- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Call of Duty 4 staðfestur

Activision hefur loks staðfest þann þráláta orðróm um að Call of
Duty 4 sé í vinnslu, og ekki nóg með það heldur er verkefnið í
höndum Infinity Ward og mun leikurinn gerast nær okkur í tíma, en
ekki í seinni heimsstyrjöldinni eins og fyrri leikir.

Call of Duty 4 : Modern Warfare verður afhjúpaður á laugardag í
kringum NFL draftið á ESPN, eða þegar NFL deildin er að draga inn
nýliða.

Orðrómur um leikinn segir að hann dúndri leikmönnum um allan
heim þar sem þeir taka að sér hlutverk sérsveitarmanna í Bandaríska
hernum og í hinni bresku SAS sérsveit. 

En óvinurinn er hryðjuverkamenn (surprise, surprise).

Nú er bara að belta sig niður í stólinn á laugardag og kíkja á
trailerinn..

Kveðja,
Óli Jó Gametíví


“Við erum staddir á fjórða borði í Call of Duty 4 og vitum ekkert
hvað við eigum að gera..”

4 Responses to “Call of Duty 4 staðfestur”


  • Þessi leikur verður vonandi góður eins og hinir. En mér finnst Call og Duty 1 – Finest Hour bestur, (hef ekki prufað númer 2).

    Á hvaða tölvur mun hann svo koma á? Væntanlega á PS3 og X-Box 360 en hvað með Wii???

  • á call of duty 3 á PS3 og ætla væntanlega að fá mér þennan.

  • “Við erum staddir á fjórða borði í Call of Duty 4 og vitum ekkert hvað við eigum að gera..”
    LOL!

  • etta hlitur ad vera gedveikur leikur :D verd ad fa hann thegar hann kemur

Comments are currently closed.