- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Næstu kynslóðar Lara Croft

Eftir að hafa náð að endurreisa Tomb Raider leikina, með leiknum
Tomb Raider Legend, ætlar Eidos fyrirtækið að halda ótrautt áfram
með hina barmamiklu mær, Löru Croft. 

Samkvæmt Ian Livingstone hjá Eidos mun “næstu kynslóðar” Lara
vera svakaleg.

“Ég hef séð módelin sem verða notuð í næsta leik og þau voru
eins og maður væri að horfa á sjónvarpið.  Ef þú hélst að þú
værir orðinn ástfangin af Löru Croft…þá er ljóst að það vara bara
byrjunin.  Þú átt eftir að slefa þegar þú sérð næstu útgáfu af
Löru.”

Ekki er vitað hvenær næsti Tomb Raider leikur kemur út, en í
millitíðinni verður gefinn út 10 ára afmælisleikur eða Tomb Raider
10th Anniversary.

Hvað finnst ykkur um Löru Croft, er hún búin að vera eða á hún
og hennar konunglegu svalir ennþá séns ?  :P


Lara Croft á sjötugsaldri…það er eins og það vanti
eitthvað…

13 Responses to “Næstu kynslóðar Lara Croft”


  • djöfull langar mig í þennan leik marrh…

  • ó já. Þennan VERÐ ég að eignast :D Fíla Tomb Raider leikina í botn, þótt að ég hef bara spilað gömlugerðina:S Enn þessi verður vitarnlega mað miklu betri graffík, svo ég bíst mikills af þessum leik ;) (ef þið skiljið:S )

  • Enn já annars, þá langar mig ekki í þennan leik útaf stórum brjóstum :/

  • hvad var aftur addressan inna msn i psp og tharf madur storan minniskubb?;)

  • Hva segiði bræður á ekkert að fara fjalla um zelda í þessum þáttum?

  • já marr, ég er samála. Zelda rokkar marr!!! getið þið komin með eitthverjar fréttir af Zelda leik:D nýjasta leiknum í Nitendo Wii eða eitthvað :D

  • þeir voru að dæma zelda…

  • Mikið rétt…og einsog Þórdís orðaði svo vel…”Zelda rokkar marr!!!”. Það er bara svo einfalt. Nýji leikurinn er æðislegur og enn ein rósin á fallega Zelda limgerðinu :D

    Hvet alla til að prófa hann hvort sem er á Wii eða GameCube…

  • Heyrðu Þórdís mín Zelda leikurinn á Nintendo Wii á eftir að vera gg sko!!!Þú kemur bara að prófa þegar hann kemur hjá okkur en alltaf fallega orðað en ég er sammála Zelda rokkar marr! En ég man ekki hvort þú prófaðir hann með mér í smáranum (í þá gömlu góðu daga) hvort þú prófaðir Zeldu eða íþrótta leikin:S
    En ég er búin að prófa Zeldu leikin á Nintendo Wii og hann er geggjaður!!!

    En yndislegt (ég held að við séum einu stelpurnar sem commenta á þessari síðu;D)

  • Zelda leikurinn ER GG:D talvan kom í gærkvöldi og ég var í henni í dag og vá hvað grafíkin er góð:O (miðað við gömlu leikina)

  • Humm smá off topic hjá ykkur:P

    Málið er að þeir klúðruðu Tomb Raider seríunni, og náðu að endurræsa hana með TR: Legend.

    Hinsvegar efast ég ekkert um það að þeir nái einhvernvegin að klúðra þessu aftur eftir nokkur ár…

  • ps ég held að stóru brjóstin séu það besta:S en reyndar er þessi kelling uppi LJÓT!

Comments are currently closed.