- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for January, 2007

God of War 2 næstum tilbúinn

Þrátt fyrir að flestir séu að einbeita sér að leikjum fyrir nýju
tölvurnar, er einn af eftirsóttustu leikjum ársins fyrir
PlayStation 2, en það er God of War 2 sem er reiknað er með að komi
út í apríl næstkomandi.

Samkvæmt blogginu hjá Cory Barlog, leikstjóra leiksins, er hans
starfi við leikinn lokið og leikurinn nánast tilbúinn. 

Búast má við að demo af leiknum verði gefið út í febrúar.

Persónulega verður þetta að mínu mati einn af leikjum
ársins.  God of War er einn af mínum uppáhaldsleikjum og hefur
allt að bera sem einkennir góðan hasarleik.  Og ef þið hafið
ekki prófað hann, mæli ég með að þið gerið það.. :o)

Heimild: Gamespot.com

Kveðja,

Óli Jó


“Hvað segirðu…ertu slæmur í hálsinum ?”

Guitar Hero mun halda áfram á PlayStation 2

RedOctane fyrirtækið sem gerir Guitar Hero leikina ætlar að
halda áfram að gera þá á PlayStation 2 svo lengi sem tölvan 
heldur áfram að seljast. 

“PlayStation 2 tölvan var ein af söluhæstu tölvunum árið 2006,
og okkar tilfinning er að Sony haldi áfram að markaðssetja og
selja tölvuna áfram í ár og einnig 2008″, sagði Dusty Welch hjá
RedOctane.

“Við munum gera leikinn á þær tölvur sem eru að seljast í hvert
skipti”

Enn sem komið er hefur Guitar Hero aðeins komið á PlayStation 2,
en Xbox 360 útgáfa er í framleiðslu og kemur út í vor.

Skipt hefur verið um framleiðanda, en fyrstu tveir leikirnir
voru gerðir af Harmonix fyrirtækinu, en næstu leikir verða gerðir
af Neversoft, en þeir eru þekktastir fyrir Tony Hawk
leikina. 

Einnig sagði Dusty Welch að næsti Guitar Hero verði jafnvel ekki
tileinkaður rokkinu, og hafa heyrst raddir að hann verði í 80’s
stíl.

Heimild: Gamesindustry.biz

Kveðja,

Óli Jó


Maður þarf að lúkka til að spila á
gítarinn..

Framhald af Just Cause verður gefið út

Avalanche Studios og Eidos komu mönnum á óvart með leiknum Just
Cause.

Þótt að leikurinn, sem sótti innblástur sinn í Grand Theft Auto,
hefði töluvert af göllum, var fólk yfirleitt hrifið.  En
markmið leiksins var að koma af stað byltingu í Bananalýðveldi.

Nú hefur SCi fyrirtækið sem á Eidos, sett inní fjárhagsáætlun
sína að það komi út framhald af leiknum.  En fyrirtækið býst
við að leikurinn seljist í meira en milljón eintökum áður en
fjárhagsárið er úti (lok mars 2007), en það er ekki slæmt fyrir
fyrsta leik í nýrri seríu.

Heimild: 1up.com


Nú er það svart…eða appelsínugult….Djöfull er ég
líkur Steven Segall..

1 milljón PlayStation 3 tölva verða til á útgáfudegi í Evrópu

Sony hefur staðfest að PlayStation 3 verði gefin út í Evrópu
23.mars næstkomandi og mun 1 milljón tölva verða til á fyrsta
degi.

Verðið í Bretlandi verður 425 pund (57.900 ISK), en 599 Evrur
(53.700) annarsstaðar í Evrópu nema Írlandi, þar sem hún mun kosta
629 Evrur.  Ekki hefur verðið á Íslandi verið staðfest að svo
stöddu.

Aðeins 60GB útgáfa tölvunnar verður fáanleg fyrst um sinn, en
20GB útgáfan mun líklega verða fáanleg seinna á árinu, en það
mun velta á eftirspurn.  Ástæðan fyrir því er sögð
vera að Sony er að mæta þörfum neytenda og smásala.

Sony hefur sagt að 1 milljón eintaka verði fáanleg í upphafi, en
sú tala er það markmið sem Sony hefur sett sér.  Í samanburði
má geta að 325,000 Nintendo Wii vélar voru fáanlegar á fyrsta degi
í Evrópu og 300,000 Xbox 360 vélar.  Þannig að ef Sony tekst
að ná markmiðum sínum munu þeir hafa fleiri vélar á markaði á
fyrsta degi en keppinautarnir höfðu til samans.

