- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2007

Demo af Command & Conquer 3 Tiberium Wars er komið út

EA Los Angeles hefur
sett prufu af Command & Conquer 3 Tiberium Wars á
netið.

Prufan inniheldur
:

Eina
kennsluherferð

  • Tvær herferðir úr
    söguþræði leiksins með myndskeiðum
  • Fjölspilunarborð með
    mismunandi erfiðleikastillingum
  • Sýnishorn úr leiknum
    þar sem flestir leikarar hans koma fram, en þar á meðal eru Tricia
    Helfer, Josh Holloway, Joe Kucan, Michael Ironside, Jennifer
    Morrison, Billy Dee Williams og Grace Park.

 

Prufuna má nálgast á
eftirfarandi slóð :

http://www.commandandconquer.com/intel/default.aspx?id=25 


Nú er það svart…eða öllu heldur grænt…Tiberium útúm
allt…

Jack Thompson ræðst á Manhunt 2

Einhver frægasti andstæðingur tölvuleikja (sérstaklega ef þeir
innihalda ofbeldi) er hinn geðgóði stuðbolti Jack Thompson, en hann
hefur barist ötullega gegn leikjum á borð við GTA og Bully.

Fyrir stuttu gáfu Rockstar fyrirtækið út þá tilkynningu að þeir
væru að vinna að Manhunt 2 leiknum, en sá fyrri er einhver sá
hrottalegasti sem komið hefur út í heimi tölvuleikja.

Nú hefur Jack Thompson biðlað til smásala í Bretlandi að selja
ekki leikinn, en þar í landi var Manhunt 1 kennt að hluta til um
mannsmorð.  En athyglisverðast er að enn og aftur er Jack
Thompson að mótmæla einhverju sem hann veit ekki nákvæmlega hvernig
verður..

En eins og menn muna er Bully leikurinn ekki næstum því eins
umdeildur og ofbeldisfullur og menn héldu í fyrstu, en það stöðvaði
ekki Jack kallinn í að röfla.

Það er spurning hvort að Rockstar fari ekki bara að ráða Jack
Thompson sem Markaðs- og blaðafulltrúa sinn, þar sem hann auglýsir
alla leiki fyrirtækisins löngu áður en þeir koma út.

Kveðja,

Óli Jó
Gametíví


Jack Thompson í góðum gír…það ætti að setja aldurstakmark á þessa
hárgreiðslu..

 

Empire Earth III staðfestur

Óvæntur glaðningur beið í pósthólfum þeirra sem vel fylgjast með
nýjustu fregnum í leikjaheiminum, en Sierra sendi í morgun út
tilkynningu um að nýs leiks væri að vænta í hinni vinsælu Empire
Earth seríu. Þetta ættu að vera góðar fréttir fyrir alla aðdáendur
seríunnar.

Að sögn Sierra mun leikurinn bylta rauntímaherkænskuleikjum, en
spilendur munu berjast ekki berjast fyrir yfirráðum lítils
landsvæðis heldur jarðarinnar allrar. Þá mun leikurinn einnig bjóða
spilendum að halda her sínum eftir bardaga, en upp á þetta hefur
ekki verið boðið í öðrum sambærilegum leikjum.

Empire Earth III er þróaður af Mad Doc Software, sömu aðilum og
gerðu Empire Earth II. Stefnt er að því að gefa leikinn út á PC
næsta haust.

Kveðja,

GameTíví

NoA: “GameCube ekki lengur í framleiðslu”, NoUK: “Jánei?”

Svo virðist sem fulltrúar Nintendo séu ekki alveg sammála því
hvað sé að gerast með GameCube. Við nefndum það í gær að Perrin
Kaplan, einn af yfirmönnum Nintendo í Ameríku, hefði sagt að
framleiðslu á GameCube hefði verið hætt og að sama gilti um þróun á
nýjum GameCube leikjum.

