Á dögunum tilkynnti Sony fyrirtækið að það myndi gefa út
myndavél fyrir PlayStation 3 í sumar eða PlayStation Eye.
Ásamt því að geta notað myndavélina til að spjalla í gegnum
netið og fyrir leiki, geta notendur útbúið myndskeið og hljóðskrár
og vistað á harða diskinn. Gæðin eru þannig að í upplausninni
320 x 240 nær myndavélin 120 römmum á sekúndu og 60 römmum á
sekúndu í upplausninni 640 x 480.
Framan á myndavélinni er svo aðdráttarlinsa sem hægt er að nota
til að zoom inn og út.
Hljóðneminn er þannig gerður að hann einblínir á að ná tali og
eyðir út umhverfishljóðum og bergmáli, en þetta er gert svo menn
geta í fullum gæðum notað PlayStation Eye í stað þess að hafa
headset.
Með myndavélinni fylgir myndvinnsluforrit sem gerir notendum
kleift að eiga við myndefnið og skreyta það með allskyns
effectum.
Kveðja,
Gametíví




allt það dýra í það dýra !
Verður hægt að tengja þetta við PC?
nei því miður steini, þetta er hannað fyrir dýra draslið (ps3)
Dýrt! En ekki drasl. Mæli samt með Nintendo þar sem þeir eru búnir að GJÖR sigra PSP tölvuna. Það kemur ekki málinu við en það er gaman að segja frá því.
ok þetta er ekki drasl. þetta er alltof dýrt þessvegna sagði ég að þetta væri drasl. ég kaupi mér bara ps3 þegar hún mun kosta 49,990 kr sem verður nú eftir lángan tíma .
Já, það er góður punktur.
Hver segir að Nintendo Ds hafi “sigrað” psp?
Það hefur enginn sigrað, psp gengur nokkuð vel en DS þó enn betur…samt enginn ósigur fyrir psp!
smmála psp og ps tölvurnar eru bestar ;D
Okei, það er bara það. DS með miklu fleirri leiki en PSP og þeir eru búnir að selja svona helmingi fleiri tölvur. Á PSP en ekki DS en myndi miklu frekar í DS ef ég mætti velja núna!
Það þýðir samt ekkert að DS hafi “unnið” eitthvað…