- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2007

Page 2 of 2

Resident Wiivil kemur í ár…

Fyrir mörgum, mörgum mánuðum tilkynntu Capcom að þeir ætluðu sér
að gefa út Resident Evil leik á Nintendo Wii. Litlar fregnir hafa
borist um hann aðrar en þær að hann muni heita Resident Evil:
Umbrella Chronicles, og muni skiptast í fjóra kafla sem tengjast
hverjum Resident Evil leik fyrir sig. Þá á hann víst að vera
svipaður í sniði og Resident Evil 4, þar sem fólk horfir yfir
öxlina á aðalpersónunni.

Chris Kohler hjá Game | Life bloggi Wired tékkaði á púlsinum á
verkefninu um daginn og komst að því að Capcom hafa alls ekki
gleymt leiknum. Þeir vildu vitaskuld ekkert segja um leikinn
sjálfan, en sögðu þó að hann muni pottþétt koma á þessu ári…

Fyrir þá sem vilja sjá alveg heilar þrjár sekúndur úr leiknum,
sem er það eina sem hefur sést úr leiknum hingað til, geta farið
inn á
þennan tengil

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Þetta skjáskot er úr Resident Evil 4, enda hefur lítið sem
ekkert sést úr Resident Wiivil…

Devil May Cry 4 ekki lengur eingöngu á PS3; kemur einnig á Xbox 360, PC

Samkvæmt nýjustu fréttum þá mun PlayStation 3 missa enn einn
“exclusive” titilinn, og hann er ekki af minni stærðargráðunni, því
Capcom hafa tilkynnt að þeir ætli sér að gefa Devil May Cry 4 út á
Xbox 360 og PC einkatölvur. Líklega munu margir kætast yfir þessu,
en þó má gera ráð fyrir því að Sony séu ekki par sáttir með þetta
því tilkynningin kemur á mjög slæmum tíma, einungis þremur dögum
fyrir útgáfu PlayStation 3 leikjatölvunnar. Þetta mun án efa koma
til með að hafa einhver áhrif á sölu á vélinni, en hversu mikil er
þó erfitt að spá fyrir um.

Einnig fylgir sögunni að hver útgáfa fyrir sig muni notfæra sér
viðkomandi vélar til hins ýtrasta. Þá hafa þeir einnig staðfest að
Xbox 360 útgáfan muni koma út á sama tíma og PlayStation 3 útgáfan,
en við getum þá væntanlega gert ráð fyrir því að PC útgáfan muni
koma einhverju síðar.

Devil May Cry 4 mun sem sagt notfæra sér allt sem “næsta
kynslóð” leikjatölva hefur upp á að bjóða, flotta grafík og allt
það, en einnig munu þeir kynna til sögunnar nýja aðalpersónu, Nero,
sem berst við gamlar persónur úr seríunni og gerir endalaus kombó
með glænýjum leikspilunarfídus, sinn öfluga “Devil Bringer”
handlegg, hvað sem það á nú að þýða.

Capcom hafa þó lítið sagt um hvenær blessaður leikurinn
kemur…

Kveðja,
GameTíví

 

Take Two kærir Jack Thompson

Lögfræðingurinn Jack Thompson er líklega frægastur fyrir að gera
hvað sem hann getur til þess að tenja tölvuleiki við ofbeldisglæpi
og reyna að stöðva útgáfu tölvuleikja í Florda-ríki í
Bandaríkjunum. Hans helsta skotmark hefur verið Take Two, en
fyrirtækið hefur gefið út nokkra af umdeildustu leikjum allra tíma,
svo sem Grand Theft Auto og Manhunt. Take Two hefur loksins fengið
upp í kok af ásökunum lögfræðingsins.

Lögfræðingurinn ætlaði að beita sér gegn útgáfu Manhunt 2 og
Grand Theft Auto IV í Florda-ríki, en Take Two kveðst ætla að
berjast með kjafti og klóm gegn Thompson og hefur því lagt fram
kæru á hendur honum fyrir að reyna ætla að stöðva dreifingu á
leikjunum tveimur. Fyrirtækið krefst þess að hann hætti ofsóknum
sínum, og fer það einnig fram á að hann greiði allan
málskostnað.

Thompson hefur að sjálfsögðu gefið út yfirlýsingu í þessu máli,
þar sem hann segist hafa Guð á sínu bandi og að bænum hans hafi
verið svarað þegar Take Two tóku þetta “stóra feilspor” og gengur
svo langt að kalla þetta “heimskulegasta bragð sem hann hefur séð
lögfræðing beita á 30 ára ferli sínum.”

