Sierra fyrirtækið er að vinna að nýjum Larry leik sem mun nýta
Wii stýripinnana á mjög nýstárlegan hátt.
Larry hefur verið aðalpersónan í fjölda leikja, en hann er
sköllóttur maður á fimmtugsaldri sem er alltaf að reyna við ungar
og aðlaðandi konur.
Vinsældir Larry leikjanna hafa verið mismunandi, en grafíkin
hefur alltaf farið batnandi, enda eru leikirnir alltaf bannaðir
innan 18 ára. Í nýja leiknum sem er væntanlegur á næsta ári
og mun heita “Leisure Suit Larry : Upstanding Citizen” verður Wii
stýripinninn notaður á mjög einstakan hátt og þurfa leikmenn að
gleðja konurnar svo þær missi ekki áhugan.
Án þess að fara mjög ítarlega í málið, þá á þessi leikur eflaust
eftir að valda miklu umtali, sérstaklega þegar leikmenn fara að
skaka sér með pinnan til að valda stuði á ýmsum stöðum.
Eða eins og Sverrir Stormsker sagði : “Sjálfs er höndin
hollust…sú hægri yfirleitt..”

Ég get ekki beðið eftir nýja Larry leiknum…Wiii
Wiiii
Nýleg comment