Sierra fyrirtækið er að vinna að nýjum Larry leik sem mun nýta
Wii stýripinnana á mjög nýstárlegan hátt.
Larry hefur verið aðalpersónan í fjölda leikja, en hann er
sköllóttur maður á fimmtugsaldri sem er alltaf að reyna við ungar
og aðlaðandi konur.
Vinsældir Larry leikjanna hafa verið mismunandi, en grafíkin
hefur alltaf farið batnandi, enda eru leikirnir alltaf bannaðir
innan 18 ára. Í nýja leiknum sem er væntanlegur á næsta ári
og mun heita “Leisure Suit Larry : Upstanding Citizen” verður Wii
stýripinninn notaður á mjög einstakan hátt og þurfa leikmenn að
gleðja konurnar svo þær missi ekki áhugan.
Án þess að fara mjög ítarlega í málið, þá á þessi leikur eflaust
eftir að valda miklu umtali, sérstaklega þegar leikmenn fara að
skaka sér með pinnan til að valda stuði á ýmsum stöðum.
Eða eins og Sverrir Stormsker sagði : “Sjálfs er höndin
hollust…sú hægri yfirleitt..”

Ég get ekki beðið eftir nýja Larry leiknum…Wiii
Wiiii



haha þetta verður sniðugt en það verður eithvað þegar hann kemur út
hæ ég var vildi bara spyrja um batteríið í ps3 fjarstýringunum, hvort maður þarf að kaupa nýja fjarstýringu ef batteríið klárast og hvenær kemur nýr mortal kombat leikur??
nice
Hvenær fæ ég leikinn minn sem ég vann Gametivi-bræður?
Takk enn aftur.
Óli k maður hleður væntanlega fjarstýringuna þegar hun batteríið klárast
HUN á ekki að vera ¾½¹?
Aron hvað meinarðu með “HUN á ekki að vera ¾½¹?”
???
mér finnst bara frekar nördalegt þarna ¾½¹?” dæmið ….
en sniðugt tæki þarna á ferð (þetta wii tæki)
Þætti gaman að vita hvaða heimildir þið hafið fyrir þessu…
eg sagði : þegar hun batteríið klárast … það á ekki að vera hun
bara þegar batteríið klárast …. svo í lokin ¥*1+¾¹¹-½=?
Addi heimildir fyrir hverju?
Þórður:
Heimildir fyrir þessu kjaftæði, það er ekki að koma neinn larry leikur á wii _ … gametíví menn mættu nú fara vanda val sitt á heimildum svo þeir hætti að fara með svona rugl
Helduru virkilega að við höfum bara vaknað einn daginn og hugsað með okkur “hey, segjum að Larry sé að koma á Wii”. Meðfylgjandi er linkur á fréttina — http://www.bbspot.com/News/2006/12/leisure-suit-larry-wii.html
Taktu nú hausinn á þér úr óæðri endanum og njóttu jólanna.
Gleðileg Jól
Hahahaha. FACE
Sverrir, hefurðu eitthvað lesið þessa síðu?
Af hverju heldurðu að Kotaku, Gonintendo, Joystiq, Gamespot, Eurogamer og IGN hafi ekki fjallað um þetta? Hefurðu í alvörunni kynnt þér BBspot, Sverrir?
BBSpot er nákvæmlega eins og The Onion: Uppspuni upp frá rótum. Hefurðu heyrt sloganið þeirra? \”Satire for Smart People; The Truth for You\”, sem þýðir í grófum dráttum að þeir gáfuðu átta sig á að þarna er ekkert sem á að taka alvarlega, en hinir heimsku taka þessu sem sannleik.
Þessi frétt er uppspuni og ekkert annað.
Fréttir ykkar af t.a.m. Wii og austurrískum kynlífsverslunum er einnig kolröng. Það var íbúi Austurríkis sem að hannaði þessa festingu, en þar með eru tengsl fréttarinnar við austurríki uppurin. Það var notandinn Karunga á metal/fantasy/gaming communityinu InfinitPower.com sem að hannaði þetta.
Og fréttin með það að japanskir krakkar væru að nota ofurlím til þess að festa Wii fjarstýringarnar við… heimildin kemur beint frá BBspot. Á sloganið þeirra, \”Satire for Smart People; The Truth for You\” kannski við þig?
En já, vonandi bætið þið ykkur hvað þetta varðar. Það er það minnsta sem þið getið gert, að velja góðar heimildir.
Annars, gleðileg jól…
Vilhelm
Sælir,
Áður en menn tapa gleðinni, þá má benda á að bloggsíða okkar Gametíví manna er fyrst og fremst til gamans, en ekki hugsuð sem ábyrg fréttasíða, þó að finna megi fréttir inná milli sem byggðar eru á öruggum heimildum.
Þannig að við vonum að menn gráti ekki í jólagrautinn þrátt fyrir að við sláum á létta strengi. Og vonandi er sloganið þitt Vilhelm : “Hláturinn lengir lífið..”
Gleðileg jól félagar og vonandi hefur jólasteikin runnið ljúflega niður..enda eruð þið óvenju harðir…og grimmir..
Kveðja,
Jóelinn aka Óli í Gametíví (Dr. Grimmur og Mister harður)
Óli.
Ég sá ekki betur en að Sverrir hafi verið að reyna að réttmæta sanngildi fréttarinnar með því að vísa í BBspot sem heimild og segja Adda svo að “taka hausinn á sér úr óæðri endanum.”
