Líklega hafa sumir verið að bíða eftir góðri ástæðu til þess að
kaupa sér Xbox 360, og hver veit nema Microsoft gefi eina slíka
bráðlega. Margir hafa kvartað sáran undan því hversu lítill harði
diskurinn sem fylgir premium pakkanum er og aðrir hafa kvartað
undan því að ekki að þótt vélin styðji núna fulla háskerpuupplausn
(1080p) þá vanti enn HDMI tengi aftan á vélina.
Það hafa verið þrálátir orðrómar um að ný útgáfa af Xbox 360 sé
í bígerð undanfarna mánuði sem inniheldur bæði stærri harðan disk
og HDMI tengið og nú virðist sem eitthvað sé að skýrast í
þeim málum. Fréttamiðlarnir 1UP og Game Informer hafa verið að
skrifa um þetta mál undanfarna daga. Segir 1UP að ástæðan á bak við
nýlegri lækkun Microsoft á viðmiðunartölum Xbox 360 sendinga út í
heim sé að þeir séu að rýma fyrir nýju módeli. Game Informer gekk
lengra í þessu máli og fékk staðfestingu frá nokkrum söluaðilum
vestanhafs um að nýr pakki sé væntanlegur 1. maí næstkomandi.
Þetta nýja Xbox 360 módel á að innihalda 120GB harðan disk og
HDMI tengi og á að kosta 479,99 dollara, en það er um 20 dollurum
minna en PS3 með 20GB hörðum disk kostar úti. Þannig munu Microsoft
finna sér höggstað á andstæðing sínum og hugsanlega nappa til sín
kúnna sem áður höfðu verið að spá í PlayStation.
Lítið hefur þó heyrst af því hvenær þetta nýja módel kemur til
Evrópu. Microsoft hafa reyndar sjálfir neitað að tjá sig um þetta
mál og vilja ekkert staðfesta í þessum efnum. Ef þetta reynist rétt
munum við líklega heyra meira á næstu mánuðum.
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví








Nýleg comment