- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for January, 2007

Page 2 of 2

Þátturinn í kvöld

Í kvöld verður nóg að gera í Gametíví, en við munum meðal annars
líta á viðtal við höfunda Titan Quest leiksins, þar sem þeir ræða
um nýja aukadisk sem kemur út í febrúar.

Einnig dæmum við leikinn F.E.A.R. á Xbox 360, skoðum helling af
nýjum og væntanlegum leikum, en þar á meðal eru Metal Gear Solid 4,
Bullet Witch, Devil May Cry 4 og Alone in the Dark..

Svo síðast en ekki síst munum við fara í Zelda raunveruleik, en
í nýjasta Zelda leiknum fer Link í Súmóglímu og við þurftum
endilega að prófa það…

Kveðja,

ÓJ


“Sverrir var eins og barn í höndunum á mér í
Sumóglímunni” – Óli Jó

Gyllt PSP tölva á leiðinni

Sony fyrirtækið hefur tilkynnt um nýjan lit á PSP eða gull PSP,
en hún verður gefin út í Japan í lok febrúar.

Ekki hefur enn verið ákveði hvort vélin verði gefin út í Evrópu
eða Bandaríkjunum, en það veltur eflaust á sölu vélarinnar. 
En kvikindið er að lúkka..


Sú gyllta…kvikindið er að lúkka..

Nokkrir væntanlegir leikir..

Mér datt í hug að renna yfir nokkra leiki sem koma út á næstu
vikum og mánuðum.  Reyndar fer leikjárið rólega af stað, en
herðist eflaust þegar á líður…

Lost Planet kemur út 12.janúar

Flottur leikur frá Capcom þar sem brjálað veður og kvikindi eru
í aðalhlutverki..Siggi Stormur getur ekki beðið eftir þessum…

Þessi skepna er með stærstu handakrika sem ég hef
séð…gætuð þið sent aukabirgðir af 8 x 4
svitalyktaeyði…

WarioWare Smooth Moves kemur út
12.janúar

Wario í banastuði…Hann finnur kefli sem leikmenn geta sveiflað
með Wii stýripinnunum.  Meira en 200 mini leikir.  Þessi
gæti gert sig..

Það er puð að vera strákur…hver setti lím á lófana
á mér…

Sims 2 Seasons kemur út 1.mars

Nýr aukadiskur fyrir Sims 2.  Hér eru það árstíðirnar sem
eru fyrirferðamiklar.  Vá…sumar, vetur, vor og haust hjá
Simsunum…

Hver hugsar um árstíðir þegar þessar Sims dömur eru
annarsvegar…

God of War 2 kemur út 11.apríl

Þetta verður besti PlayStation 2 leikurinn frá upphafi…það er
ekki flóknara en það..

Opnaðu munninn Jens…

Þetta eru nokkrir af þeim leikjum sem ég hlakka mest til að
spila fyrri hluta árs.  Auðvitað eru margir fleiri, en þetta
er brot af því besta…

Hvað finnst ykkur ?  Hvaða leiki bíðið þið eftir ?

Bully heyrir líklega sögunni til…

Samkvæmt Michael Pachter hjá Wedbush Morgan greiningarfyritækinu
mun ekki koma út framhald af leiknum Bully eða Canis Canem Edit frá
Rockstar.

Leiknum var mótmælt kröftuglega, þar sem hann var talinn
innihalda gróft einelti og annað ofbeldi.  Sumir gengu svo
langt að kalla leikinn “Columbine simulator”.  Þetta átti sér
allt stað áður en leikurinn var gefinn út og áður en nokkur þessara
svokölluðu mótmælanda gátu prófað hann.

Það er ljótt þegar mótmælendur ná svona árangri með því að fara
með rangt mál.  Næst mótmæla þeir eflaust útgáfu Fifa
leikjanna, og ljúga til að þar neyti leikmenn eiturlyfja, stundi
kröftugt kynlíf í sturtu eftir leiki og leigi sér gleðikonur þess á
milli.

Það er gott og þarft að mótmæla því sem fólk telur vera rangt,
en það er jafn slæmt og óþarft þegar verið er að mótmæla hlutum sem
fólk hefur ekki hundsvit á og kynnir sér ekki almennilega.

Niðurstaðan er því sú að við fáum ekki framhald af þeim leik sem
flestir gagnrýnendur töldu þann besta á árinu 2006 og allt af því
að svokallaðir mótmælendur ákváðu að slá sig til riddara með
pappírs rökum.

ÓJ


“Við mótmælum tölvuleikjum !!”…þó að við vitum
ekkert um þá..þeir hljóta að vera slæmir..

Xbox 360 seldist best í Bandaríkjunum fyrir jólin

Sjónvarpsstöðin CNBC hefur sent frá sér tölur yfir áætlaða
sölu á leikjavélum í Bandaríkjunum í nóvember og desember. 
Samkvæmt þeim var salan eftirfarandi :

Xbox 360 – 2 milljónir eintaka

Nintendo Wii – 1,8 milljónir eintaka

PlayStation 3 – 750,000 eintök

Taka skal fram að bæði Nintendo Wii og PlayStation 3 seldust upp
á stórum svæðum og voru ekki til nema í þessu magni.


Leikjatölvustríðið á eftir að harna á árinu…fjör
!