Ekki illa meint en ef þið ætlið að grína, getið þið kannski ekki verið frumlegir? Og þið gætuð í það minnsta þá látið lesendur ykkar vita að hér er allt í gamni enda hef ég tekið eftir því að margir lesendur ykkar hér taka ykkur mjög svo alvarlega… eigið helst að taka tillit til þess að stærsti hluti lesenda bloggsins eru karlmenn 16 ára og yngri.
Mii lolz
hvaða hvaða…slakiði á…ég var ekki að benda á sanngildi fréttarinnar heldur bara að sýna hvaðan við fengum hana. Vissulega reynum við að koma á móts við lesendur okkar með því að birta áreiðanlegar fréttir en við megum ekki gleyma að heimur tölvuleikjanna er skemmtilegur og ber manni að segja líka frá þeim hugmyndum sem og hugdettum sem slettast þar inn. Og Vilhelm, hvað er frumlegra en að biðja mann að taka hausinn útúr óæðri endanum
hehe. Það var nú bara meint að menn ættu að taka hlutina ekki alltof alvarlega þar sem það eru nú einu sinni jólin.
vona að allir hafi fengið vænan tölvupakka um jólin
Bestu kveðjur
Sverrir Bergmann
-GameTíví-
Vilhelm skrifar: “eigið helst að taka tillit til þess að stærsti hluti lesenda bloggsins eru karlmenn 16 ára og yngri.” hvar fékks þú heimildir fyrir því???
Satt, Satt!
Heyrðu nú mig mister Vilhelm hvað meinarðu eiginlega þetta eru bara karlmenn 16ára og yngri (ég segi nú ekki að 16ára og yngri séu karlmenn sko
)en samt þetta er nú bara móðgun og hverju skiptir hvar þeir fengu fréttina ef þið trúið ekki að leikurinn er komin/að koma þá trúið þið því bara ekki WHO GIVES A DAMN!!!!
og af hverju eruð þið þá að ásaka Óla og Sverri þeir fengu þetta á síðu og hvernig áttu þeir að vita hvort þetta var satt eða ekki!!!!!
En hættiði nú með þetta kjaftæði og þroskist aðeins ég meina það……
Anyway…mér finnst Larry leikirnir aðeins of í alvöru og þegar maður hugsar þetta á Wii…nasty!!!! ég er fegin að litli bróðir minn er bara 10svo hann geti ekki fengið leikin á Wii tölvuna okkar mér finnst þetta algjört rugl ***lyftir augabrúnini og ræskir sig*** enn haldiðið áfram með þessa síðu og Gleðileg jól allir saman og verið sem mest í tölvuni en farið svo út að hlaupa eða fara í tækjasalin til að losna við spikið eftir jólin;D
Ég þarf bara að líta á svörin sem koma við póstum hérna til þess að draga þá ályktun að karlmenn undir 16 ára aldri séu hér í stærstum hluta. Það sést á hegðun þeirra sem svara, lakri getu þeirra til þess að afla sér upplýsinga um einföldustu hluti, og trúgirni fólks á fréttir sem þessar. Sagði hins vegar ekki að ALLIR lesendur væru karlmenn undir 16 ára.
Ég vísa því einnig algerlega á bug að þetta sé einhver móðgun, sér í lagi þar sem ágiskun minni er ekki beint á neinn sérstakan einstakling og einnig þar sem það er í rauninni ekkert móðgandi við það að vera undir 16 ára aldri. Aftur á móti er ýmislegt sem einkennir yngri kynslóðina og m.a. er það að gleypa við hverju einasta orði sem kemur úr kjafti þeirra sem þeir telja að viti betur en þeir sjálfir, sér í lagi ef það er ekki augljóst að þetta sé spaug.
Það er hægt að lesa út frá orðalagi fregna, upptökum þeirra (þ.e.a.s. hvaðan þær upphaflega koma) og dreifingu hvort þær séu sannar eður ei. Falsaðar fréttir fá nær enga dreifingu á stærri síðum nema um ansi góðar falsanir sé að ræða.
Annars er ég sjálfur móðgaður yfir því að þú skulir kalla Larry “aðeins of” þar sem að leikirnir eru fyrst og fremst hannaðir sem grínleikir fyrir þá sem kunna að meta húmorinn en ekki sem eitthvað … einverumateríal fyrir einmana tölvunörda.
En já, Sverrir, skal alveg taka þessa afsökun þína gilda í þetta skiptið. Sleppur samt ekki svona vel næst. ;l Og ég biðst afsökunar fyrir að vera ekki á sama leveli með húmor minn og þið. Vona að þið takið því ekki persónulega eða neitt þannig, er bara með örlítið hærri fyndnistuðul en sumir hérna, að því er virðist.
Hafið það gott á nýju ári…
Vilhelm
Vilhelm hættu þessu þrugli nú, það eru leiðindar nöldurseggir eins og þú sem enginn nennir að hlusta á, og Sverrir og Óli, hættið bara að svara þessum gaur, þá kannski fer hann eitthvað annað að nöldra…
Annars bara gleðilega hátíð 
RIGHT ON!!!!!!!!!
+Vilhelm (ég verð að segja þetta) þótt það commenta ekki margar stelpur fara mjög margar þeirra á þessa síðu ég efast ekki um það, þær eru kannski bara hræddar um að commenta því þær eru feimnar eða þora ekki að tjá sína ást á tölvuleikjum.
En ég er sammála Ómari hérna fyrir ofan just ignore him ,þá fer hann annað;D