- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2007

Page 2 of 2

Pokémon Pearl og Diamond til Evrópu í júlí

Nintendo hafa loksins gefið upp hvenær næstu leikir í Pokémon
seríunni vinsælu munu koma út í Evrópu. Pokémon Diamond og Pearl
munu koma út í Evrópu þann 27. júlí næstkomandi. Leikirnir eru
almennt taldir þeir allra bestu í Pokémon seríunni hingað til, með
yfir 100 pokémonum til að safna svo maður tali nú ekki um stuðning
við snertiskjá og hljóðnema DS vélarinnar. Þá geta leikmenn einnig
tengst hvorum öðrum í gegnum Wi-Fi, hvort sem það er vél-í-vél eða
yfir internetið. Bújah!

Leikirnir tveir hafa selt meira en 5 milljónir eintaka samanlagt
síðan þeir komu fyrst út í Japan í september síðastliðnum. Hann
hefur fengið glimrandi dóma hjá flestum (84% að meðaltali á Game
Rankings) svo það er við miklu að búast.

Leikurinn kemur út, eins og áður sagði, á Nintendo DS þann 27.
júlí næstkomandi. Skrifið það niður!

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Hver veit nema röð eins og þessi myndist fyrir framan BT á
útgáfudag… ha ha ha…

Valve hættir við útgáfu svarta kassans

Valve hafa tilkynnt að þeir ætli sér ekki að gefa út Black Box
útgáfuna af Half-Life 2: Episode Two, en hann átti að innihalda
Episode 2, Portal og Team Fortress 2. Í staðinn munu þeir bara gefa
út Orange Box, sem inniheldur áður nefnda leiki ásamt Half-Life 2
og Episode One.

Orange Box mun koma út á PC, Xbox 360 og PlayStation 3. Allir 5
leikirnir verða í öllum útgáfum, en PC eigendur fá þrjá mismunandi
Steam kóða: eitt fyrir Half-Life 2, annað fyrir Episode One og svo
eitt fyrir Team Fortress 2, Episode Two og Portal, og er þeim
frjálst að gera það sem þeir vilja við sína kóða, hvort sem það er
að selja þá eða gefa þá. 

Stefnt er að því að gefa Orange Box út í október á næsta ári, en
það er aldrei að vita nema það muni breytast.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Pew pew segir byssan… bara í Orange Box.

80 gígabæta útgáfa af PlayStation 3 staðfest … fyrir Suður-Kóreu

Þrálátir orðrómar hafa gengið yfir netið mánuðum saman um að
Sony hafi ætlað sér að koma á markað 80 gígabæta módeli af
PlayStation 3, en hingað til hefur það ekki verið staðfest.
Orðrómarnir spruttu fyrst upp í mars þegar Sony lagði fram umsókn
til Bandarísku samskiptanefndarinnar með upplýsingum um þetta nýja
módel.

Sony hafa loksins staðfest að orðrómarnir séu sannir því
upplýsingar um þetta nýja módel birtust á heimasíðu fyrirtækisins í
Suður-Kóreu. 80 gígabæta módelið mun koma á markað 16. júní
næstkomandi og kosta um 518.000 KWR (eða 412 evrur). Því miður hafa
talsmenn Sony í Evrópu hins vegar neitað því að þetta módel stefni
á markað í álfunni okkar… enn sem komið er.

Við látum þó ekki deigan síga því nú þegar 20 gígabæta módelið
er úr sögunni þá er aldrei að vita nema þetta nýja og stærra módel
muni birtast í hillum verslana.

Heimild: GamesIndustry.biz

Kveðja,
GameTíví

 

Ken Kutaragi við 80 gígabæta grillið sitt…

StarCraft II tilkynntur, internetið fellur í yfirlið

Blizzard Entertainment tilkynntu núna á laugardaginn að
StarCraft II væri væntanlegur. Já, þið lásuð rétt, 10 árum eftir
útgáfu eins allra besta rauntíma herkænskuleiks allra tíma er
framhald loksins komið í leitirnar. Leikurinn var afhjúpaður á
Blizzard WWI keppninni sem fór fram í Suður-Kóreu núna um helgina,
en þar í landi er leikurinn allra stærsti leikur sinnar
tegundar.

Leikurinn er fyrst og fremst byggður sem keppnisleikur, en þá
verður einnig einspilun sem heldur hinni viðamiklu og epísku
StarCraft sögu áfram. Sömu gömlu kynþættirnir úr fyrri leiknum snúa
aftur í StarCraft II en búið er að breyta og bæta öll lið. Meðal
nýjunga er að zerglings geta núna stökkbreyst í lifandi sprengjur
sem valda miklum skaða og fjöldi nýrra “kalla” hafa bæst við lið
allra kynþátta, svo sem Phase Prism hjá protoss sem geta tekið við
hlutverkum pylona (orkustöðvar sem þarf til þess að halda byggingum
gangandi), og Reapers hjá Terrans, sem hafa eldflaugapakka á bakinu
til þess að stökkva upp og niður mishæðir í landslaginu.

StarCraft II lítur mjög vel út og sver sig svo sannarlega í ætt
við fyrri leikinn. Þess má geta að aðalhönnuður leiksins er enginn
annar en Dustin Browder, en hann var einn af lykilframleiðendum
Lord of the Rings: Battle for Middle-Earth og hefur unnið að
nokkrum Command & Conquer leikjum áður.

Heimasíða leiksins er opin og getið þið nálgast ýmsar
upplýsingar um leikinn og skjáskot með því að smella hér. Engin dagsetning er komin á
leikinn en hann er þróaður fyrir PC og MAC einkatölvur.

Kveðja,
GameTíví

 

Kekekeke zerg rush ^__________________^

Dr. Kawashima snýr aftur til Evrópu

Þær fregnir hafa borist að framhaldið af heilaþjálfunarleik Dr.
Kawashima, Dr. Kawashima’s Brain Training: How Old is Your
Brain?
, muni koma út í Evrópu í sumar. Leikurinn mun heita
More Brain Training from Dr. Kawashima: How Old is Your
Brain?
og á að koma út 29. júní næstkomandi.

Brain Training serían er einhver stærsta DS serían í Japan í dag
og í Evrópu hefur fyrsti leikurinn selst í milljónum eintaka um
allan heim. Leikurinn hefur notið sívaxandi vinsælda meðal fólks á
öllum aldri.

Nýi leikurinn mun bjóða upp á nýjar heilaæfingar sem þjálfa
minni, reikningshæfileika og skynjun svo eitthvað sé nefnt. Eftir
því sem spilendur þjálfa sig meira opnast fleiri æfingar. Þá munu
meira en 100 Sudoku þrautir fylgja nýja leiknum og munu spilendur í
fyrsta skipti geta att kappi við aðra í gegnum þráðlaust net, þar
sem þeir teikna myndir af hlutum og gefa hvorum öðrum einkunn fyrir
myndirnar.

Spilendur munu svo auðvitað geta tekið próf til þess að reikna
út heilaaldur sinn.

Leikurinn kemur út, eins og áður sagði, þann 29. júní
næstkomandi.

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví