Published in Uncategorized
.
John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sagt að nýjasta
leikjavél Sony, PlayStation 3, muni ekki vera leyfð innan veggja
breskra fangelsa. Ákvörðun um þetta var tekin í desember árið 2005
og mun ástæðan vera þráðlaust net tölvunnar, sér í lagi
tengimöguleikar vélarinnar við PSP leikjatölvuna.
Breskir fangar munu því ekki fá að njóta tölvuleikja á borð við
Motorstorm eða Resistance: Fall of Man, en þeir geta þó haldið
áfram glæpastarfsemi sinni því eins og allir vita mun GTA IV einnig
koma út á Xbox 360.
Þess má annars geta að PlayStation 3 er ekki fyrsta leikjatölvan
til þess að verða bönnuð úr breskum fangelsum. Í fyrra þurfti að
banna PlayStation 2 í breskum fangelsum vegna óhóflegs áhorfs
breskra fanga á klám með hjálp vélarinnar.
Heimild: Next Generation
Kveðja,
GameTíví

“
“
Published in Uncategorized
.
THQ tilkynntu í dag að eitt af krúnudjásnum þeirra,
glímuleikurinn WWE Smackdown Vs. Raw 2008, sé væntanlegur á
Nintendo DS, Wii og Sony PlayStation 3. Þessar þrjár vélar eru þó
ekki einu vélarnar sem munu fá leikinn, því fyrirtækið hefur einnig
staðfest að hann muni heimsækja PS2, PSP og Xbox 360 enn á ný.
WWE SmackDown vs. Raw serían nýtur alveg gríðarlegra vinsælda,
sér í lagi í Ameríku, en þar í landi seldust hvorki meira né minna
en 1.2 milljónir eintaka af WWE SmackDown vs. RAW 2007 frá útgáfu
(sem var í nóvember) til loka ársins 2006, en sá leikur kom
einungis út á PS2, Xbox 360 og PSP. Það má því búast við að sá
nýjastu muni seljast jafnvel enn betur, því samtals hafa selst
meira en 40 milljónir eintaka af PS3, Wii og DS úti um allan
heim.
WWE SmackDown vs. Raw 2008 mun kynna til sögunnar nýja fídusa og
jafnvel enn betri grafík en forveri hans. Ný brögð munu að
sjálfsögðu verða kynnt til leiks og svokallað “struggle submission”
kerfi mun gefa leiknum nýja dýpt.
Stefnt er að því að gefa leikinn út í haust.
Heimildir: Next Generation
Kveðja,
GameTíví

Koma að dansa?
Published in Uncategorized
.
Published in Uncategorized
.
Farið í sparifötin og smellið poppinu í örbylgjuna, því kl. 10 í
kvöld á íslenskum tíma verður frumsýnt myndband úr leiknum GTA IV,
en eflaust verður þetta einn af stærstu leikjum ársins..
Slóðin á myndbandið er : http://www.rockstargames.com/IV/
Kveðja,
Gametíví
Published in Uncategorized
.
Microsoft hafa loksins loksins staðfest þrálátan orðróm um nýja
týpu af Xbox 360 leikjavélinni, en orðrómar um að þeir hafi ætlað
sér að gefa út nýtt módel hafa gengið eins og stormsveipar um
netið, og myndir sem hafa lekið af vélinni nokkrum sinnum hafa
lítið hjálpað við að stoppa þennan orðróm.
Í fyrstu var talið að nýja módelið, sem hefur fengið nafnið
Xbox 360 Elite, yrði einungis til í svörtu í takmarkaðan
tíma, eða þangað til fyrsta upplag væri uppselt, en núna hafa
Microsoft staðfest að vélin verði þriðja gerðin af vélinni sem muni
verða sett á markað og að hún muni áfram standast til boða eftir að
fyrsta sending hefur gengið út. Xbox 360 Elite verður
svört, þvert á hvíta lúkkið sem Xbox 360 Premium og
Xbox 360 Core hafa staðið fyrir frá því að þær komu fyrst
á markað í nóvember 2005, og mun hún hafa það fram yfir hinar
týpurnar að í henni verður 120 gígabæta harður diskur og aftan á
henni mun vera útgangur fyrir HDMI snúru fyrir þá sem vilja notfæra
sér slíkt tengi.
Samhliða Xbox 360 Elite mun Microsoft svo gefa út
aukahluti í svörtu, sem vitaskuld munu virka jafnt með
Xbox 360 Elite sem og hinum týpunum. Þeir hafa þó ákveðið
að innbyggja ekki WiFi sendir í vélina líkt og keppinautarnir gera
og hafa sagt að þeir vilji að viðskiptavinir geti valið um hvað
þeir hafa með vélinni.
Búist er við að vélin muni kosta um 479.99 evrur í Evrópu, en
það þýðir að hún muni líklega koma til með að kosta um það bil
57.000 krónur hér á landi þegar hún loksins kemur í verslanir.
Búist er við að Xbox 360 Elite verði komin í verslanir
vestanhafs þann 29. apríl næstkomandi, en ekki er komin dagsetning
á útgáfu vélarinnar í Evrópu.
Heimild: Joystiq.com
Kveðja,
GameTíví