En bíðum nú við: Nintendo í Bretlandi vill ekki staðfesta þetta.
Þvert á móti vilja þeir meina að vélin sé enn í framleiðslu, og það
sama gildi um leiki fyrir vélina.

Við getum haldið okkur við útskýringar Bretans um sinn… en
miðað við hvernig fyrrum GameCube leikir, eins og t.d. Super Paper
Mario, hafa fært sig um sess, þá getur ekki verið langt í það að
framleiðslan hætti endanlega. Það er spurning hvort Kaplan greyið
lifi í framtíðinni?

 Heimild: Eurogamer.net

Kveðja,

GameTíví

Bíddu, voru batteríin í Wii fjarstýringunum endurhlaðanleg?
Hmm…

…og enn af Wing Commander

Við sögðum frá því í gær að Electronic Arts hefði í hyggju að
endurvekja Wing Commander seríuna gömlu með nýjum leik, Wing
Commander Arena. Þeir hafa nú staðfest þetta og gott betur, gefið
út lýsingu á leiknum. Leikurinn stefnir á Xbox Live Arcade og mun
aðallega einblína á fjölspilun.

Allt að 16 manns geta spilað á móti hvor öðrum í leiknum í bæði
liðaleikjum sem og “free-for-all” leikjum, þar sem allir spila gegn
öllum. Ásamt þessum tveimur leikjahömum verður einnig hægt að spila
í einspilun og einn á móti einum.

Wing Commander Arena er geimbardagaleikur þar sem fólk getur
flogið um í sérsniðnum geimskipum og skotið geislum, tundurskeytum
og þyngdaraflssprengjum að óvinum sínum.

Heimild: Yahoo! Finance

Kveðja,

GameTíví

Nintendo hættir framleiðslu á GameCube

Þá er það staðfest. Fjólublái kubburinn er horfinn af yfirborði
jarðar. Eða næstum því. Perrin Kaplan staðfesti í viðtali við
GameDaily að Nintendo væri ekki lengur að framleiða GameCube vélar
og að Nintendo muni ekki gefa út fleiri leiki á vélina.

Nintendo eiga þó víst nóg af vélum til þess að selja þeim sem
vilja frekar fá sér leikjakubb en Nintendo Wii og munu halda áfram
að senda vélina í verslanir á meðan birgðir endast. En fyrir hina
sem ætla að fá sér Wii frekar en GameCube, þá er hægt að spila
GameCube leiki á Wii, svo óttist ei!

Heimild: Joystiq

Kveðja,

GameTíví

Wing Commander vaknar upp til lífsins – á Xbox 360

Hver man ekki eftir Wing Commander? Og nei, þá erum við ekki að
tala um þá hryllilegu kvikmynd sem gerð var eftir leikjunum. Wing
Commander var aðalstálið þegar kom að geimbardögum, og Wing
Commander III og þeir leikir sem komu eftir á höfðu meira að segja
gamla geimgengilinn Mark Hamill í broddi fylkingar í hlutverki
Christopher “Maverick” Blair. Síðasti Wing Commander leikur kom út
fyrir 10 árum, en það var leikurinn Wing Commander: Prophecy (sem
að vísu kom í GBA útgáfu árið 2003).

Svo virðist sem þessi sería sé að vakna til lífsins því á
heimasíðu ESRB er leikur að nafni “Wing Commander Arena” listaður
yfir væntanlega leiki, og er hann skráður í útgáfu hjá Electronic
Arts.

Þá eru það stóru spurningarnar: Verður leikurinn í anda gömlu
leikjanna? Eða ætlar EA að hagræða leiknum til þess að koma honum
inn á Xbox Live Arcade? Munum við sjá gömlu leikarana í hlutverkum
eða verða kannski engin myndbönd? Og hver í ósköpunum mun þróa
leikinn?

