Það hefur nóg verið að gera í tölvuleikjunum þessa vikuna og
ætla ég örstutt að renna yfir helstu leikina sem ég, Óli í
Gametivi, hef verið að spila. Endilega svarið með ykkar
skoðunum..
WWE Smackdown vs Raw 2007 – Xbox
360/PS2
Ótrúlega flottur í Xbox 360 og fékk ég sérfræðinginn hann bróðir
minn til að hjálpa mér að meta leikinn, en hann er mikill
áhugamaður um “wrestling” (ekki veit ég afhverju, en…)
Allir slagsmálakapparnir líta vel út og leikurinn spilast nokkuð
vel. Reyndar geta bardagaranir verið pirrandi stundum…

Þær kunna að glíma þessar stelpur…harðar og
grimmar…
Superman
Returns – Xbox 360
Skellti þessum í
gærkvöldi. Dálítið funky leikur, en engu að síður
ágætur. Superman getur flogið frjálst um alla borgina
Metropolis og svo fer hann á fullt af öðrum stöðum. Leikurinn
byggir bæði á myndinni og öllum comic blöðunum um Ofurmennið.
Reyndar ekki búinn að spila leikinn lengi, en hann er
ágætur….ekki beint verið að finna upp hjólið og líkist leikurinn
nokkuð nýjustu Spiderman leikjunum.

Af hverju er ekki bara hægt að setjast niður, tala
saman og leysa málin..
Medal of Honor Heroes -
PSP
Það var mikið að EA hysjaði uppum sig í
Medal of Honor seríunni, því síðustu leikirnir í seríunni hafa
verið hreinn viðbjóður. En nú kveður við annan tón og er
niðurstaðan besti fyrstu persónu skotleikur sem til er á PSP.
Stýringarnar góðar og leikurinn er svalur og flottur. Alvöru
leikur fyrir menn með bringuhár..

Þetta getur litla PSP kvikindið…þokkalega grafík
miðað við stærð og eldri störf…
Sopranos -
PS2
Hvernig væri að búa til almennilegan leik
þegar þú ert með eitt flottasta “licence” í heimi…en nei…það
þarf að klúðra því með ódýrum og frekar undarlegum leik um Sopranos
fjölskylduna. Tony Sopranos er eiginlega ekkert í leiknum, en
leikmenn fara í hlutverk einhvers lúða sem að þarf að vinna sig upp
innan fjölskyldunnar. Mikið um ofbeldi og klám…sem auðvitað
einhverjir fíla, en þessi er frekar þunnur..

Djö…lítur Tony vel út í tölvuheimum…
Þetta er svona það helsta sem ég er að dunda mér í þessa
daganna, endilega komið með komment um hvað þið eruð að vesenast í
tölvuleikjunum…
Sá sem kemur
með skemmtilegasta svarið við þessari grein að okkar mati, fær
leik frá okkur Sverri í Gametivi
frítt..



42?
WWE smackdown vs raw 2007 er bestur má ég kannski fá hann frían á enga leiki á sona 8 eða 13 svo plz
Já, leiki sem ég er að spila.
PS2: Ég hef ekki spilað neinn nýjan leik á PS2 nema seinast spilaði ég Kingdom Heart 1, nokkuð mjög góður leikur. Skemmtilegur söguþráður og spennandi. Er alltaf á leiðinni fá mér númer 2 en er að safna fyrir Wii og PS3.
PSP: Ég fékk leik að láni sem nefnist James Bond – From Russia with love. Það er bara sá besti PSP leikur sem ég hef spilað hingað til. Reyndar of stuttur en ég hafði gaman að honum.
PC: Þar er ég að spila Civilization IV – Warlords. Hann er alveg magnaður. Maður getur spilað hann nokkuð lengi og líka á netinu sem er mjög góður kostur. SVo að Lana með vini sínum í þessum leik er mergjað.
Framundan: Já, svo er það next-gen á Íslandi að hefjast. X-Box 360 er þegar komin en ég mundi aldrei fá mér hana. Nema kannski fría. Svo fer Nintendo Wii að koma út 8. desember 06. Get varka beðið eftir að fá Wii þá og Legend of Zelda – Twilight Princess (fékk 9,5 hjá IGN.com) Svo er það helling af leikjum á Wii sem mér langar í. Hlakka til að fá eintakið 8. des. (búinn að panta) Já, svo er það PS3 sem kemur í mars 07. Get ekki beðið að fá að prófa hana.
Þetta tók mig svolítin tíma en þess virði að reyna að eignast nýjan leik.
Ég er að fara að fá mér XboX 360 eftir um það bil 3 vikur en eftir að ég hef keypt tölvuna þá á ég engann pening eftir fyrir leik (ekki að reyna að fiska eftir ókeypis leik eða neitt) en það væri fínt að fá einn volgann í hendurnar á svipuðum tíma og ég fæ xbox tölvuna í hendurnar
en þessi grein var líka fín

