- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2007

Virtua Fighter 5 kemur á Xbox 360 í sumar, segir SEGA

Undanfarna daga hafa söluaðilar um allan heim verið að breyta
útgáfudagsetningum sínum á Virtua Fighter 5 á Xbox 360. Amazon í
Bretlandi segir 28. september, GAME segir nóvember og Gamestop
segir október.

SEGA hafa ákveðið að segja “stopp” við allri
útgáfudagavitleysunni og gert hreint fyrir sínum dyrum. “Xbox 360
útgáfan af Virtua Fighter 5 kemur út í sumar, og hana nú!” Það
þýðir væntanlega á næstu 3 mánuðum, nema að sumarmánuðir hafi
breyst eitthvað.

Litlar upplýsingar hafa verið gefnar upp um X360 útgáfuna af
leiknum, en Eurogamer komust þó að þeirri niðurstöðu að Xbox
360
útgáfan liti ekkert verr út en PS3 útgáfan
, en leikurinn er
almennt talinn einn allra flottasti leikurinn á PS3 eins og er.

Virtua Fighter 5, Xbox 360 í sumar, búið ykkur undir fyrsta
almennilega slagsmálaleikinn fyrir hina eins og hálfs árs gömlu vél
Microsoft.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

EA afhjúpar Need for Speed: ProStreet

Electronic Arts afhjúpaði í dag nýjasta leikinn í
götukappakstursseríunni Need for Speed. Nýi leikurinn mun bera
undirtitilinn ProStreet og mun koma út á PS2, PS3, PSP, PC, Xbox
360, Wii, DS og farsíma… eða með öðrum orðum öll hugsanleg tæki
að mökkum undanskildum.

Það er EA Black Box í Kanada sem mun sjá um þróun leiksins og
hafa þeir m.a. uppfært grafíkina frá NFS: Carbon talsvert, bætt
gervigreind andstæðinga svo þeir verði jafnvel harðari í horn að
taka en Vin Diesel sjálfur og svo hafa þeir bætt við nýrri tækni,
autosculpt, sem gerir leikmönnum kleyft að móta útlit og eiginleika
bílanna sinna.

Ofan á þetta allt saman kemur svo fjölspilun sem, að sögn EA,
“mun endurskilgreina meininguna á bak við samkeppnisfélagsspilun”,
hvað sem það í ósköpunum á að þýða. Aftur á móti er það þekkt hjá
framleiðendum að nota stór orð í yfirlýsingum svo þessi setning
gæti hugsanlega ekki haft neitt að segja…

Need for Speed: ProStreet stefnir á áður nefnda runu af vélum í
haust…

Kveðja,
GameTíví

Brumm brumm…

Ein vika í Fallout teaser trailerinn

Bethesda hefur birt nýjasta og jafnframt síðasta listaverkið úr
Fallout 3 í röð nokkurra sem hafa verið birt undanfarnar vikur sem
undanfarar teaser trailers fyrir þennan þriðja leik í hinni frábæru
Fallout leikjaröð (og við vitum öll að Xbox og PS2 leikurinn var
bara eitthvað sem tengdist seríunni ekki neitt, er það ekki?)

Nýja listaverkið er af Washington D.C. eftir slæma útreið
kjarnorkusprengja og lítur svo sannarlega vel út… eða ekki vel
út, fer eftir því hvernig við túlkum það. Hvernig sem því líður þá
þýðir þetta að einungis vika er í það að við fáum að sjá eitthvað
úr Fallout 3… hvort sem það verður myndskeið úr leiknum eða bara
tölvuteiknað myndbrot, þá mun maður sitja límdur við skjáinn og
slefa yfir hverju því sem mun birtast á honum… mmm…

Fylgist með á Fallout 3
síðunni

Heimild: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

 

Dark Messiah of Xbox 360

Dark Messiah of Might & Magic kom út fyrir nokkru á PC
einkatölvur og vakti ágætis athygli meðal leikjaunnenda þó svo að
hann hafi fengið ýmsa gagnrýni fyrir ótal galla sem settu svartan
blett á útgáfu hans. Leikinn má flokka undir fyrstu persónu
ævintýraskotleik þar sem leikmenn fara í hlutverk ævintýramanns sem
notar galdra, sverð og krossboga svo eitthvað sé nefnt í baráttu
sinni við óvini.

Núna hafa Ubisoft og Arkane Studios, þróunaraðili leiksins,
tilkynnt að Xbox 360 útgáfa af leiknum sé væntanleg seinna á þessu
ári. Leikurinn mun bera nafnið Dark Messiah of Might & Magic:
Elements og mun innihalda allt það sem PC útgáfan hélt ásamt
einhverju aukaefni sem er sérstaklega þróað fyrir Xbox 360
útgáfuna. Vávens.

Ekki er komin nákvæm dagsetning á leikinn.

Heimild: 1UP.com

Kveðja,
GameTíví

 

Gwoook… pew pew… kabúmm… fireball reddar öllu. Og smá
spark líka.