Enn er ekki vitað hversu margar vélar munu koma til landsins, en
búast má við sæmilegu magni.

Fjöldi leikja verður fáanlegur á útgáfudegi í Evrópu eða meira
en 30 stk.  En þeir eru :

  • Resistance: Fall of Man – SCEE – Disc
  • MotorStorm – SCEE – Disc
  • Genji: Days of the Blade – SCEE – Disc
  • FORMULA ONE CHAMPIONSHIP EDITION – SCEE – Disc
  • Ridge Racer 7 – SCEE – Disc
  • Tekken: Dark Resurrection – SCEE – Network
  • Lemmings – SCEE – Network
  • Go! Sudoku – SCEE – Network
  • Go! Puzzle – SCEE – Network
  • Blast Factor – SCEE – Network
  • flOw – SCEE – Network
  • Super Ruba’Dub – SCEE – Network
  • Call of Duty 3 – Activision UK Ltd – Disc
  • Marvel: Ultimate Alliance – Activision UK Ltd -
    Disc
  • Tony Hawk’s Project 8 – Activision UK Ltd – Disc
  • Gundam  Target in Sight – Namco Bandai Games -
    Disc
  • Full Auto 2: Battle Lines – Sega Europe Ltd – Disc
  • Sonic the Hedgehog – Sega Europe Ltd – Disc
  • Virtua Fighter 5 – Sega Europe Ltd – Disc
  • Virtua Tennis 3 – Sega Europe Ltd – Disc
  • World Snooker Championship 2007 – Sega Europe Ltd -
    Disc
  • NBA 2K7 – Take 2 International SA – Disc
  • NHL 2K7 – Take 2 International SA – Disc
  • Blazing Angels Squadrons of WWll – Ubisoft
    Entertainment SA – Disc
  • Enchanted Arms – Ubisoft Entertainment SA – Disc
  • Tom Clancy’s Splinter Cell: Double Agent – Ubisoft
    Entertainment SA – Disc
  • The Elder Scrolls lV: Oblivion – Ubisoft Entertainment
    SA – Disc
  • Def Jam: Icon – Electronic Arts Ltd – Disc
  • Fight Night Round 3 – Electronic Arts Ltd – Disc
  • NBA Street 4 Homecourt 2007 – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • Need for Speed Carbon – Electronic Arts Ltd – Disc
  • The Godfather: The Don’s Edition – Electronic Arts Ltd
    - Disc
  • Tiger Woods PGA Tour 2007 – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • Untold Legends: Dark Kingdom – Electronic Arts Ltd -
    Disc
  • F.E.A.R. Vivendi – Universal Games Intl SA – Disc
  • Gripshift – Sony Online Entertainment -
    Network

Heimild: Gamesindustry.biz


Motorstorm
verður meðal þeirra leikja sem koma út á sama tíma og
vélin..

GTA Vice City Stories kemur líklega á PlayStation 2

Ekki það að við höfum misst okkur af undrun, þegar við fréttum
að Rockstar fyrirtækið gæti hvorki neitað né játað því að þeir séu
með Grand Theft Auto Vice City Stories í framleiðslu fyrir
PlayStation 2.

En Rockstar fyrirtækið gaf einmitt út GTA Liberty City Stories
fyrst á PSP og svo stuttu síðar á PlayStation 2 og það gekk
upp.  Enda þurftu Rockstar menn að gera lítið annað enn að
færa leikinn á milli mappa á desktopnum hjá sér eða þannig… og
þeir tvöfölduðu tekjurnar..

En við Gametíví bræður munum fylgjast með framvindu mála, en GTA
Vice City Stories var sölu hæsti PSP leikur síðasta árs.


Byssa…blá skyrta..ég er með þetta…

World of Warcraft Burning Crusade selst í bílförmum..

World of Warcraft Burning Crusade er kominn í annað sætið yfir
þá PC leiki sem selst hafa hvað hraðast frá upphafi, en hann er
kominn í efsta sæti allra vinsældarlista og var í raun 30% af allir
PC leikjasölu í síðustu viku.

Engin almennileg útgáfa var samhliða WOW BC þannig að hann átti
auðvelt með að klifra uppí efsta sætið í Bretlandi, Lost Planet á
Xbox 360 fór niður í annað sætið og Wario Ware Smooth Moves fór
niðrí það þriðja..

