- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2006

Page 2 of 2

Eru örvhentir betri í tölvuleikjum ?

Áströlsk rannsókn gefur það til kynna að
örvhentir tölvuleikjaspilarar séu betri en
rétthentir. 

En ástæðan ku vera sú að deiling
upplýsinga milli vinstra og hægra heilahvels er öflugri hjá
örvhentum.

Dr. Nick Cerbuin hjá Australian
National University sagði í viðtali við ABC Online að þetta eigi
við þegar leysa eigi verkefni sem innihalda mikið af upplýsingum
eða áreiti, og þar á meðal eru “hraðir tölvuleikir”.

Þetta hlítur að vera rétt þar sem ég
er örvhentur og betri en sjálf sólin í spilun tölvuleikja…harður
og þónokkuð grimmur  :haha: 

Hvað finnst ykkur um þetta
?

Kveðja,

 

Óli í Gametíví

 

 

 


Þessi er örvhentur og eflaust snillingur í
tövluleikjum…hann er allavega ekki með lausa skrúfu
:P

SSX Blur í vinnslu fyrir Wii

Í mars næstkomandi kemur út nýr SSX leikur á Nintendo Wii eða
SSX Blur.  Leikurinn er í framleiðslu hjá EA í Montreal og
lofa þeir að leikurinn muni innihalda risastökk, biluð trikk og
rosalegan hraða.  Allt þetta er svo magnað upp með nýja Wii
stýripinnanum. 

“Við vildum halda í sál SSX leikjanna – stóru stökkin, hraðann,
trikking og fjörið – og blanda því saman við möguleika Wii”, segir
Alex Hyder, framleiðandi leiksins…


“Það er fátt meira hressandi en að tækla brekkurnar
á náttsloppnum…hvernig vindur leikur um pu….ehh verð að
fara”

Marcus Fenix er Bender, Bender er Marcus Fenix

Það vita eflaust flestir að Marcus Fenix er aðalsöguhetjan í
metsöluleiknum Gears of War, en eflaust færri sem vita að gaurinn
sem talar fyrir Marcus í leiknum er sá sami og talar fyrir Bender í
Futurama þáttunum eða John Di Maggio.  Þessir karakterar
hljóma samt mjög ólíkt…Greinilega harður hann John Di
Maggio…


“Það er fúlt að vera úr járni…sérstaklega
ryðið..”

Ekki missa af íshokkí atriðinu í næsta þætti, þegar við Sverrir
Bergmann keppum við íshokkí gaurana úr Birninum…það mátt vart á
milli sjá hverjir voru harðari, við Gametivi bræður eða hinir vel
þjálfuðu knapar svellsins..


Fiddi frændi Sverris Bergmann hvatti kallinn áfram í
“raunveruleiknum”…

Seldi Boxið af Nintendo Wii á Ebay fyrir tæpan 30 þúsund kall!

Það ber greinilega að varast ef að menn ætla eitthvað að reyna
að rjúka til og kaupa
Nintendo Wii á
Ebay
til þess að verða með fyrstum mönnum til
að prófa.  Einhver óknyttinn aulabárður gerði sér lítið fyrir
og seldi tómt Wii Box, þ.e. pakkningarnar utan af vélinni, á 400
dollara eða tæpar 30.000 kr. Svekkjandi fyrir þann sem keypti
gripinn, nema honum auðvitað langi alveg rosalega í svona fallega
skreyttan pappakassa.

Það verður einhver illa fúll að opna þennan jólapakka
Great gift for family or friends. 
It’s a Nintendo Wii Box that is it.  no
system

Kominn plástur fyrir FM 2007 – Mest selda PC leikinn í dag

Eftir að hafa farið í gegnum allar athugasemdir þeirra sem spila
Football Manager 2007, hafa SI Games, útbúið patch eða plástur á
leikinn sem að er nauðsynlegur fyrir alla alvöru spilara.

Til að nálgast plásturinn er bent á eftirfarandi síður :

http://patch701.fmanager.com.br/fm2007_701.exe

http://www.strategyinformer.com/pc/footballmanager2007/patch/9755.html

Góða skemmtun !! 


Þessi dúddi spilaði Football Manager 2007 aaaaðeins
of mikið…fáðu þér svefn…og líf…