Það eina sem við getum gert er að bíða eftir að EA leysi frá
skjóðunni og fari að segja okkur eitthvað…

Heimild: Eurogamer.net

Kveðja,

GameTíví

\"\"

“Ég veit ekki hvort mér líkar betur við: X-wing eða þennan
fallega Wing Commander búning…”

Teenage Mutant Ninja Turtles demó er komið á PC

Orðið á götunni er að nú sé hægt að nálgast PC demó fyrir
væntanlegan Teenage Mutant Ninja Turtles leik. Leikurinn er þróaður
af Ubisoft og mun koma út á nær allar tölvur, að PS3 undanskilinni,
þann 23. mars næstkomandi.

Í demóinu er hægt að spila Michaelangelo, Donatello og Leonardo
með öllum þeirra ninja-brellum og vonandi verður einnig eitthvað af
pizzum fyrir kauðana að éta svo þeir hafi kraftinn í að hrópa
“cowabunga!” eins og þeim einum er lagið.

Leikurinn kemur einungis viku fyrir útgáfu
tölvuteiknimyndarinnar sem hann er byggður á, en samkvæmt IMDB mun
myndin verða frumsýnd 30. mars næstkomandi hér á landi.
Cowabunga!

Demóið má m.a. nálgast á 3dgamers.com
og vegur um 250 megabæt.

Heimild: Eurogamer.net

Kveðja,

GameTíví

Tölvuleikir gera betri skurðlækna

Hver segir að tölvuleikir séu ekki til góðs? Samkvæmt nýrri
rannsókn sem fram fór í New York þá hafa tölvuleikir áhrif á
skurðlækna sem vinna með nákvæmnistæki eins og ljósatúbur og örsmáa
skurði sem krefjast lítilla tækja og nota einungis sjónvarp til
þess að framkvæma.

Það voru 33 læknar á Beth Israel Medical Center í New York sem
tóku þátt í rannsókninni. 9 læknar höfðu spilað tölvuleiki að
minnsta kosti 3 tíma í hverri viku en þeir voru með 37% færri
villur, framkvæmdu 27% hraðar og fengu 42% hærri stigafjölda í
prófum en þeir 15 skurðlæknar sem höfðu aldrei spilað tölvuleiki.
Fyrri rannsóknir höfðu sýnt fram á að tölvuleikir höfðu jákvæð
áhrif á fínhreyfingar og innsæi en engu að síður kom niðurstaðan
rannsakendum skemmtilega á óvart.

Samkvæmt einum skýrslugerðarmanninum gætu tölvuleikir verið
hjálpsöm viðbót við þá kennslu sem skurðlæknar fá nú þegar. En
þetta þýðir vitaskuld ekki að tölvuleikir séu eitthvað töframeðal
og hjálpi hverjum sem er að komast í gegnum læknaskólann. Fólk þarf
vitaskuld að læra vel fyrir það eins og hvert annað.

En hver veit, kannski gæti skurðlæknaleikurinn Trauma Center á
Nintendo DS eða Wii orðið einhverjum skurðlæknum til gagns við að
bæta sig, þó svo að leikurinn útskrifi þá ekki.

Heimild: Eurogamer.net

Kveðja,

GameTíví

Skyldi Nintendo DS vera hentugt kennslutæki í
skurðlækningum?

Halo 3 útgáfa staðfest – kemur í haust!

Þetta hefur reyndar legið svolítið í loftinu undanfarið, en
Bungie hafa staðfest að Halo 3, þriðji og líklega síðasti leikurinn
í Halo seríunni, muni koma út núna í haust. Á næstunni munum við
svo fá að sjá meira úr og heyra meira um Halo 3, samkvæmt því sem
Bungie segir á heimasíðu sinni, en risastór markaðsherferð er að
fara í gang.

Þeir sem hafa áhuga á að taka forskot á sæluna geta keypt sér
Crackdown á Xbox 360, en leikurinn kemur út innan skamms. Hverju
eintaki mun fylgja aðgangur að Halo 3 betunni, en hún á að
hefjast seint í vor.

 Heimild: 1UP.com

Kveðja,

GameTíví