Þessari spurningu er velt upp í grein á netmiðlinum Games
Industry..
“Við erum ekki hrokafullir”, segir Fils-Aime, Forstjóri Nintendo
í Ameríku, “Það er einmitt það sem skilur okkur frá
keppninautunum.”
Fils-Aime svarar einnig gagnrýnendum sem hafa gefið til dæmis
leiknum Red Steel slæma dóma og segir : “Tekur það nokkrar mínútur
að venjast stjórntækjunum ? Já. En þegar þú venst þeim, þá
spilast leikurinn einstaklega vel.”
Einnig svarar Fils-Aime gagnrýni á Wii Sports leikinn, með því
að segja : “Þeir eru neikvæðir útaf grafík leiksins, en við höfum
alltaf sagt hvernig grafíkin myndi vera. Ég held að menn séu
bara of gagnrýnir.”

Fils-Aime, forstjóri Nintendo…ekki ósvipaður
Bjarna Töframanni…
Já lífið hjá forstjórum Sony og Nintendo er ljúfsárt þessa
daganna. Vélarnar hafa báðar selst upp, en hafa mætt ýmissi
gagnrýni..
Hvað finnst ykkur, hefðu Nintendo átt að einbeita sér meira að
grafík ? Hefði Sony átt að sleppa Blu Ray drifinu til að geta
aukið framleiðsluna á PlayStation 3 vélunum ? Eða eru þessir
gaurar að gera allt rétt og eiga eftir að rétta úr kútnum ?
Látið okkur vita hvað ykkur finnst..



Ég held að Wii er fín eins og hún er.
Grafík er svakalega ofmetin nú til dags…
Að vissu leyti er flott að spila leiki með rosalega grafík en það gerir leikina ekki endilega góða. Öllu heldur sölutrikk til að laða fólki að.
Og mér sýnist Wii hafa bara ágætis grafík t.d lítið á Twilight Princess?
Varðandi PS3, ég held að Blue Ray hafi ekkert verið sérlega góð hugmynd þar sem það gerir tölvuna mun dýrarai, eins og hún er ekki nógu dýr..
Allavega þetta er álit mitt.
Bæði eru á góðu róli. Nintendo þurfti ekkert að bæta upp í miklu graffík, þar sem þeir komu með þessa ægilega spennu af nýrri gerð í spilun tölvuleikja.
PS3 eru miklum vanda eins og er. Þeir hefðu aldrei getað gefið út Evrópska systemið á sama tíma og Ameríska. Það hefði bara verið miklu meir álag.
Ég vil líka bæta inn í að allir eru að tala um að þessi nýja graffic skipi ekki endilega máli. En þetta er það sem þeir eru búnir að berjast um síðustu árin. Betri graffic er miklu flottara. Nintendo hefðu pottþétt gert miklu betri graffic hefði þeir ekki gefið ú Wii. Reggie stendur við orð sín sem er mjög gott.
Já, þessi grafík í Twilight Princess er mögnuð meaðal Wii leikina. Svo er hann örugglega langvinsælasti leikurinn í dag. Féll 9.5 hjá IGN en ekki nema 8.8 hjá gamespot. 3 af hverjum 4 keyptu TP með Wii. Sem er nokkuð mjög magnað.
Skemmtilegur titill á þessum pósti, sérstaklega þar sem Sony hafa verið svakalega hrokafullir í gegnum tíðina, hrokafyllri en hin fyrirtækin ef eitthvað er, og síðasta E3 var gott dæmi um það.
Það var náttúrulega bara ein ástæða fyrir því af hverju Blu-Ray var integrateað í PS3 – til þess að dreifingin yrði sem mest. PS2 flýtti fyrir upptöku DVD diska, og Sony vonast til þess að PS3 muni gera svipað fyrir Blu-Ray. Þörfin fyrir allt þetta pláss sem next-gen diskar bjóða upp á er ekki eins og fólk vill halda – það eina sem það í rauninni leyfir er að það þarf ekki að þjappa contenti eins og það er gert núna. Sjáið Gears of War, hann tekur ekki nema 7 gígabæti og hann er flottari en flottustu PS3 leikirnir í dag. Elder Scrolls IV: Oblivion er á DVD5 og það á að kenna okkur ýmislegt. Við þurfum ekki HD-DVD eða Blu-Ray undir leikina okkar ennþá.
Það er einungis einn X360 leikur sem verður á fleiri en einum disk, og það er Blue Dragon. Ástæðan er sú að í staðinn fyrir að nota in-game grafík fyrir myndbönd þá smella þeir high-def pre-rendered myndböndum inn í staðinn og þau taka dágott pláss.
En ég tel engu að síður að Sony munu ganga vel með PS3 og ég held að framtíð vélarinnar sé björt. Hún mun ekki ná sömu hæðum og PS2 gerði en engu að síður á hún góða möguleika á að vinna þetta stríð, sér í lagi vegna þess að Sony eru löngu búnir að byggja sér upp sem leikjatölvuþróandi.
