- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Nintendo með 124 leiki í vinnslu!

Stoppið prentvélarnar, þetta var að koma inn (fyrir helgi…)!
Samkvæmt ræðu sem Satoru Iwata flutti fyrir blaðamenn núna fyrir
helgi eru Nintendo með hvorki meira né minna en 124 tölvuleiki í
vinnslu. Þetta eru góðar fréttir því Nintendo hafa ekki gefið út
marga Wii titla hingað til, ef við teljum Virtual Console titlana
ekki með, en samkvæmt Satoru stefna 45 af þessum 124 titlum á
Nintendo Wii. Restin, 79 titlar, stefna á Nintendo DS.

Nintendo Wii á þó von á nokkrum risatitlum á þessu ári eða
snemma á næsta ári; Metroid Prime 3, Super Mario Galaxy og hinn
eftirsóknarverði Super Smash Bros. Brawl munu allir sjást á komandi
mánuðum. Þá stefnir allt í það að þetta ár verði glæst fyrir
Nintendo DS, en meðal leikja sem eiga eftir að dúkka upp í Evrópu á
komandi mánuðum eru Elite Beat Agents og DK: King of Swing DS.

Þó svo að úrvalið á Nintendo Wii virðist frekar dræmt þá ætla
þeir sér greinilega að sigla hart áfram inn í haustið því stefnt er
að því að byrja að gefa út stóra titla frá og með byrjun sumars.
Bíðum og sjáum til hvort úr þessu rætist!

Heimild: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

Solid Snake verður meðal þeirra sem munu berjast sín á milli
í Super Smash Bros. Brawl
. Fyrst þá munum við komast að
því hvort Snake eða Mario sé sterkari…

9 Responses to “Nintendo með 124 leiki í vinnslu!”


Comments are currently closed.