Háværir orðrómar eru uppi um að Blizzard ætli sér að afhjúpa
StarCraft 2 á World Wide Invitational mótinu sem fer fram í
Suður-Kóreu þann 19. og 20. maí næstkomandi. Þessir orðrómar koma
frá kóreskri fréttasíðu sem segjast hafa heimildir fyrir þessu frá
Blizzard í Kóreu. Það væri vel við hæfi að tilkynna leikinn á WWI
enda er StarCraft einn mest spilaði herkænskuleikur í Suður-Kóreu
og þrátt fyrir að fjöldi annara leikja hafi reynt að hasla sér völl
í landinu á undanförnum árum.
Hvort sem þessir orðrómar eru réttir eður ei, þá hafa Blizzard
sagt í viðtali við Joystiq að þeir ætli sér að henda risastórri
tilkynningarsprengju á fjöldann þegar World Wide Invitational fer
fram. Það er þó margt sem bendir til þess að umræddur leikur sé
StarCraft 2, þar sem það hefur verið sterklega gefið í skyn áður að
hann sé í bígerð.
Stund sannleikans rennur upp 19. mars. Ef rétt reynist megið þið
búast við að geta lesið um það hér… enda ekki annað vit en að
segja frá því að besti herkænskuleikur í heimi sé
að fá framhald!
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Queen of Blades er svo sannarlega tilbúin til að halda sínum
áformum áfram…



plizz koma elska þennan leik var alltaf að lana í honum með bróðir mínum þegar ég var lítill