Nintendo eru ekki í þeirri aðstöðu að geta setið undir tapi eins og Microsoft og Sony gera með sínar vélar. Þeir græða á Wii frá fyrsta degi og það mun virkilega hjálpa þeim í framtíðinni – þegar þeir geta eytt meiri pening í R&D; og jafnvel staðið undir tapi á hverri seldri vél. Það var virkilega snjöll ákvörðun hjá þeim að byggja vélina sína á GameCube og integratea nýrri stjórntækni í vélina. Það er ekki mikið nýtt að læra hjá þróendum, fyrir utan hvernig á að nota fjarstýringuna, auk þess sem það er ódýrara í framleiðslu en þeir íhlutir sem eru í PS3 og X360. Þótt grafíkin komist ekki með tærnar þar sem X360 og PS3 hafa hælana, og það muni þar af leiðandi kannski styggja marga spilara sem vilja fá eitthvað fútt í sjónræna hlutann, þá er ég viss um að vélin muni hjálpa við það að koma fleirum í tölvuleiki líkt og Nintendo DS hefur gert. Græjan er ekki eingöngu fyrir hardcore spilendur, heldur einnig Jón og Gunnu útá götu.
Báðar vélarnar miða á ólíka hópa, og á meðan PS3 einblínir kannski á stærstan hluta LEIKJAUNNENDA þá mun Wii samt hitta beint í hjartastað á hinum ALMENNA borgara sem hefur ekki snert leikjatölvu í fjölda ára, ef einhvern tímann. Og hvor mun hafa betur í baráttunni? Tíminn verður að leiða það í ljós.
Og já, þið sem eruð að slefa yfir grafíkinni í Twilight Princess… þá er þetta essentially GameCube leikur með GameCube grafík… nýtir sér GameCube alveg til fulls. Þar sem Wii er aðeins beefier þá gætuð þið alveg farið að bíða eftir þeim leikjum sem nýta sér Wii til fulls. Og ef það sem ég hef séð af Pokémon Battle Revolution er real-time, þá gæti ég best trúað því að við eigum eftir að sjá ekkert illa útlítandi leiki á vélina.
Just my 2 cents.
Ég vil líka bæta inn í, að Wii er með MJÖG góða titla frammundan. Þeir eru Super Mario – Galaxy, Metriot Prime (ekki alveg viss hvernig það er skrifað en nokkuð veginn svona) og svo er það Super Smash Brothers. Í þeim leikjum er grafficin góð, mjög svo.
Og líka að þú varst að segja að Twilight Princess væri bara GC graffic. Það er alveg satt. Leikurinn kemur líka út fyrir Nintendo GC en það voru ekki alltof margir leikir sem voru með rosa góða graffic.
———
Hér er smá fyrir Zelda aðdáendur eða fyrir þá sem fýla leikina í botn eins og ég. En ég fann video sem breytti hugsun minni um söguþráð leikina, eða hvernig leikirnig tengdust hvor öðrum. Mér datt þetta aldrei í hug og finnst mér þetta mjög furðulegt. En slóðin er:
http://www.gametrailer.com/search.php?s=Retrospective&str;_type=allmedia
Videóið heitir: Zelda Retrospective – Part 6. Þetta fær manni til að pæla aðeins meira í söguþráðinn milli leikina.
Ég hvet ykkur einnig að skoða hin myndböndin. Því Zelda er einn af bestu leikjum allra tíma frá upphafi í leikjatölvum.
grfik er ekki allt l´tið bara á pokémon leikina það er ekki góð grafik í þeim samt urðu þeir alveg rosalega vinsælir
NINTENDO Wii OWNAR PLAYSTATION 3!!! ALLIR ELSKA NINTENDO MEIRA EN PLAYSTATION ALLIR ERU Á MÓTI PLAYSTATION OG PS3 SÖKKAR OK ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ SANNA ÞAÐ MEÐ ÖLLU SEM STENDUR Á HUGA Í LEIKJATÖLVUM AÐ NINTENDO RÚÚÚSSSTTI PLAYSTATION3 !!!! WHAHAHAHAHAHAHAHA own ?
WHAHAHHAHAHAHAHAAHA nei?
Það elska ekki allir nintendo Wii meira en ps3
Sokkið! Gáið hvort þið fáið fráhvarfseinkenni…annars, eru komnir einhverjir dómar um Age of conan ?
“Daníel:Því Zelda er einn af bestu leikjum allra tíma frá upphafi í leikjatölvum.” semsagt þín skoðun .. mér finnst t.d oblivion eða gta betri leikir sem mun vera min skoðun ? allir hafa sínar skoðanir …. svo ekki vera að alhæfa svona hluti