Dómur ESRB á Manhunt 2 er fallinn og fékk leikurinn AO
stimpilinn. AO stendur fyrir adults only og þýðir að leikurinn sé
ekki við hæfi einstaklinga yngri en 18 ára. Það þýðir einnig að
engin almenn verslun (Wal-mart, Best Buy, Gamestop o.s.frv.) mun
selja leikinn.
Það er ekki það eina, samt. Þegar leikurinn fékk þennan óvinsæla
stimpil vonuðust Bandaríkjamenn til þess að geta samt spilað þessa
leiki þótt þeir þyrftu að leita að honum í óvenjulegri verslunum.
Nintendo og Sony hafa tekið upp basúkkurnar sínar og skotið
vonirnar algjörlega á kaf með því að neita útgefendum leiksins um
að gefa leikinn út á vélar fyrirtækjanna.
Það er rétt. Reglur Nintendo og Sony segja skýrt og greinilega
að leikir sem bera með sér AO stimpilinn fái einfaldlega ekki leyfi
til þess að vera gefnir út á vélum þeirra. Brot á þessu er
yfirleitt fylgt eftir með kæru og fjársektum svo enginn hefur reynt
að gefa út AO leik hingað til.
Það sem þetta þýðir er að til þess að gefa leikinn út verða
Rockstar og Take-Two Interactive að áfrýja niðurstöðu ESRB og óska
eftir að honum verði gefinn M stimpill eða þá að þeir verða að gera
breytingar á leiknum til þess að hann verðskuldi eitthvað lægra en
AO.
Þess má annars geta að hér á Íslandi fylgjum við reglum PEGI sem
hefur ekki enn metið leikinn. Líklegt þykir að leikurinn verði
stranglega bannaður innan 18 og að hann verði þar af leiðandi
aðgengilegur í öllum þeim löndum sem hafa innleitt PEGI
merkingarnar í reglugerðir sínar.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Manhunt 2 er svo miklu meira en bara grímur og
kjötaxir…



Vá hvað maður verður meiri spenntur. Bara að sjá 15 mín í þessum leik yrði örugglega martraðir næstu vikurnar. Eða allavega hjómar þannig.
Af hverju gefa þeir ekki bara leikinn út á pc, þá þurfa þeir ekki að hlusta á vælið frá sony og nitendo.
Mér finnst þetta reyndar rétt gert hjá Sony og Nintendo. Þeir eru að beyta réttum hlutum. En samt, maður ætti að geta samt keypt hann ef manni langaði í hann. Mér langar samt ekkert í hann.
samt þetta er kanski fínt mar
hvenar far manhunt 1 búi