- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Microsoft staðfestir (loksins) nýja týpu af Xbox 360

Microsoft hafa loksins loksins staðfest þrálátan orðróm um nýja
týpu af Xbox 360 leikjavélinni, en orðrómar um að þeir hafi ætlað
sér að gefa út nýtt módel hafa gengið eins og stormsveipar um
netið, og myndir sem hafa lekið af vélinni nokkrum sinnum hafa
lítið hjálpað við að stoppa þennan orðróm.

Í fyrstu var talið að nýja módelið, sem hefur fengið nafnið
Xbox 360 Elite, yrði einungis til í svörtu í takmarkaðan
tíma, eða þangað til fyrsta upplag væri uppselt, en núna hafa
Microsoft staðfest að vélin verði þriðja gerðin af vélinni sem muni
verða sett á markað og að hún muni áfram standast til boða eftir að
fyrsta sending hefur gengið út. Xbox 360 Elite verður
svört, þvert á hvíta lúkkið sem Xbox 360 Premium og
Xbox 360 Core hafa staðið fyrir frá því að þær komu fyrst
á markað í nóvember 2005, og mun hún hafa það fram yfir hinar
týpurnar að í henni verður 120 gígabæta harður diskur og aftan á
henni mun vera útgangur fyrir HDMI snúru fyrir þá sem vilja notfæra
sér slíkt tengi.

Samhliða Xbox 360 Elite mun Microsoft svo gefa út
aukahluti í svörtu, sem vitaskuld munu virka jafnt með
Xbox 360 Elite sem og hinum týpunum. Þeir hafa þó ákveðið
að innbyggja ekki WiFi sendir í vélina líkt og keppinautarnir gera
og hafa sagt að þeir vilji að viðskiptavinir geti valið um hvað
þeir hafa með vélinni.

Búist er við að vélin muni kosta um 479.99 evrur í Evrópu, en
það þýðir að hún muni líklega koma til með að kosta um það bil
57.000 krónur hér á landi þegar hún loksins kemur í verslanir.
Búist er við að Xbox 360 Elite verði komin í verslanir
vestanhafs þann 29. apríl næstkomandi, en ekki er komin dagsetning
á útgáfu vélarinnar í Evrópu.

Heimild: Joystiq.com

Kveðja,
GameTíví

Ég er löng og mjó og svört, lalalala…

9 Responses to “Microsoft staðfestir (loksins) nýja týpu af Xbox 360”


Comments are currently closed.