Nintendo kynntu nýtt tól fyrir sjálfstæða leikjahönnuði á
ráðstefnu fyrir leikjaframleiðendur í gær. Þetta tól mun heita Wii
Software og með því munu sjálfstæðir leikjahönnuðir þróað smáleiki
fyrir Nintendo Wii með fullum stuðningi við Wiimote og nunchuck
addonið. Lengi hefur staðið til að opna dyrnar fyrir öðru efni en
hinum klassísku Virtual Console titlum sem við höfum fengið að gæða
á í gegnum tíðina og núna virðist biðin vera að styttast.
Fyrstu Wii Software titlarnir munu koma út snemma á næsta ári.
Óvíst er hversu mikið hver leikur mun kosta en Nintendo munu hanna
verðmódel og flokka leikina í verðflokka eftir ákveðnu mati. Þá
munu Wii eigendur eiga þann kost að versla sér þessa leiki fyrir
sömu Wii points og þeir nota til þess að kaupa Virtual Console
leiki.
Þrátt fyrir þessa nýjung hafa Nintendo þó afneitað öllum
orðrómum um að þeir ætli sér að gefa út harðan disk fyrir Wii
leikjatölvuna. Eins og er hefur Wii 512 megabæta flash minni ásamt
rauf fyrir SD kort. Einhvern tímann hljóta þessi 512 megabæt af
geymsluplássi að hverfa og þá verða notendur að grípa til þess ráðs
að hreinsa af minninu eða færa gögn yfir á SD kort. Stór SD kort
eru kostnaðarsöm og þó svo að þau séu minni í sniðum en harðir
diskar þá kemur það vissulega niður á geymsluplássinu.
Það er þó aldrei að vita nema Nintendo breyti stefnu sinni og
kynni til leiks harðan disk .. seinna. Þeir hafa neitað orðrómum en
komið svo fram í sviðsljósið með staðfestingu á þeim stuttu síðar.
Er þetta einn af þeim? Sjáum til á E3 eftir 2 vikur!
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví
Wii Sports? Já. Harður diskur? Nei. Ekki
enn…




Nýleg comment