Capcom staðfestu fyrir nokkru að Resident Evil 4 væri
væntanlegur á Nintendo Wii í sumar. Þetta er þriðja útgáfan af
leiknum sem kemur á markað, en áður hefur hann komið á GameCube og
svo á PlayStation 2 (sem skartaði aukaefni sem ekki fannst í
GameCube útgáfunni).
Nintendo Wii útgáfan mun innihalda aukaefnið sem PlayStation 2
hafði upp á að bjóða (Seperate Ways, 5 hluta smáleik sem fjallar um
tengsl Ödu Wong við Resident Evil 4) og nýjan trailer fyrir
Resident Evil: Umbrella Chronicles sem væntanlegur er á Wii seinna
á árinu. Þá mun Wii útgáfan vitaskuld styðja Wiimote og nun-chuck
stýripinnana til þess að miða, skjóta, hlaða byssurnar og höggva
mann og annan.
Resident Evil 4 Wii Edition, eins og leikurinn hefur verið
nefndur, verður gefinn út í Japan þann 31. maí næstkomandi. Þar sem
leikurinn mun ekki innihalda efni sem hefur áður verið gefið út í
Evrópu getum við búist við því að sjá hann í sumar eða í haust.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða auglýsingarmyndband fyrir
leikinn, þá hafa Capcom verið svo vænir að smella því á japönsku
síðuna sína og má finna það hér.
Heimild: Go
Nintendo
Kveðja,
GameTíví

Svona mun Resident Evil 4 koma til með að líta út á
Wii…
Nýleg comment