23.11.2006 / 09:15:41 / gametivi, Vá hvað þú vaknar snemma
En, já.
Alveg sammála þér með Smackdown vs. Raw, þeir geta verið hryllilega pirrandi.
Medal of Honor hljómar spennandi en flestir PSP leikjanna sem ég á eru ótrúlega leiðigjarnir.
Í PlayStation tækinu..
..Dvalir FIFA 07 sem er bara býsna góður þrátt fyrir slappt freekick system. Leikurinn er mun raunverulegri en Fifa leikirnir á undan vegna nýju \”Ball Physics\” sem er hrein og tær snilld. Fínt að dunda sér Fifa í svona af og til
Í PSP-inu..
..Er, held ég, GTA:LCS. Hef ekki keypt mér leik í hana síðan. Ótrúlega lítið úrval af góðum leikjum. :/ GTA:LCS er svosem ágætur en eftir að hafa spilað San Andreas er lítið varið í hann.
Í PC-inu..
, HL2 og HL2: Episode One. HL2 er ein besta leikjasería sem gerð hefur verið að mínu mati og Gordon alltaf jafn \”Harður og Grimmur\”
Ótrúlegt hvað maður kemst langt án þess að segja neitt.
..Er Steam, sem inniheldur CS
Ekki beint nýjustu leikirnir en, kannski að maður kaupi sér e-r leik fljótlega. Eða fái einn frá ykkur.
-Jói.
Mig langar í köku
Já skemmtilegasta svarið.
Segi bara frá leikjunum sem að maður er að leika sér í þessa dagana.
Í PS2 eru það Fifa 07 og Mortal Kombat Armageddon en báðir mjög skemmtilegir leikir. Fifa með góða grafík og spilun og Mortal svona Brutal með svokölluðum fatality þar sem að maður rífur hendur, kremur hausa og “klárar andstæðinginn”.
Í Pc eru það Black and white og Medieval leikirnir. Skemmtilegt að byggja upp í Black and white og svo lýst mér vel á Nýja Medieval leikinn.
Í psp eru það gta leikirnir vice city og liberty city.
Svo kaupir maður sér bara PS3 og leikur sér í henni. Leist svaka vel á Army of two sem kemur í PS3 sem að þið sýnduð um daginn og ekki spurning að maður kaupir sér hann.
En já þetta er allt og sumt bara skemmtilegir þættir hjá ykkur og það væri fínt að fá einn góðan frá ykkur.
Ég gæti verið að spila NBA 2k7 núna, fann hann á einhverju illaðasta verði norðan alpafjalla í fríhöfninni (litlar 2700 krónur, sem eru 20 pund), en hann týndist á leiðinni heim.
Djöfull gott.
Ég var að klára fyrsta Call of Duty leikinn (af því ég á MAC og það er ekki hægt að kaupa neitt af leikjum á MAC) sem er að vísu ekkert þrekvirki þar sem leikurinn er jafn stuttur og þráðurinn í Ike Turner (heijo!) en hann var samt alveg ofur.
Ég spái ekki í grafík þegar ég spila leiki bara hvort ég hef gaman af því að spila eða ekki svo það að leikurinn sé gamall kom engu við.
pís át, þetta kemur of seint til þess að fá ókeypis drasl er það ekki?
Já, mér finnst þetta bara mjög flott síða hjá ykkur og haldið þessu áfram…senda inn meira af lýsingum á einstökum leikjum eða að dæma nýja leiki, mér finnst alltaf gaman að lesa það sem og að horfa á það í þættinum ykkar!
Ég vona innilega að þið haldið áfram með þessa síðu og þáttinn að auki því að þetta er einfaldlega snilldar viðfangsefni sem þið eruð að fást við: TÖLVULEIKIR!
Mér finnast tölvuleikir mjög skemmtilegir og ég vona bara að ykkur finnist það sem þið eruð að gera í þættinum og á síðunni líka mjög skemmtilegt.
Haldið þessu áfram og aldrei að hætta!
Ég sé ykkur í næsta þætti
Ég er með skemmtilegasta svarið.
Hvenær og hvernig gefið þið leikinn. Kannski búnir að því ??
Er að spila Black í PS2 og Age of empires 3 í PC en spái ekkert vða í grafíkina en það er betra að góða. Og er að spila Nitendo dogs í Nitendo DS. Enuppáhalds leikurinn minn í augnablikinu er Time Splitters Future perfect í PS2
Haldið áfram með síðuna
Á ég að sega ykkur bransdara kauptu þér standara HAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHA
N64 (já eg fann hana uppí skáp ákvað að taka hana framm aftur
)
er að spila besta leik allra tima í n64 Zelda: Ocarina Of time
Gamecube: enn og aftur Zelda: Windwaker
Ps2: engir eins og er.. en siðasti leikurinn sem eg spilaði i hana var PES5
Xbox360: pes6 og Saints Row
DS: MarioKart
Psp: vá.. engir góðir leikir til að spila i hana.. siðasti leikur spilaður: GTA:liberty city stories
Væntanlegir spilaðir leikir
Wii: Zelda: Twilight Princess
Xbox360: Gears of wars
Ég er að spila battlefield2 í pc hann er alveg mergjaður geðveikt sniðugur leikur
og í ps2 er ég að spila tony hawk project8 (thp
eg er lika á hjólabretti i alvöru og ég mæli með að allir byrja a hjólabretti 
í psp er ég að spila prince of percian mér finnst hann líka alveg ágætur stundum ekki nógar leiðbendingar hvernig maður a að gera allt (klifra a veggjunum og allt það)
Viktor O. Takk fyrir
þið eruð allir aular sem hafa skrifað eb gaurarnir sem eru með gamatíví eru snillingar
hvað meinaru?
Við höfum valið Daníel sem sigurvegara. Takk fyrir frábær svör. Við munum fljótlega vera með svona samkeppni aftur…
Daníel við sendum þér frían leik..
Kveðja,
Gametivi bræður..
Takk kærlega fyrir. Ég vil þakka ykkur fyrir og hvet ég ykkur að blogga ennþá. Það er alltaf gaman að commenta hjá ykkur.
Takk fyrir enn aftur
.
fyrir hvaða Tölvu er Oblivion?
Prófaðu að halda l2 takkanum inni Þegar þú er Eddie guerrero að keppa á móti Rey mysterio þá gerir Eddie Super Lasso from El paso