- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for October, 2006

Er Canis Canem Edit (Bully) virkilega svo rosalega hræðilegur ?

Þá er maður kominn á fullt með að spila nýjasta leikinn frá
Rockstar Games eða Canis Canem Edit, en þessi leikur átti
upphaflega að heita Bully. 

Mikið hefur verið rætt um þennan leik og hafa lögfræðingar og
stjórnmálamenn um allan heim unnið yfirvinnu við að reyna að banna
kvikindið.

Ég verð að segja að Rockstar eru snillingar í að snúa
fjölmiðlamaskínunni, með því að láta alla röfla og rífast um þennan
leik, sem allir halda að fjalli um einelti.  Svo þegar
leikurinn kemur út slá þeir vopnin úr öllum nöldurskjóðunum, því
leikurinn snýst ekki um einelti, heldur er maður bara að chilla í
heilt ár í heimavistarskólanum Bullworth.

Leikurinn notar sömu grafíkvél og GTA leikirnir og er svona
“free roaming” leikur, þar sem leikmenn verða að mæta í tíma og
fremja hin og þessi prakkarastrik.

Leikurinn verður dæmdur í Gametivi á fimmtudaginn, en það væri
gaman að heyra í ykkur sem hafa spilað leikinn eða hafa eitthvað um
hann að segja :P

Kveðja,

Óli Jó – Gametivi

Fifa vs. PES aka ISS

Ég er alltaf að taka eftir því meira og meira að barningurinn
milli Fifa og ProEvo er ógurlegur. Núna bara í dag tók ég viðtal
við sigurvegaran úr leikjaveikinni þar sem menn voru að keppa í
Fifa 07 og sagði hann orðrétt “Fifa er rusl”, hehe:lol:, maðurinn
nýbúinn að vinna Fifa keppni. Ég verð samt að viðurkenna að ég er
alger anall þegar kemur að fótboltaleikjum (hef ég ekki nennt að
spila þá síðan World Cup á NES og svo Super Soccer á SNES) en það
virðist vera sem hardcore spilarar taki ProEvo en þeir sem vilja
svona rétt “grípa í” taki Fifa…og reyndar svipað með NBA 2K7 og
NBA Live 07…

Er þetta bull eða eruði sammála mér?

Sverrir Bergmann
-GameTíví-

Gears of War kemur ekki út í Þýskalandi

Þá er það opinbert… .”Þjóðverjar hljóta að vera viðkvæmasta
þjóð á jarðríki”…:P

En í vikunni tilkynntu þarlend stjórnvöld eða
skoðunarnefnd ríkisins sem heitir hinu dúndursvala
nafni,  Unterhaltungssoftware
Selbskontrolle,  að leikurinn Gears of War á Xbox
360 verði ekki seldur í Þýskalandi.  

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Þjóðverjar stoppa sölu á
tölvuleik, en skemmst er að minnast þess þegar Dead Rising
leikurinn var bannaður í Þýskalandi..

Það er greinilegt að Þjóðverjar eiga erfitt með að hafa stjórn á
sér..

Þeir eru logandi hressir gaurarnir í Gears of
War..Þeir þurfa að panta “Sauerkrauts” í gegnum netið þar sem þeir
hafa verið bannaðir í Þýskalandi..

EA með meira en 30 leiki í framleiðslu fyrir PlayStation 3

Electronic Arts sem er án nokkurs vafa stærsti útgefandi
tölvuleikja í heiminum í dag, ætlar sér greinilega stóra hluti
þegar PlayStation 3 er annarsvegar, því í vikunni tilkynntu þeir að
30 leikir séu í framleiðslu fyrir græjuna…

Líklega munu 10 þeirra koma út fyrir mars 2007 og meðal þeirra
eru Need for Speed Carbon, Def Jam: Icon (sem á að vera geggjaður)
og líklega Burnout 5.

Einnig munu koma nýir leikir sem eru ekki hluti af seríu og eru
það leikir á borð við Army of Two og Skate (brettaleikur sem á að
stúta Tony Hawk)..

Þetta ætti að vera svalt..og góðar fréttir fyrir Sony, enda
veitir þeim ekki af þessa dagana.

Def Jam : Icon – verður eflaust einn flottasti
slagsmálaleikurinn á PS2

Sims 2 Pets kemur út á fimmtudag

THE
SIMS 2 PETS

-
Skemmtilegur og fróðlegur leikur

 

PC og
PlayStation 2 útgáfur leiksins koma út á fimmtudag, svo síðar í
vetur koma PSP og NDS útgáfur af þessum nýjasta leik Sims
seríunnar…Hver útgáfa hefur sín sér einkenni sem er farið yfir
hér að neðan.

