Ken Kutaragi, best þekktur undir heitinu “faðir PlayStation”,
hefur tilkynnt að hann ætli sér að segja starfi sínu sem forstjóri
Sony Computer Entertainment lausu frá og með júní næstkomandi. Hann
mun þó gerast heiðursformaður og verður í stöðu tækniráðgjafa, sem
mun vafalaust gagnast Howard Stringer, forstjóra og
stjórnarformanni Sony veldisins.
Kaz Hirai mun taka við stöðu Kutaragi, en hann mun jafnframt
halda áfram að starfa sem forseti Sony Computer Entertainment, en
hann tók við þeirri stöðu af Kutaragi fyrir nokkrum mánuðum.
Kutaragi er almennt viðurkenndur sem höfuðpaurinn á bak við
upprunalegu PlayStation vélina frá 1994. Samkvæmt tölum frá Sony
hafa PS1 og PS2 samanlagt selst í 200 milljónum eintaka á sínum
líftíma og selt meira en 2 milljarða leikja. Það þýðir að ef þessu
yrði dreift yfir á jarðarbúa ætti þriðji hver jarðarbúi leik á
PlayStation eða PlayStation 2. Vá!
”Ég er glaður að útskrifast frá Sony Computer
Entertainment Inc. eftir að hafa kynnt til sögunnar fjórar tölvur í
PlayStation fjölskyldunni,” sagði kappinn. “Það hefur verið
spennandi lífsreynsla að breyta heimi tölvuafþreyingar með því að
gefa saman nýjustu tækni og frjóa huga úti um allan heim. Ég geri
ráð fyrir að ég muni byggja á sama grunni í framtíðarverkefnum
mínum.”
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
みんなのGOLFをやって見ようぜ!



haha gott á jack thompson. hann fær ekki að kæra fólk um leiki.
sá var heimkur að vera að kæra alla.
það er nú ekki alltaf gaman að spila íþróttaleiki eða leiki sem eru ekki með ofbeldi.
Djöfull er grjónið ljótt!