THQ tilkynntu í dag að eitt af krúnudjásnum þeirra,
glímuleikurinn WWE Smackdown Vs. Raw 2008, sé væntanlegur á
Nintendo DS, Wii og Sony PlayStation 3. Þessar þrjár vélar eru þó
ekki einu vélarnar sem munu fá leikinn, því fyrirtækið hefur einnig
staðfest að hann muni heimsækja PS2, PSP og Xbox 360 enn á ný.
WWE SmackDown vs. Raw serían nýtur alveg gríðarlegra vinsælda,
sér í lagi í Ameríku, en þar í landi seldust hvorki meira né minna
en 1.2 milljónir eintaka af WWE SmackDown vs. RAW 2007 frá útgáfu
(sem var í nóvember) til loka ársins 2006, en sá leikur kom
einungis út á PS2, Xbox 360 og PSP. Það má því búast við að sá
nýjastu muni seljast jafnvel enn betur, því samtals hafa selst
meira en 40 milljónir eintaka af PS3, Wii og DS úti um allan
heim.
WWE SmackDown vs. Raw 2008 mun kynna til sögunnar nýja fídusa og
jafnvel enn betri grafík en forveri hans. Ný brögð munu að
sjálfsögðu verða kynnt til leiks og svokallað “struggle submission”
kerfi mun gefa leiknum nýja dýpt.
Stefnt er að því að gefa leikinn út í haust.
Heimildir: Next Generation
Kveðja,
GameTíví

Koma að dansa?



þessi smackdown leikur verður öruglega sá allra besti
er geðveikur wwe fan ég á alla wwe leikina og´ætla 100% að fá wwe 2008
ég á alla smackdownvsraw leikina og þessi á eftir að slá öll sölu met
Ég á ps3 og x-box 360 og ætla að kaupa hann í haust takk gametíví bræður
var að fá fyrsta smackdown vs. raw leikinn minn 2006… geðveik snilld … þessi verður sonna fimm sinnum betri
Hæ ég ætlaði bara að láta ykkur vita að myndin sem þið eruð með þarna… sést ekki
Es. Hæ Teddi/nn