RedOctane fyrirtækið sem gerir Guitar Hero leikina ætlar að
halda áfram að gera þá á PlayStation 2 svo lengi sem tölvan
heldur áfram að seljast.
“PlayStation 2 tölvan var ein af söluhæstu tölvunum árið 2006,
og okkar tilfinning er að Sony haldi áfram að markaðssetja og
selja tölvuna áfram í ár og einnig 2008″, sagði Dusty Welch hjá
RedOctane.
“Við munum gera leikinn á þær tölvur sem eru að seljast í hvert
skipti”
Enn sem komið er hefur Guitar Hero aðeins komið á PlayStation 2,
en Xbox 360 útgáfa er í framleiðslu og kemur út í vor.
Skipt hefur verið um framleiðanda, en fyrstu tveir leikirnir
voru gerðir af Harmonix fyrirtækinu, en næstu leikir verða gerðir
af Neversoft, en þeir eru þekktastir fyrir Tony Hawk
leikina.
Einnig sagði Dusty Welch að næsti Guitar Hero verði jafnvel ekki
tileinkaður rokkinu, og hafa heyrst raddir að hann verði í 80′s
stíl.
Heimild: Gamesindustry.biz
Kveðja,
Óli Jó

Maður þarf að lúkka til að spila á
gítarinn..



Ef maður hefur engann áhuga á gítar? Er þessi leiku ekkað skemmtilegur þá?
Ég hef alveg áhuga á gítar og allt það, en bara forvitinn. Langar samt ekkert í hann.
Fyrirgefið mér, Guitar Hero fanz!
Guitar hero er mjög skemmtilegur leikur ef þú átt hann ekki myndi ég kaupa hann. En það er frekar leiðinlegt ef hann fer yfir í 80 s þá er allt svo rólegt og kjaftæði.
Ziggi
er hægt að kaupa guitar hero 3 með gítar í ps2?
ég er sammála þér ziggi