- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


1 milljón PlayStation 3 tölva verða til á útgáfudegi í Evrópu

Sony hefur staðfest að PlayStation 3 verði gefin út í Evrópu
23.mars næstkomandi og mun 1 milljón tölva verða til á fyrsta
degi.

Verðið í Bretlandi verður 425 pund (57.900 ISK), en 599 Evrur
(53.700) annarsstaðar í Evrópu nema Írlandi, þar sem hún mun kosta
629 Evrur.  Ekki hefur verðið á Íslandi verið staðfest að svo
stöddu.

Aðeins 60GB útgáfa tölvunnar verður fáanleg fyrst um sinn, en
20GB útgáfan mun líklega verða fáanleg seinna á árinu, en það
mun velta á eftirspurn.  Ástæðan fyrir því er sögð
vera að Sony er að mæta þörfum neytenda og smásala.

Sony hefur sagt að 1 milljón eintaka verði fáanleg í upphafi, en
sú tala er það markmið sem Sony hefur sett sér.  Í samanburði
má geta að 325,000 Nintendo Wii vélar voru fáanlegar á fyrsta degi
í Evrópu og 300,000 Xbox 360 vélar.  Þannig að ef Sony tekst
að ná markmiðum sínum munu þeir hafa fleiri vélar á markaði á
fyrsta degi en keppinautarnir höfðu til samans.

Enn er ekki vitað hversu margar vélar munu koma til landsins, en
búast má við sæmilegu magni.

Fjöldi leikja verður fáanlegur á útgáfudegi í Evrópu eða meira
en 30 stk.  En þeir eru :

  • Resistance: Fall of Man – SCEE – Disc
  • MotorStorm – SCEE – Disc
  • Genji: Days of the Blade – SCEE – Disc
  • FORMULA ONE CHAMPIONSHIP EDITION – SCEE – Disc
  • Ridge Racer 7 – SCEE – Disc
  • Tekken: Dark Resurrection – SCEE – Network
  • Lemmings – SCEE – Network
  • Go! Sudoku – SCEE – Network
  • Go! Puzzle – SCEE – Network
  • Blast Factor – SCEE – Network
  • flOw – SCEE – Network
  • Super Ruba’Dub – SCEE – Network
  • Call of Duty 3 – Activision UK Ltd – Disc
  • Marvel: Ultimate Alliance – Activision UK Ltd -
    Disc
  • Tony Hawk’s Project 8 – Activision UK Ltd – Disc
  • Gundam  Target in Sight – Namco Bandai Games -
    Disc
  • Full Auto 2: Battle Lines – Sega Europe Ltd – Disc
  • Sonic the Hedgehog – Sega Europe Ltd – Disc
  • Virtua Fighter 5 – Sega Europe Ltd – Disc
  • Virtua Tennis 3 – Sega Europe Ltd – Disc
  • World Snooker Championship 2007 – Sega Europe Ltd -
    Disc
  • NBA 2K7 – Take 2 International SA – Disc
  • NHL 2K7 – Take 2 International SA – Disc
  • Blazing Angels Squadrons of WWll – Ubisoft
    Entertainment SA – Disc
  • Enchanted Arms – Ubisoft Entertainment SA – Disc
  • Tom Clancy’s Splinter Cell: Double Agent – Ubisoft
    Entertainment SA – Disc
  • The Elder Scrolls lV: Oblivion – Ubisoft Entertainment
    SA – Disc
  • Def Jam: Icon – Electronic Arts Ltd – Disc
  • Fight Night Round 3 – Electronic Arts Ltd – Disc
  • NBA Street 4 Homecourt 2007 – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • Need for Speed Carbon – Electronic Arts Ltd – Disc
  • The Godfather: The Don’s Edition – Electronic Arts Ltd
    - Disc
  • Tiger Woods PGA Tour 2007 – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • Untold Legends: Dark Kingdom – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • F.E.A.R. Vivendi – Universal Games Intl SA – Disc
  • Gripshift – Sony Online Entertainment -
    Network

Heimild: Gamesindustry.biz


Motorstorm
verður meðal þeirra leikja sem koma út á sama tíma og
vélin..

