Undanfarna daga hafa söluaðilar um allan heim verið að breyta
útgáfudagsetningum sínum á Virtua Fighter 5 á Xbox 360. Amazon í
Bretlandi segir 28. september, GAME segir nóvember og Gamestop
segir október.
SEGA hafa ákveðið að segja “stopp” við allri
útgáfudagavitleysunni og gert hreint fyrir sínum dyrum. “Xbox 360
útgáfan af Virtua Fighter 5 kemur út í sumar, og hana nú!” Það
þýðir væntanlega á næstu 3 mánuðum, nema að sumarmánuðir hafi
breyst eitthvað.
Litlar upplýsingar hafa verið gefnar upp um X360 útgáfuna af
leiknum, en Eurogamer komust þó að þeirri niðurstöðu að Xbox
360
útgáfan liti ekkert verr út en PS3 útgáfan, en leikurinn er
almennt talinn einn allra flottasti leikurinn á PS3 eins og er.
Virtua Fighter 5, Xbox 360 í sumar, búið ykkur undir fyrsta
almennilega slagsmálaleikinn fyrir hina eins og hálfs árs gömlu vél
Microsoft.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



Jahá!
Oki, uh. Vonadni kemur amma þín ekki í heimsókn á þessa síðu!
En alla vega stulleh. Þeir eru búnir að setja þáttinn á netið eða á vefsjónvarp skjárinns. Ýttu bara á linkinn (ofarlega vinstramegin) undir HORFA Á ÞÆTTI og smelltu á Gametíví á vefnum. Þar ættir þú að fynna næstum all þættina þeirra frá því að þeir komu á Skjá Einn. Og þar er loka þátturinn.
Þannig að þú ættir að vera glaður að hafa farið til ömmu þinnar
, ekki bara til einskis.
þessi gæti orðið góður
jú marh, ömmur eru til einskis