Nýtt

Þegar PlayStation 3 kom fyrst út, voru skoðanir á
henni æði misjafnar og mikið af því sem menn bjuggust við var
ekki að finna. 
En í dag lifum við á tímum
uppfærslna og breytingum á “firmware” tölvanna.

Í vikunni
kom út ný uppfærsla fyrir PlayStation 3 eða uppfærsla 1.80, en með
því er ljóst að PlayStation 3 hefur tekið stór stökk í því að nýta
möguleika vélbúnaðarins þegar kemur að myndvinnslu, sérstaklega
hvað varðar DVD, Blu-Ray og PlayStation 1 og 2
leiki.

Kíkjum betur á hvað þessi
uppfærsla hefur uppá að bjóða.

720p
Blu-ray og DVD uppfærsla
(upscale)
Stærsta viðbótin í þessari
uppfærslu er að nú geta Blu-ray diskar keyrt í
720p.
 
Þetta er viðbót sem hefði átt að vera
komin fyrir löngu síðan, en þessi uppfærsla gerir PlayStation 3
sambærilegan við bestu Blu-ray spilarana á markaðnum (allavega
miðað við verð).
Fyrir þá sem elska kvikmyndir þá er
þessi nýi “upscale” möguleiki sértaklega flottur þegar kemur að
venjulegum DVD myndum, en myndgæðin í þeim breytast til muna og
ljóst að myndir á borð við Star Wars Episode III og Lord of the
Rings á DVD, líta mun betur út eftir þessa uppfærslu, því það sem
fæst er myndgæði sem eru betri en í nokkrum DVD
spilara.
Í kjölfar þessarar uppfærslu
er ljóst að PlayStation 3 verður eini DVD spilarinn á mínu heimili,
sem að er gott, sérstaklega í ljósi þess að ég get minnkað
græjufjöldann undir sjónvarpinu.  Hafa ber í huga
að þessi “upscale” uppfærsla virkar aðeins hjá þeim sem nota HDMI
kapal til að tengja PS3
vélina.
 

Þessi uppfærsla 1.8 gerir
HDMI tengið á PlayStation 3 mun mikilvægara og ljóst að þeir sem
hafa þannig sjónvörp geta opnað fyrir helling af
möguleikum.  Meðal þeirra eru (tekið úr
uppfærslulýsingu Sony) :

    * [BD 1080p 24 Hz Output  (HDMI)] has been
added as an option under [BD/DVD Settings].

    * [RGB Full Range (HDMI)]  has been added
as an option under [Display Settings].

    * [Y Pb/Cb Pr/Cr Super White  (HDMI)] has
been added as an option under [Display Settings].

    * [Bit Mapping (Super Audio  CD)] has been
added as an option under [Music
Settings].

PlayStation
1 og PlayStation 2 uppfærsla
(upscale)
Uppfærsla á grafík í PlayStation 1
og PlayStation 2 leikjum er aðeins flóknari.
 

Þar eru fleiri möguleikar og þarf að finna út hvaða stilling henta
hvaða leik best.  Þannig að menn þurfa aðeins að
fikta sig áfram til að fá bestu útkomuna.  En það
er óhætt að segja að leikirnir líta mjög vel út, og má til dæmis
nefna að God of War 2 er eins og “next gen” leikur þegar hann hefur
verið upscalaður..

 

DNLA tenging 

Hér er á ferðinni
ansi mögnuð nýjung eða stuðningur við staðalinn “Digital Living
Network Alliance”.  Þetta gerir það að verkum að PS3 eigendur
geta nálgast myndir, tónlist og myndskeið sem eru á PC tölvum og
myndar beina tengingu þar á milli.  Þetta er mjög einfalt í
notkun.  Reyndar þarf að hlaða niður “client” á PC
tölvuna og mælum við með TwonkyMedia (
www.twonkyvision.com).  Þegar búið er
að hlaða niður þennan “client” skynjar PlayStation 3 tölvan
PC tölvuna og þú getur tekið allt efni þaðan og spilað það í
gegnum PlayStation 3.  En þessi möguleiki ásamt öllum
hinum færir PlayStation 3 ofar á vinsældarlistanum um
uppáhalds heimilistækið :o)

En þetta eru helsta innihald uppfærslu 1.8 á
PlayStation 3 og ljóst að Sony hefur fært sig stóru skrefi
nær því að bjóða uppá PlayStation 3 sem fullkomina
leikjatölvu og “media center”.

Kveðja,

Óli Gametivi

Verður Diablo 3 afhjúpaður á BlizzCon?

Blizzard Entertainment eru ekki síður frægir fyrir World of
WarCraft en Diablo leikina, og svo virðist sem nýjasti leikurinn í
síðarnefndu seríunni muni verða afhjúpaður fyrr en okkur grunar.
Það eru ekki nema 10 dagar síðan Blizzard afhjúpuðu StarCraft II og
því voru menn ekki að búast við fleiri tilkynningum um nýja leiki
fyrr en á næsta ári í það fyrsta, en ef við getum dregið eitthvað
af bannernum á BlizzCon
síðunni
þá megum við alveg búast við að heyra eitthvað af
nýjasta ævintýri Óttadróttins.