16 Responses to “1 milljón PlayStation 3 tölva verða til á útgáfudegi í Evrópu”


  • Og ef ég þekki gamla góða Ísland rétt þá munum við æla 60 þúsund eða meira upp úr okkur fyrir einu eintaki. Virðisaukaskattur og tollur eru jú, besti vinur neytandans.

  • Úff.. Vaskur og tollur.. elska þá.. rétt eins og allir aðrir :) Til hvers að lækka vask á matvælum! Lækka vask frekar á leikjum og leikjatölvum!! ;D

  • Já, ég held að Ísland verði eina landið í Evrópu sem þarf að borga toll af vélinni, líkt og það er með PlayStation 2. Auk þess að við erum með einn hæðsta VSK í álfunni.

  • Fljótlega reiknað sýnist mér að PS3 verði nær 70 þús en 60 þús kallinum hérna heima… sem er auðvitað alltof mikið, ég held að ég fái mér frekar Xbox 360 og Wii…

  • Maður byrjar bara að safna núna og þetta reddast fyrir 23. mars :D.

  • Ps3 all the way mér er sama um verð og allt það bullshit ef maður á ekki efni á henni þá rænir maður sér bara einu stiki

  • ég er búinn að prófa hana í bt smáralind. hún er hellvíti flott

  • Eru þetta In game screens?

  • Playstaion 3 mun kosta ekki minna en 65-75 þús krónur, meira en Wii og Xbox 360 samanlagt, og miðað við það sem ég er búinn að lesa um PS3 þá er það bara RUGL!

    Xbox 360 er með fleiri, betri, flottari leiki og betri LIVE þjónustu.

    Og Wii er með skemmtilegri stjórntæki og meira fun leiki.

    Ég get ekki ýmindað mér hvað ætti að réttlæta 70.000 kall fyrir einhverja leikjatölvu, þó svo að þetta sé PS3!

  • litli bróðir minn fékk sér Wii og ég verð að segja eins og er að ég sé ekkert sérstakt við hana.
    fjarstýringin getur verið bugy þanig að það er ekki rétt að hún sé ehvað ofur-nákvæm eins og sumir segja. Hún er ódýr, en frekar myndi ég kaupa
    alvöru next-gen tölvu eins og xbox 360 eða ps3.

  • hún fer ekki undir 70.000 svo ég held að ég fari bara út að skokka eða einhvað í staðinn

  • maður væri nú allveg til í að fá einn góðann fótboltaleik með PS3

  • maður væri nú allveg til í að fá einn góðann fótboltaleik með PS3

  • Verði ykkur að góðu að kaupa PS3, hún mun kosta á milli 80-90k og hún mun ekki geta spilað PS2 leiki í Evrópu og Ástralíu!!! Þetta er Sony í sínu besta formi og samt munu þó nokkri láta gabbast og fjárfesta í þessum vanskapnaði. Nei takk ég held mig við PS2 og PC (og jafnvel Wii) þangað til Sony leiðréttir þessa vitleysu. Ef þeir gera það ekki þá kemur PS3 ekki inn á mitt heimili.

  • Núna er þetta nú allt komið á hreint og kostar gripurinn 65.000 í elko en 70.000 í bt og ég staðhæfi það að þetta er peningsins virði!

    Blureay er bara útúrkorti! vá hvað þetta er bilað flott!

    gerið ykkur nú síðan grein fyrir því að það tekur allt að 6 mánuði eftir að tölvan kemur út að það komi síðan leikir sem að henta tölvunni og sína virkilega hvað þetta er miklu betri talva en wii og xbox360.

Comments are currently closed.