Ég er löng og mjó og svört, lalalala…
Published in Uncategorized
.
Svo virðist sem Bretar geti ekki fengið nóg af Nintendo DS því
samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Chart-Track hafa selst hvorki
meira né minna en 3 milljónir eintaka af vélinni þar í landi, en
það þýðir að um 20. hver Breti eigi Nintendo DS. Eða við getum sagt
að DS sé til á fimmta hverju bresku heimili. Hvernig sem því um
líður, þá virðist vélin njóta alveg ágætis vinsælda.
Hún er þó ekki einungis að gera það gott í Bretlandi því á
heimsvísu hefur vélin selst í meira en 35
milljónum eintaka, þar af um 11 milljónir í Evrópu einni saman (til
og með 31. desember 2006). Á sama tíma hafa Sony
sent 24 milljónir PSP véla í verslanir á
heimsvísu. Þó svo að stríðinu á milli vélanna tveggja sé síður en
svo lokið þá ætti þetta að segja sitt hvað um þróun mála á næstu
árum.
Nú er einmitt kjörið tækifæri til þess að festa kaup á gripnum,
en í bara í mars komu klassatitlar á borð við Castlevania: Portrait
of Ruin, Phoenix Wright: Justice For All, Mario Vs. Donkey Kong w2:
March of the Mini og meðal væntanlegra eru DS útgáfan af
herkænskuleiknum Settles, ævintýraleikurinn Hotel Dusk: Room 215 og
endurgerðin af Final Fantasy III.
Heimild: Eurogamer.net
Kveðja,
GameTíví
Eins og sjá má á þessari mynd voru Shigeru Miyamoto og
Satoru Iwata
glaðir yfir fréttunum góðu.
Published in Uncategorized
.
Samkvæmt fyrirtækinu Chart-Track sem fylgist með sölu á
leikjatölvum og leikjum í Bretlandi og er eitt virtasta á sínu
sviði, er PlayStation 3 sú leikjatölva sem selst hefur hraðast
allra útgáfuhelgina í Bretlandi eða 165,000 eintök fyrstu 2
dagana.
Þetta gerir PlayStation 3 að þeirri leikjatölvu sem selst hefur
hvað hraðast í sögunni, og sló þar með út met sem Wii setti eða
105,000 vélar og Xbox 360 sem seldist í 70,000 eintökum.
Á Íslandi varð PlayStation 3 mest selda leikjatölva allra tíma
útgáfuhelgina og sló þar út bæði PlayStation 2 (sem þegar hefur
selst í meira en 40.000 eintökum á Íslandi) og PlayStation
1, einnig Nintendo Wii og Xbox 360.
Kveðja,
Gametíví

Hún lúkkar eins og samlokugrill, enda selst hún eins og heitar
lummur…
Published in Uncategorized
.
Nýjustu fregnir herma að THQ ætli sér að gefa út framhald af
Seinni Heimsstyrjaldar herkænskuleiknum Company of Heroes. Þetta
fullyrðir ritstjóri tímaritsins Games for Windows, en hann segir að
þeir ætli sér að birta upplýsingar um leikinn í maíheftinu.
Í Company of Heroes stjórnar maður herdeild sem kallast Able
Company. Maður fylgir herdeildinni frá því að hún lendir á Omaha
strönd í Normandy á D-Day, 6. júní 1944 og ferðast svo inn í
Frakkland og berjast við nasista, eins og maður á til að gera í
leiknum sem yfir höfuð gerast í seinni heimsstyrjöldinni. Það kæmi
því ekki á óvart ef framhaldið fjallaði um áframhaldandi átök Able
Company við nasista í Evrópu…
Ef framhaldið verður jafn gott og forveri hans, þá megum við
búast við klassagóðum herkænskuleik, aftur, enda oft talað um að
rauntíma herkænskuleikir sé ansi stöðnuð gerð tölvuleikja. Bíðum og
vonum!
Heimild: Eurogamer.net
Kveðja,
GameTíví

Published in Uncategorized
.
Electronic Arts kynntu í dag nýjan partíleik fyrir Wii.
Leikurinn er dans- og ryþmaleikur þar sem spilendur geta skapað
sínar eigin persónur og svo notað hreyfiskynjarann til þess að búa
til dansa og hreyfingar í eigin tónlistarmyndböndum.
“Við erum að skapa eitthvað nýtt og frábrugðið sem
leikjaspilendur á öllum aldri hafa gaman að; hinn fullkomna
partípakka þar sem fólk getur sungið og dansað,” sagði Alan Tascan,
framkvæmdastjóri EA Montreal.
Electronic Arts hafa þó lítið viljað tjáð sig um hvernig
leikspilun mun nákvæmlega fara fram, en við gerum fastlega ráð
fyrir að þetta verði leikur sem ekki er mælt með að fólk spili
sitjandi.
Fyrstu skjáskotin eru þó komin, og má m.a. skoða
þau á heimasíðu
Eurogamer.
Heimild: Eurogamer.net
Kveðja,
GameTíví
Published in Uncategorized
.
Það þarf líklega ekki að minna fólk á þetta, en það er þó betra
að gera það en ekki. PlayStation 3 leikjavélin frá Sony mun lenda í
íslenskum verslunum á morgun, og eru tvær þeirra jafnframt búnar að
staðfesta að opið verði á miðnætti fyrir þá sem geta ekki beðið, en
það eru MAX og BT í Skeifunni.
Upphaflega var áætlað að þrjátíu leikir myndu lenda í hillum
verslana, en nú hefur komið í ljós að sjö leikjum hafi verið
frestað. Splinter Cell: Double Agent er frestað um eina viku, The
Elder Scrolls IV: Oblivion hefur verið frestað um mánuð, til 27.
apríl, og Ghost Reacon Advanced Warfighter 2 mun ekki koma fyrr en
í júní. Þá Hafa F.E.A.R., NBA 2k7, Untold Legends og Rainbow Six:
Vegas einnig fengið nýja útgáfudaga.
Þá er það stóra spurningin: Hverjir ætla að fá sér hana strax og
hverjir ætla að bíða?

Nýleg comment