En talsmenn Blizzard fyrirtækisins sem gerir World of Warcraft,
hafa tilkynnt að næsti netleikur fyrirtækisins muni ekki snúa að
Warcraft heiminum, og verður því spennandi að fylgjast með hvar
þeir taka næst niður, en þeir eiga heima á borð við StarCraft,
Diablo og fleiri…

Heimild: Eurogamer.net


Kannski að þú snyrtir aðeins augnbrúnirnar…og
kannski aðeins af eyrunum..þá er ég góður..

Hideo Kojima vill prófa að vinna á PC og Xbox 360

Höfðinginn Hideo Kojima sem er hvað þekktastur fyrir að gera
Metal Gear Solid leikina hefur viðurkennt að sér langi til að vinna
á PC og Xbox 360 tölvurnar.

“Ég hef mikinn áhuga á að gera eitthvað á Xbox 360.  Tölvan
er að seljast vel í Bandaríkjunum og Evrópu.  Hún mun eflaust
halda áfram að seljast vel á  þessu ári líka.  Ég er
aðdáandi Gears of War einnig, hann er mjög áhugaverður.”

Konami fyrirtækið sem Kojima vinnur hjá hefur oft verið orðað
við framleiðslu á Xbox 360 leikjum, en hafa ekkert staðfest
ennþá

Metal Gear Solid 4 mun aðeins koma á PlayStation 3 til að byrja
með, en það er aldrei að vita þegar “exclusive” samningurinn rennur
út að hann komi líka á PC og Xbox 360.

Heimild: Eurogamer.net


Við erum geggjað svalir…Ég frá Japan og hann úr
plasti..

Loksins PlayStation 3

Þá er maður kominn með PlayStation 3 í hendurnar og munum við
Sverrir velja nokkra áhorfendur Gametíví á næstunni til að prófa
hana með okkur, en aftur að því síðar.

Ég verð að segja að ég er nokkuð hrifinn við fyrstu sýn. 
Vélin er flott í útliti, heyrist sama og ekkert í henni (meðan Xbox
360 hljómar eins og loftræstikerfi í háhýsi), valmyndarkerfið er
flott (alveg eins og í PSP) og leikirnir sem ég hef prófað nokkuð
góðir, en reyndar misjafnir.

Leikirnir sem ég er með eru Genji, Resistance Fall of Man,
Marvel Ultimate Alliance, Tony Hawk og Gundam.  Það er klárt
að Resistance er laaaaang best leikurinn af þessum, enda gefinn út
af Sony og gerður af þeim sem gerðu Ratchet & Clank
leikina.  Hinir eru mjög svipaðir og þeir eru á Xbox 360.

Svo er það BluRay, ég er búinn að horfa á Black Hawk Down í
BluRay og þvílík gæði í myndinni.  Ég varla trúði hvað þetta
er flott, þannig að BluRay og HD DVD eiga eftir að verða snilld,
ekki spurning.

Að lokum þá fór ég á netið í vélinni, en í henni er net browser
og svo geta menn farið í PlayStation store og hlaðið þar niður
demóum úr leikjum, trailerum úr leikjum og bíómyndum og fullt af
aukastöffi..  PlayStation búðin er þægileg í notkun og virkar
vel, sérstaklega kom það mér á óvart að hraðinn í downloadi úr
búðinni er ótrúlegur.

Einnig er hægt að downloada PlayStation 1 leikjum í búðinni og
spila þá í PSP vélinni. 

Þannig að fyrsta “impression” á PlayStation 3 er mjög góð, en ég
mun láta ykkur vita þegar ég er búinn að prófa meira.  Einnig
munum við fjalla á næstunni ítarlega um PlayStation 3 í Gametivi og
við munum einnig bjóða nokkrum áhorfendum að prufa hana með
okkur.

Kveðja,

Óli Gametíví

°
Valmyndakerfi PlayStation 3 minnir mikið á
PSP…

Sony hefur selt meira en 2 milljónir PlayStation 3 véla

Nú hefur Sony fyrirtækið tilkynnt að PlayStation 3 vélin hafi
selst í meira en 2 milljónum eintaka (1 milljón í
Bandaríkjunum og 1 milljón í Japan).  

Þessu takmarki ætluðu Sony menn að ná fyrir lok árs 2006, þannig
að Ken Kuturagi og hans menn eru 2 vikum of seinir.

