Sælt veri fólkið og fólkið veri
sælt.
Í síðasta þætti tókum við GameTíví
bræður fyrir nettan samanburð á Nintendo DS og PSP og er það því
vel við hæfi að dúndra samanburðinum hérna inn ykkur til yndisauka



Vélbúnaður og
möguleikar:
SONY vill meina að PSP sé Walkman 21.
aldarinnar þar sem þeir eru að troða fullt af dóti í eitt
svona lítið tæki. PSP er fær um grafík sem er einhversstaðar
á milli PlayStation og PlayStation 2 sem og þú getur skoðað
myndir, hlustað á tónlist, horft á video, vafrað á netinu og
margt fleira. En til að gera alla þessa hluti þá þarftu jú
hellings rafhlöðu tíma og enn sem komið er þá er PSPinn ekki
með nægilega góða og stóra rafhlöðu þar sem hún endist ekki
nema í 2-3 tímum meðan horft er á kvikmyndir en getur þó náð
8-10 tímum í sumum leikjum.
Það fyrsta sem þú tekur eftir þegar
þú sérð Nintendo DS vélina er án efa sú staðreynd að hún hefur tvo
skjái. Efri skjárinn er venjulegur LCD skjár með að sá neðri er
snertiskjár. Með þessu eru Nintendo menn að bjóða uppá öðruvísi
spilun til þess að gera hana skemmtilegri þegar maður er að spila á
ferðinni. Grafíkin er
ekki eins góð á DSnum og er í raun mjög svipuð og þeirri grafík sem
boðið var uppá á N64 vélinni en á móti því kemur að DSinn á ekki
við sama rafhlöðu vanda að stríða og getur þú spilað hana í 10-12
tíma á einni hleðslu.
Hönnun:
Strax frá upphafi þá hefur PSP
vélin litið mjög vel út og í raun heillar hvern þann sem sér
hana í fyrsta skiptið. SONY menn ákváðu að leggja áherslu á
skjáinn og koma með stóran og flottan skjá sem nýtist vel í
leikjaspilun sem og að horfa á kvikmyndi, skoða myndir og
hvað annað sem gæti komið á tölvuna. Nintendo hinsvegar
byrjuðu á því að koma með frekar klunnalega útgáfu, þeir
héldu sig við skel effectinn og bættu snerti skjá á neðri
flötinn. Í fyrstu hélt maður að þetta væri í lagi en svo
þegar PSP vélin var komin í hendurnar leit DS vélin allt í
einu ekki eins vel út. Þá tóku Nintendo menn sér
tak og bjuggu til mun minni og handhægari útgáfu af vélinni
sem sem hafði smá hönnunarútlit með sér. Þrátt fyrir mjög
góðar breytingar á DS vélinni þá hefur þó PSP enn þá
vinninginn hvað varðar hönnun enda fátt sem slær út þennan
prýðis myndarlega skjá sem prýðir vélina.
Stýring:
Á meðan DSinn kemur með nýjar leiðir
til þess að stýra leikjunum þá heldur PSPinn sig við það sem virkar
og notar sama útlit og er PlayStation fjarstýringunum, þ.e.a.s.
X-ið, hringinn, kassann og þríhyrninginn hægra megin og analog flöt
og bendistýringu vinstramegin og svo L og R takkana góðu ofaná og
gerir þetta spilurum auðveldara með að fara úr PlayStation2
tölvunni sinni yfir í PSPinn.
DSinn á hinn bóginn kemur með alveg
nýja leið í leikjaspilun með því að bjóða upp á
snertiskjáinn. En þeir
treysta þó ekki alveg á hann og bjóða uppá A, B, X og Y sem og R og
L takkarnir eru á sínum stað. En með því að hafa 2 skjái og þar af
einn snertiskjá hefur DSinn endalausa möguleika þegar kemur að
leikjaspilun og gefur leikjaframleiðendum frjálsari hendur þegar
kemur að því að tengja spilarann við leikinn, hvort sem það er að
nota annan skjáinn sem kort í leikjum, færi hluti til með snertingu
o.s.frv.
Skjáirnir:
PSP skjárinn er tæpir 10 cm á
breiddina og 5.5 cm á hæðina (480×272 pixlar) sem að þýðir að þú
hefur gríðarstóran skjá í höndunum með frábærri upplausn sem gefur
þér gríðarlega möguleika þegar kemur að leikjaspilun og ég tala nú
ekki um að horfa á myndir.
DSinn býður upp á tvo skjái, þar af
snertiskjá, sem býður uppá mikla möguleika. Þó finnst manni PSPinn
hafa vinninginn þar sem stóri skjárinn er bara svo hrikalega
svalur.
Verð og
leikir:
PSPinn er að kosta um 23.900 kr. útúr
búð á meðan DSinn kostar 13.999 kr. sem að er 10 þúsund kalli
minna og því ljóst að DS vélin hefur hæglega vinninginn þar.
Þegar að kemur að leikjum þá hefur DSinn mun fleiri leiki sem
hafa slegið í gegn sem og snertiskjárinn býður upp á öðruvísi
spilun á meðan PSPinn er í raun bara að standa undir nafni,
PlayStation Portable, þ.e. að þú ert bara kominn með
PlayStation tölvu “on the go”
Niðurstaða:
Niðurstaðan í þessu öllu virðist
nokkuð ljós. Nintendo DS hefur meiri möguleika þegar kemur að
leikja spilun og býður upp á mikið glens og mikla gleði. PSP aftur
á móti er eitursvöl vél sem nýtist vel í leikjaspilun sem og aðra
iðkun.
DSinn hentar því meira yngri
kynslóðinni og þeim sem vilja skemmtilega leikjaspilun á meðan PSP
vélin er svalari og fellur betur þeim sem vilja meira en bara að
spila leiki
Nýleg comment