- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


…og enn af Wing Commander

Við sögðum frá því í gær að Electronic Arts hefði í hyggju að
endurvekja Wing Commander seríuna gömlu með nýjum leik, Wing
Commander Arena. Þeir hafa nú staðfest þetta og gott betur, gefið
út lýsingu á leiknum. Leikurinn stefnir á Xbox Live Arcade og mun
aðallega einblína á fjölspilun.

Allt að 16 manns geta spilað á móti hvor öðrum í leiknum í bæði
liðaleikjum sem og “free-for-all” leikjum, þar sem allir spila gegn
öllum. Ásamt þessum tveimur leikjahömum verður einnig hægt að spila
í einspilun og einn á móti einum.

Wing Commander Arena er geimbardagaleikur þar sem fólk getur
flogið um í sérsniðnum geimskipum og skotið geislum, tundurskeytum
og þyngdaraflssprengjum að óvinum sínum.

Heimild: Yahoo! Finance

Kveðja,

GameTíví

1 Response to “…og enn af Wing Commander”


  • getur einhver sagt mér hvernig ég á að vinna missionið Madd dog í grand theft auto san andreas hann hoppir alltaf niður áður en ég næ í trukin

Comments are currently closed.