Svo virðist sem fulltrúar Nintendo séu ekki alveg sammála því
hvað sé að gerast með GameCube. Við nefndum það í gær að Perrin
Kaplan, einn af yfirmönnum Nintendo í Ameríku, hefði sagt að
framleiðslu á GameCube hefði verið hætt og að sama gilti um þróun á
nýjum GameCube leikjum.
En bíðum nú við: Nintendo í Bretlandi vill ekki staðfesta þetta.
Þvert á móti vilja þeir meina að vélin sé enn í framleiðslu, og það
sama gildi um leiki fyrir vélina.
Við getum haldið okkur við útskýringar Bretans um sinn… en
miðað við hvernig fyrrum GameCube leikir, eins og t.d. Super Paper
Mario, hafa fært sig um sess, þá getur ekki verið langt í það að
framleiðslan hætti endanlega. Það er spurning hvort Kaplan greyið
lifi í framtíðinni?
Heimild: Eurogamer.net
Kveðja,
GameTíví

Bíddu, voru batteríin í Wii fjarstýringunum endurhlaðanleg?
Hmm…



sögðuð í þættinum gametivi.blog.central.is en náttlega það er ekki rétt blog.central.is/gametivi þarf að gera næst.
það er líka hægt að skrifa gametv.blogcentral.is…
tad er snura i tölvuna, tarfiki batteri! i a v i tölvunni i svitjod=/