þeir Capcom leikir sem munu verða aðgengilegir í gegnum Steam á
næstunni eru Lost Planet: Extreme Condition, Ominusha 3: Demon
Siege, Devil May Cry 3: Special Edition og Super Puzzle Fighter II:
HD Remix.
Þá segist fyrirtækið ætla að gefa út fleiri leiki yfir Steam, en
hvaða leikir það verða verður ekki afhjúpað um sinn. Gæti verið að
Devil May Cry 4 eða Street Fighter II Turbo: HD Remix muni verða
dreift í gegnum Steam fyrir PC eigendur að njóta? Við skulum í það
minnsta ekki útiloka það strax.
Heimild: 1UP.com
Kveðja,
GameTíví
Skotleikurinn Lost Planet er einn þeirra leikja sem fá
dreifingu yfir Steam…




Nýleg comment