Eitthvað virðist Thompson ekki sjá bjálkann í auga sínu. Það
verður skrautlegt að sjá hvernig þetta mál heldur áfram að
þróast.

Heimild: Gamasutra

Kveðja,
GameTíví

S.T.A.L.K.E.R. – Umfjöllun

Það er æði langt síðan fyrst var tilkynnt um leikinn
S.T.A.L.K.E.R. og hefur leikurinn í raun verið í framleiðslu síðan
árið 2001 og átti upphaflega að koma út 2003.  Síðan þá hafa
margir útgáfudagar verið nefndir, en nú nálgast stóra stundin, því
á föstudaginn í næstu viku eða 23.mars kemur leikurinn út..

Sjálfur sá ég kynningu á leiknum árið 2003, og þótti hann lúkka
ágætlega þá, en á þeirri kynningu fór einn af framleiðendum
leiksins hamförum og sýndi hvernig “physics” vél leiksins virkaði
og einnig sýndi hann hvernig menn gætu keyrt Lödu Sport í leiknum
(líklega eini tölvuleikurinn sem hægt er að keyra slíka
sjálfrennireið).

Nú hefur THQ fyrirtækið leyft blaðamönnum að prófa leikinn eins
og hann mun koma til með að líta út og spilast þegar hann
kemur.  Í þessari umfjöllun mun ég reyna að koma að
sjónarmiðum hinna ýmsu aðila og vona að útkoman gefi góða mynd af
því hvernig S.T.A.L.K.E.R. komi til með að verða, en við munum svo
gefa honum einkun í Gametíví eftir útgáfu.

Upphaflegi undirtitill leiksins var “Oblivion Lost”, en hann
hefur nú breyst í “Shadow of Chernobyl” og þess má geta að
framleiðendur leiksins fóru til Chernobyl og mynduðu staðinn í bak
og fyrir, þannig að það Chernobyl sem við sjáum í leiknum er byggt
að  raunveruleikanum, en rússnesk yfirvöld voru ekki hrifin af
þessu uppátæki framleiðandanna, enda er Chernobyl slysið eitt mesta
vandræðamál í sögu þess ágæta lands.

Söguþráður leiksins er frekar einfaldur.  En eins of
flestir vita varð kjarnorkuslys í Chernobyl árið 1986 þar sem allt
nærliggjandi umhverfi varð fyrir skemmdum sökum geislavirkni, en í
dag er svæðið tiltölulega öruggt þar sem búið er að loka á
uppsprettuna með mikilli steypu og dýrum hreinsunaraðgerðum. 
Í heimi leiksins verður önnur sprenging í kjarnaofninu árið 2006 og
verður svæðið aftur mengað og lokað af og kallast nú “The
Zone”.  Í kjölfarið ríkir mikil ringulreið sem ásamt
óstöðuleika í stjórnmálaástandi skiptir fólkinu uppí þrjár
fylkingar;  Herinn, Andspyrnuhreyfing og Stalkers, sem hugsa
bara um sjálfa sig.

Svæðið eða “The Zone” er geislavirk martröð, en jafnframt eru á
svæðinu mikil verðmæti.  Þetta er svæði þar sem engin lög ná
til og þeir sem búa þar gera það á eigin ábyrgð og forsendum. 
Allir hlutir sem menn finna á svæðinu taka þeir til eignar og selja
öðrum fyrir góðan pening, en það er atvinna Stalkeranna.

Leikmenn fara í hlutverk Stalker og í upphafi leiksins vakna
leikmenn upp og þjást af algjöru minnisleysi.  Þér hefur verið
bjargað af öðrum Stalker og þegar þú vaknar hefur þú aðeins eitt
verkefni inná lófatölvunni þinni, og þú manst ekkert hvernig það er
til komið.  En verkefni leiksins er að leysa verkefnið og
komast að því hver þú í raun og veru ert.

Heimur
leiksins

Veröld leiksins er 4 x 4 kílómetrar að stærð, en það er töluvert
svæði og innan þess eru aðrir Stalkerar að leysa sín verkefni, dýr
sem hafa afmyndast sökum geislunar vafra um og leita sér að æti,
þjófar fara um og reyna að ræna öllu sem hægt er og margt fleira og
fær maður tilfinningu fyrir að þetta sé mjög raunverulegt og
lifandi svæði.