Engu að síður er PlayStation 3 sú PlayStation tölva sem hraðast
hefur náð 2 milljón eintaka markinu, en Sony menn búast við að vera
búnir að selja 6 milljónir véla fyrir lok mars 2007.

Einnig tilkynnt Sony að þeir hafi selt meira en 5 milljón eintök
af leikjum og hefur þar verið vinsælastur Resistance : Fall of
Man
og svo fylgja á eftir Madden NFL 07, Need for
Speed Carbon
, Fight Night Round 3 og Tiger Woods
PGA Tour 07
.

Að lokum má geta að meira en 500,000 manns hafa skráð sig í
netþjónustu PS3 og hefur prufunni af Gran Turismo HD verið hlaðið
niður 300,000 sinnum.

Búast má við að PlayStation 3 komi út hér á landi
23.mars næstkomandi..

Kveðja,

Óli Jó
Gametíví


Resistance : Fall of  Man, “Veit einhver
númerið hjá góðum tannréttingarlækni ???”

Góðir PSP leikir

Mikið hefur verið rætt um að það vanti góða leiki í PSP, það er
rétt að þeir mættu vera fleiri, en hinsvegar er nóg af góðum
leikjum til að halda manni heitum í fleiri mánuði.  Hér að
neðan eru nokkrir af mínum uppáhaldsleikjum í PSP.

Grand Theft Auto Vice City Stories

Væntanlega metnaðarfyllsti PSP leikurinn og af mörgum talinn
næst besti GTA leikurinn af öllum.  Frábær skemmtun með góðri
grafík og góðum húmor


Vice City lúkkar vel seinni partinn…

Syphon Filter Dark Mirror

Þetta er væntanlega uppáhalds leikurinn minn, en hann er þriðju
persónu skotleikur þar sem leikmenn fara í hlutverk njósnarans Gabe
Logan og nokkurra aðstoðarmanna hans.  Grafíkin er snilld,
söguþráðurinn geggjaður og hreinlega leikur sem gefur PlayStation 2
leikjum ekkert eftir.


Kláralega besti PSP leikurinn í dag.  Ótrúlega
flott grafík og skemmtileg spilun..

LocoRoco

Frumlegasti og einn af betri leikjunum á PSP, en hér fara
leikmenn í hlutverk plánetu sem getur hreyft sig til að koma litlum
svokölluðum LocoRoco frá einum stað til annars.  Erfitt að
lýsa leiknum, maður verður að prófann til að upplifa leikinn.


Undarlegur en algjör snilld..

Pro Evolution Soccer 6

Besti fótboltaleikurinn á PSP.  Leikurinn er nánast eins og
PlayStation 2 útgáfan og geta menn skorað á aðra, ásamt því að hægt
er að spila fullkomið Master League Mode.  Ótrúlega vel
heppnaður.


Ég er svo góður að menn fara á hnén mér til
heiðurs..

Lumines

Snilldar þrautaleikur sem að er ótrúlega
ávanabindandi…hrikaleg snilld.  Góð tónlist, einfaldur og
flottur þrautaleikur.


Þrautaleikur sem gefur Tetris og öðrum slíkum ekkert
eftir..

Football Manager 2007

Skemmtilega einföld útgáfa af Football Manager leiknum. 
Hér geta leikmenn spilað tímabilin snöggt, þar sem leikurinn er
einfaldur og minnir dálítið á eldri CM leiki.


Einfaldur, hraður og ávanabindandi..

Killzone Liberation

Ótrúlega flottur og “stylish” leikur sem spilast í svona “top
down” sjónarhorni.  Leikurinn blandar saman strategy og
hasar.  Einn af betri leikjunum á PSP.


Hér geta leikmenn stýrt farartækjum og gefið
liðsmönnum skipanir..

Daxter

Besti Platformleikurinn á PSP, klárlega einn af betri PSP
leikjunum.  Hér fer Daxter á kostum, enda hrokafullur og
fyndinn.  Leikur sem er gerður af höfundum Jak og Daxter
leikjanna.


Daxter harður…logandi afturendi..

Ég get nokkurnveginn ábyrgst að menn fíla þessa leiki, það er að
segja ef þeir fíla hverja tegund þeirra fyrir sig.  En þetta
eru allavega mínir uppáhalds.

Kveðja,

Óli Jó
Gametíví