Þá er maður kominn á fullt með að spila nýjasta leikinn frá
Rockstar Games eða Canis Canem Edit, en þessi leikur átti
upphaflega að heita Bully.
Mikið hefur verið rætt um þennan leik og hafa lögfræðingar og
stjórnmálamenn um allan heim unnið yfirvinnu við að reyna að banna
kvikindið.
Ég verð að segja að Rockstar eru snillingar í að snúa
fjölmiðlamaskínunni, með því að láta alla röfla og rífast um þennan
leik, sem allir halda að fjalli um einelti. Svo þegar
leikurinn kemur út slá þeir vopnin úr öllum nöldurskjóðunum, því
leikurinn snýst ekki um einelti, heldur er maður bara að chilla í
heilt ár í heimavistarskólanum Bullworth.
Leikurinn notar sömu grafíkvél og GTA leikirnir og er svona
“free roaming” leikur, þar sem leikmenn verða að mæta í tíma og
fremja hin og þessi prakkarastrik.
Leikurinn verður dæmdur í Gametivi á fimmtudaginn, en það væri
gaman að heyra í ykkur sem hafa spilað leikinn eða hafa eitthvað um
hann að segja 
Kveðja,
Óli Jó – Gametivi




Ég hef ekki prófað leikinn en samt. Mér finnst mjög asnalegt að banna þetta svona fyrir fram
Mér fynst þetta öruglega besta hugmynd sem hefur komið lengi…það gera allir fótboltaleiki eða streetfight leiki eða bílaleiki…það á að koma meira af þessu…ég hef nú reyndar ekki prófað hann ennþá en mér sýnist hann FRÁBÆR!!!
ég gef honum tiu
Þessi leikur er örugglega ágætur en mér finnst svo fyndið að heyra þessar mömmur röfla XD
usss þessi leikur err alveg lala GEÐVEIKUR!! 10/10!
ég hef ekki prófað þennan leik enn virðist mjög góður þannig að ég gef honum 10/9
fréttuð þið um mannin sem reyndi að stinga lögguna af á bíl og náðist og sagði svo við dómarann um að hann hélt að hann gæti það því hann var svo góður í því í GTA…..annars langar mér geðveikt að prófa þennan leik, hef ekki verið hooked á ps2 leik síðan shadow of the colossus! good times…
Ég hef bæði heyrti og séð að þessi leikur eigi eftir að verða allveg geðveikur eins og allir hinir leikir sem Rockstar Games hafa gert…þeir eru einfaldlega bara snillingar…svo á náttúrulega eftir að koma út nýr GTA leikur á PS3 í maí á næsta ári…hann verður á efa besti leikur sem gerður hefur verið…Samt ÖM að PS3 komi ekki fyrr en í Mars á næsta ári til Evrópu…Btw hún kemur út 11. nóv í bæði Japan og USA…
ef að þið eruð kannski að gefa leikinn út óli og sverrir má ég þá fá eintak á ps2 því ég á svo lítið að leikjum.Bíð eftir svari og kvittaaaa í gestabókina bæbæ
geðveikur leikur ég fékk hann í janúar 10/10
ég er bara 9 ára hvað með það þetta er rosa flottur leikur ég ætla að kuapa mér hann.