Upphaflega átti leikurinn að vera algjörlega frjáls í spilun og
áttu leikmenn að geta vafrað um og ráðið sér sjálfir, en núna
spilar söguþráðurinn mikið hlutverk og heldur leiknum
gangandi.  En þó að það sé er leikurinn samt mjög opinn þannig
að menn geta gert hlutina á sinn hátt.

Í raun spilast leikurinn mjög svipað og Elder Scrolls IV :
Oblivion, enda er leiknum lýst sem blanda af fyrstu persónu
skotleik og hlutverkaleik. 

Svæðið

Í gegnum leikinn munt þú hitta fullt af persónum og samskipti
við þær eru grundvöllur leiksins.  Persónur geta látið þig
hafa ný verkefni sem bæði geta fleytt áfram söguþræðinum eða verið
aukaverkefni.  Persónur eru einnig uppspretta upplýsinga, en
þegar menn eru að elta aðra Stalkera þurfa þeir að fá upplýsinga um
ferðir þeirra og margt fleira. 

Hvernig leikmenn hafa samskipti við persónurnar hefur áhrif á
hvernig gengur í leiknum.  Herinn er alltaf óvinveittur þér,
og andspyrnuhreyfingin er yfirleitt mjög jákvæð í garð
Stalkera.  Hinsvegar skipa Stalkerar sér í fylkingar og ef þú
grillar í einum meðlimi fylkingar, þá verða hinir fúlir útí
þig.  Sumir Stalkerar vinna hinsvegar einir og það hefur engar
afleiðingar að drepa þá og hirða af þeim búnað. 

Leikmenn geta einnig átt viðskipti við persónur með hluti og
fengið pening í staðinn, en leikmenn hafa “inventory” skjámynd þar
sem þeir geta raðað hlutunum.  En passa verður að vera ekki
með of mikið því þá þreytist Stalkerinn og getur jafnvel orðið of
þreyttur til að ganga, þannig að þarna verður að finna hinn gullna
meðalveg.  Til að koma sér aftur í gírinn þarf að borða og
drekka og geta menn fundið allskyns mat og drykkjarföng, en passa
verður að fara varlega í Vodka, því menn fara að sjá tvöfalt eftir
mikla neyslu.

Geislun spilar mikið hlutverk í leiknum, en sagan segir að í
sprengingunni árið 2006 hafi partar af kjarnaofninu skotist um allt
svæðið og þegar þú flakkar um heiminn muntu sjá svæði sem hafa
orðið illa úti og innihalda mikla geislun, en þegar þú labbar inná
þessi svæði byrjar það að hafa áhrif á sjón og hreyfigetu, og ef
menn fara of nálægt muntu verða fyrir eitrun af völdum geislanna
sem leiðir til þess að þú missir heilsu jafnt og þétt.  Þannig
að menn verða að reyna að finna sér leið í gegnum svæðin með því að
sneiða framhjá geilsavirkninni. 

Í leiknum geta leikmenn fengið fjölda vopna og geta borið eins
mörg og þeir vilja, en passa verður uppá að Stalkerinn verði ekki
of þreyttur.

Það er ljóst að ef THQ hefur náð að eyða út öllum böggum og gera
leikinn 100%, þá er klárt að S.T.A.L.K.E.R. verður einn af leikjum
ársins 2007…og hin langa bið hefur verið þess virði.

Kveðja,

Óli Jó – Gametíví

Enginn sameiginlegur vinalisti fyrir Wii leiki

Nintendo virðast ekki vera að átta sig á því hvernig þeir eiga
að gera netþjónustuna eins þægilega og mögulegt er því svo virðist
sem þeir ætli sér að taka upp netþjónustu Nintendo DS sem fordæmi
þegar það kemur að vinalistum. Í viðtali Falafelkid, sem rekur sína
eigin Nintendo-tengda fréttasíðu, segir ónefndur starfsmaður
GameSpy að Nintendo hafi kosið að hafa einn vinakóða með hverjum
leik.

Það sem þetta þýðir að til þess að geta spilað með vinum sínum
yfir netið í gegnum Wii þurfa notendur að bæta vinakóða vina sinna
í hverjum leik fyrir sig. Þetta kerfi hefur mörgum þótt vera ansi
mikill galli, enda bæði seinvirkt og pirrandi.

Fyrsti netleikurinn á Nintendo Wii verður Pokémon Battle
Revolution, en hann kemur út 25. júní næstkomandi í Ameríku. Ekki
er kominn staðfestur útgáfudagur á leikinn í Evrópu.

Heimild: Wii: Devinitive
speculation

Kveðja,
GameTíví

 

Þessi var sko ekki sáttur þegar hann las þessa
frétt…