Einhver frægasti andstæðingur tölvuleikja (sérstaklega ef þeir
innihalda ofbeldi) er hinn geðgóði stuðbolti Jack Thompson, en hann
hefur barist ötullega gegn leikjum á borð við GTA og Bully.
Fyrir stuttu gáfu Rockstar fyrirtækið út þá tilkynningu að þeir
væru að vinna að Manhunt 2 leiknum, en sá fyrri er einhver sá
hrottalegasti sem komið hefur út í heimi tölvuleikja.
Nú hefur Jack Thompson biðlað til smásala í Bretlandi að selja
ekki leikinn, en þar í landi var Manhunt 1 kennt að hluta til um
mannsmorð. En athyglisverðast er að enn og aftur er Jack
Thompson að mótmæla einhverju sem hann veit ekki nákvæmlega hvernig
verður..
En eins og menn muna er Bully leikurinn ekki næstum því eins
umdeildur og ofbeldisfullur og menn héldu í fyrstu, en það stöðvaði
ekki Jack kallinn í að röfla.
Það er spurning hvort að Rockstar fari ekki bara að ráða Jack
Thompson sem Markaðs- og blaðafulltrúa sinn, þar sem hann auglýsir
alla leiki fyrirtækisins löngu áður en þeir koma út.
Kveðja,
Óli Jó
Gametíví

Jack Thompson í góðum gír…það ætti að setja aldurstakmark á þessa
hárgreiðslu..



Hryðjuverkamaður gegn tölvuleikjum. Alveg klárlega!
æjj .. karlgreyið hefur bara ekkert betra að gera .. hann er ekkert hryðjuverkamaður fyrir það -,-°
fólk með vit í kollinum tekur fólk eins og hann ekki alvarlega. Enda ætti hann að vita betur en að gagnrýna ehvað sem hann hefur ekki hundsvit á.
http://arstechnica.com/news.ars/post/20051019-5458.html
Þessi maður er endalaus skíthæll
já hæ þarna vill að það komi fram að árið 2007 einhvertíman í sumar kémur útt nýr gta leikur bara á PS3 bara svona að það komi fram
GRAND THEFT AUTO: CHICAGO
27.02.2007 14:17:23 / Örninn /
Örninn skrifaði
http://arstechnica.com/news.ars/post/20051019-5458.html
Þessi maður er endalaus skíthæll
HAHAHAHAHA skrítð að hann sé ekki tekkin alvarlega!
Djöfull væri ég til í að ganga með hans börn…
hann er bara eitt stórt asna rassgat
okay ég kem með mitt comment
það fólk sem sviðsetur morð sín á borð við tölvuleiki á eitthvað bágt…meina…eins og ég heyrði um árið að einhver hafi stolið bíl,keyrt yfir fólk og sitthvað fleira því var líkt við gta…eða held ég samkvæmt þeim sem “framdi glæpinn”
en já fólk sem verður að prufa það sem gert er í leikjum á ekki að spila tölvuleiki
leikir með t.d. fjöldamorðum eru gerðir svo fólk þurfi ekki að gera þessa hluti í alvöru þannig að ég álít leiki sem skemmtun og afþreyingu.
hahaha
jáw,, það á að setja aldurstakmark á hárið XD