 

 

 

”Leikurinn
er ótrúlega raunverulegur og inniheldur kennslulegt gildi –
Hér geta börn og unglingar lært heilmikið um hvernig
umgangast á gæludýr.”

 

- Odd Harald
Eidsmo, Dýraverndunarsamtökum Noregs

 

 

 


Upplýsingar um hverja útgáfu fyrir
sig:

 

PC :    
Sá aukadiskur fyrir Sims 2 sem flestir hafa beðið eftir
!

           
Þú ræður bæði hvernig dýrin líta út og hvaða persónuleika þau hafa
að geyma (líkt og með simsana)

           
Mundu að það þarf að hugsa um gæludýrin og kenna þeim nýja hluti,
nákvæmlega eins og í raunveruleikanum….annars verða þau fúl og
leiðinleg..

Getur þú ekki ákveðið þig
hvort þú vilt kött eða hund ?  Blandaða þeim þá bara saman,
því möguleikarnir eru endalausir í Sims 2 Pets!

Kemur
út 19.10

 

PS2 :    Hér byrja leikmenn á
að hringja í Dýraverndunarsamtök og taka að sér dýr sem þarf
heimili, eða þá að leikmenn geta búið til sitt eigið gæludýr. 
Þú hefur 22 tegundir hunda og 15 tegundir katta til að velja
úr.

           
Finnst þér hamsturinn þinn með of stórt höfuð ?  Það getur þú
lagað, eins og þú getur lagað alla útlimi gæludýranna í Sims 2
Pets.

           
Gæludýrin vilja vera með og blanda geði við fólk, þannig að þú
verður að taka þau með í almenningsgarðinn og leyfa þeim að leika
sér þar og framkvæma hin ýmsu trikk.

           
Hægt er að kaupa fullt af hlutum fyrir dýrin, þannig að passa
verður að eiga peninga til að dekra dýrin.

           
Kemur út
19.10

 

NDS:    Þú ert
yfirmaðurinn á dýraspítalanum, og þú þarft að passa uppá öll dýrin
sem þar eru.

           
Passa verður uppá að þau fái mat, séu hrein, vel upplögð og að þau
fá knús.

           
Svo þegar Simsinn þinn verður betri að annast dýrin, þá geta
leikmenn fengið fjölda bónushluta.

           
Kemur út
26.10

 

GBA:    Hér
gefur þú simsunum þínum störf sem snúa að dýrum.  Simsarnir
geta verið dýralæknar, fara út með hundinn eða eitthvað
annað.

           
Á ferlinum geta leikmenn svo safnað fjölda hluta til að nota í
ýmislegt!

           
Eftir því sem simsarnir ná lengra á framabrautinni, fá þeir aðgang
að fleiri gæludýrum.

           
Farið með dýrin í almenningsgarðinn, í bæinn eða í
dýrabúðina.  Eða takið þau með heim þar sem hægt er að uppfæra
þau og einnig er hægt að breyta til á heimilinu.

           
Kemur út
16.11

 

PSP:    Hér
geta leikmenn valið úr fjölda dýra og hvernig útlit þeirra
er.

           
Taktu þau með í almenningsgarðinn og hittu þar aðra simsa og
gæludýrin þeirra!

           
Kaupti haug af flottum græjum fyrir gæludýrið og sýndu öðrum það
til að gera þá afbrýðissama.

           
Þú getur svo útbúið almenningsgarðana eins og þú vilt.  Of
mörg tré eða of fá tré ?  Eða viltu hafa tjörn í garðinum
?

           
Eins og alltaf er líf simsanna í þínum höndum – lifðu öðru lífi
!

           
Kemur út
14.12
  

Harðir Grimmir

Þá höfum vði Gametivi bræður ákveðið að grípa í bloggið, og koma
upp allsvakalegum umræðum um tölvuleiki, græjur og allt því
tengt.  Við munum hripa greinar um leiki, hvað er í þáttunum
og svara ykkur sem lesið bloggið, ef þið viljið spyrja að einhverju
um tölvuleikina.

Einnig viljum við fá viðbrögð frá ykkur varðandi dóma og fleira
tengdu leikjastöffinu og öðru sem í þáttunum eru…

Harðir og grimmir,

Herra (Óli) og Frú (Svessi) Gametivi