Á bannernum má sjá persónur úr þeim Blizzard leikjum sem verða á
sýningunni, sem fer fram 3. og 4. ágúst næstkomandi, en þegar betur
er að gáð má sjá andlit Diablo á milli blóðálfsins og protossins
hægra megin á hausnum.
Hvað væri hann annars að gera þarna ef myndi ekki koma fram á
sýningunni?

Það munu þó ekki margir af upprunalega Diablo liðinu koma nálægt
gerð næsta Diablo leiks því þeir eru meira og minna allir hættir
hjá Blizzard, og helstu stórfiskarnir eru önnum kafnir við að hanna
og þróa tölvuleikinn Hellgate: London, sem ótrúlegt en satt,
virðist ætla að verða Diablo í fyrstu persónu…

Kveðja,
GameTíví

 

Leoric Konungur úr upprunalega leiknum.. ah,
minningarnar…

Game Tíví vs Navy Seals

Fimmtudaginn 31. maí þá er síðasti þáttur fyrir sumarfrí hjá
okkur í Game Tíví, og lofum við góðum þætti, meðal þess sem við
tökum okkur fyrir hendur er að fá alvöru Navy Seal gaur til að sýna
okkur hvernig raunveruleikurinn er samanborinn við tölvuleiki
:)

Smá brot úr næsta þætti:

 

 

 

Duke Nukem Forever lifir

Það eru komin tíu ár síðan Duke Nukem Forever var fyrst kynntur
til leiks en hingað til hefur lítið spurst um leikinn. Hann hefur
verið á öllum “vaporware” listum (listi yfir hluti sem hafa verið
lengi í framleiðslu en ekkert sést úr) en endrum og eins hefur þó
komið fyrir að 3D Realms, þróunaraðilar leiksins, auglýsi eftir
stöðum og hengi við auglýsingarnar pínulítil skjáskot úr
leiknum.

Hið merkilega er að þetta gerðist aftur í gær og staðfestir það
að Duke Nukem Forever er enn í framleiðslu. Hann var fyrst
afhjúpaður árið 1997. 3D Realms leitar að umhverfishönnuði í fullt
starf, og hver veit nema þú
passir við starfslýsinguna
.

Duke Nukem Forever er í framleiðslu á PC einkatölvur og afar
líklega Xbox 360 líka. Hann mun líklega koma út einn daginn, en það
er öruggt að það verður ekki á næstunni… reynslan hefur kennt
okkur það.

Til gamans má geta að nokkrir aðilar hafa tekið saman lista yfir
leiki og atburði sem hafa gerst á undanförnum 10 árum eða hafa
tekið skemmri tíma en framleiðsla Duke Nukem Forever hefur tekið…
endilega kíkið á listann.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Lággæða skjáskot úr Duke Nukem Forever 

Chronicles of Riddick endurgerður fyrir PlayStation 3 og Xbox 360

Sierra hefur tillkynnt að leikurinn The Chronicles of Riddick:
Escape from Butcher Bay sé væntanlegur á PlayStation 3 og Xbox 360.
Leikurinn kom upphaflega út á PC einkatölvur og Xbox og vakti mikla
lukku meðal gagnrýnenda, sem töldu hann vera einhvern besta leik
sem hefur verið hannaður út frá kvikmynd.

Nýja útgáfan mun bera nafnið The Chronicles of Riddick: Assault
on Dark Athena og mun vera endurbætt útgáfa af upprunalega leiknum,
nema með bættri grafík og nýjum kafla sem mun nefnast “Dark
Athena”.

Það er sænska fyrirtækið Starbreeze Studios sem þróar leikinn,
en þeir eru þessa dagana einnig að gera leikinn The Darkness á PS3
og Xbox 360. Leikurinn mun koma út seinna á þessu ári og megum við
búast við að Vin Diesel muni snúa aftur til þess að ljá Riddick
rödd sína…

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

 

Escape from Butcher Bay vakti mikla lukku…

GTA IV fær sérstaka útgáfu…

Rockstar kynntu í gær til leiks sérstaka útgáfu af Grand Theft
Auto fyrir Xbox 360 og PlayStation 3. Þessi sérstaka útgáfa mun
kosta talsvert meira en leikir kosta yfirleitt. Í Bandaríkjunum mun
útgáfan kosta 90 dollara, en verð í Evrópu hefur ekki verið
staðfest.

Þessi sérstaka úgáfa samanstendur af málmkassa sem lítur út eins
og öryggishólf, lyklakippa sem passar við kassann, tölvuleikinn
sjálfan að sjálfsögðu, geisladisk með sérstaklega völdum lögum úr
leiknum (sem eiga víst að vera eftir einhverja svakalega merkilega
listamenn), bók með skyssum og öðrum myndverkum úr þróunarferli
leiksins og sérstökum Rockstar sjópoka. Vá.

Eins og áður hefur komið fram er ekki enn komið verð á gripinn,
en við getum búist við að það fari eitthvað yfir 10.000 kallinn hér
á landi, ef hann nær hingað það er að segja…

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Bílarán í Liberty City eru meðal efnis í næsta Grand Theft
Auto leik… merkilegt